Morgunblaðið - 26.11.2008, Page 13

Morgunblaðið - 26.11.2008, Page 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Framkvæmdir við nýja sundlaug ganga vel Eftir Jón Sigurðsson Blönduós | Framkvæmdir við bygg- ingu nýrrar útisundlaugar á Blönduósi sem hófust í lok júlí ganga vel. Uppsteypa á 25 metra laug- arkeri gekk að óskum þrátt fyrir hryssingslegt veður. Trésmiðjan Stígandi á Blönduósi annast þenn- an hluta framkvæmdarinnar og hefur vel gengið fram að þessu. Milli 70 og 80 rúmmetrar af steypu sem var ekið frá Sauðárkróki fóru í verkið. Allri steypuvinnu á að ljúka fyrir áramót og stefnir Blönduósbær að frekari útboðum eftir áramót. Ákvörðun þar um mun liggja fyrir samhliða gerð fjárhagsáætlunar. Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is SÁ MAÐUR sem greiðir atkvæði gegn vantrauststillögu er þar með formlega orðinn hluti af stuðnings- mönnum ríkisstjórnar, að sögn Jóns Magnússonar, formanns þingflokks Frjálslynda flokksins. Orð Jóns féllu þannig um kollega hans í þing- flokki frjálslyndra, Kristin H. Gunnarsson, sem greiddi atkvæði gegn vantrauststillögu stjórnarand- stöðunnar á Alþingi sl. mánudag. Um það hvort eftirmál yrðu af mál- inu sagði Jón að það yrði að koma í ljós. „Álit mitt á honum hefur ekk- ert breyst,“ sagði Jón. „En sjáðu til. Maður sem greiðir atkvæði gegn vantrauststillögu, hann er þar með formlega orðinn hluti af stuðn- ingsmönnum ríkisstjórnar. Það liggur fyrir, er bara hin formlega skilgreining á stjórn og stjórnar- andstöðu,“ sagði Jón. Hann sagðist líta andstöðu Kristins við tillöguna alvarlegum augum. „Það er að mínu viti mjög alvarlegt mál þegar lítill flokkur eins og Frjálslyndi flokk- urinn getur ekki gengið í takt,“ sagði hann. Jón sagðist reikna með að málið yrði tekið fyrir hjá flokknum. „Ég býst við að flokksmenn vilji ræða þetta, já.“ Aðspurður hvort hann hefði eftir sem áður gott álit á Kristni sagðist Jón ekkert hafa sagt um það. „Ég sagði að álit mitt á honum hefði ekkert breyst. Það sagði ekkert um að ég hefði gott álit á honum,“ sagði þingflokksfor- maðurinn. Kristinn gerði grein fyrir atkvæði sínu þannig m.a. að yrði vantrauststillagan samþykkt myndi vinna stjórnvalda færast frá lausn á aðsteðjandi vanda yfir í baráttu um hylli kjósenda. Jafnframt sagði hann að það væri andstætt hags- munum þjóðarinnar, ef þing yrði rofið nú og boðað til alþingiskosn- inga. Vantrauststillaga óráð Kristinn sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að hann hefði talið óráð að leggja fram vantrauststil- lögu á þessu stigi, nú bæri mönnum að einbeita sér að því að ná stjórn á ástandinu. Hann sagðist ekki með atkvæði sínu vera að hverfa úr stjórnarandstöðu. „Ég var með þessu að ítreka þá skoðun mína að nú væri mest um vert að vinna nauðsynlegt verk til að styrkja stöðu heimila og fyrirtækja,“ sagði Kristinn. „Menn yrðu að einbeita sér að því verkefni og leggja til hliðar hefðbundið stjórnmálaskak milli stjórnar og stjórnarandstöðu.“ Andstaðan litin alvarlegum augum Kristinn H. Gunnarsson Jón Magnússon Jón Magnússon segir Kristin H. Gunnarsson styðja stjórnina Fór ekki fram úr heimildum Í frétt um framúrkeyrslu stofnana ríkisins var mishermt að embætti sýslumannsins í Keflavík hefði farið langt fram úr fjárheimildum. Það embætti er innan fjárheimilda en Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, áð- ur sýslumannsembættið á Keflavík- urflugvelli, hefur farið 266 milljónir fram úr heimildum. Halldór er Jónsson Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri var rangfeðraður í blaðinu á mánu- dag. Halldór er Jónsson en ekki Jó- hannsson eins og ranghermt var. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Ný fjármögnun OR Í frétt um orkuöflun til álvers í Helguvíkur í blaðinu á þriðjudag var það ranghermt að Orkuveita Reykja- víkur glímdi við vanda við endur- fjármögnun. Hið rétta er að OR getur lent í vanda við nýja fjármögnun á nýjum verkefnum. Einnig er fjár- magnskostnaður ekki sagður standa í vegi fyrir afgreiðslu samþykktra lána, heldur ástandið almennt hér á landi, að sögn Eiríks Hjálmarssonar, upplýsingafulltrúa OR. Beðist er vel- virðingar á þessu ranghermi í blaðinu. LEIÐRÉTT RÍKISSTJÓRNIN er rúin trausti al- mennings og þarf að endurnýja það með uppstokkun, segir í ályktun sem fundur stéttarfélaganna á Egils- stöðum samþykkti í gær. Þess er m.a. krafist að yfirstjórn Seðlabanka og FME víki tafarlaust og að óháð nefnd verði skipuð sem kanni hvers vegna þjóðin sé komin í þessa stöðu. Svara verði skýrt og án undanbragða. Ríkisstjórn rúin trausti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.