Morgunblaðið - 26.11.2008, Side 15

Morgunblaðið - 26.11.2008, Side 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 MEGINEFNI fundar Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, með Alistair Darling, fjármálaráð- herra Bretlands, í Lundúnum 2. september var það að æskilegt væri að færa innstæðureikninga hjá útibúi Landsbankans í London í breskt dótturfélag. Þetta kemur fram í svari Björg- vins við fyrirspurn Sivjar Friðleifs- dóttur, þingmanns Framsóknar- flokksins, á Alþingi, þar sem hún spurði um efni fundarins. Í svarinu segir, að á fundinum hafi ráðherrarnir rætt almennt um aðstæður á mörkuðum og viðskipti landanna. Meginefni fundarins hafi verið að æskilegt væri að færa inn- stæðureikninga hjá útibúi Lands- bankans í London í breskt dóttur- félag. Bresk stjórnvöld höfðu unnið að því um nokkurt skeið ásamt ís- lenskum stjórnvöldum að fá bank- ann til að flytja innstæður svokall- aðra Icesave-reikninga úr útibúinu í breskt dótturfélag. Bresk stjórn- völd hafi gert mjög stífar kröfur um flutning eigna Landsbankans til Bretlands og um tímamörk. Í fréttatilkynningu, sem við- skiptaráðuneytið sendi út eftir fundinn, var ekki minnst á Icesave- reikninga. Þar segir hins vegar, að á fundinum hafi ráðherrarnir rætt góð samskipti þjóðanna á sviði fjár- málamarkaðar. Ekkert formlegt minnisblað Siv óskaði eftir því að minnisblað um fundinn yrði birt, en í svarinu segir að ráðherra hafi ekki tekið saman formlegt minnisblað um fundinn annað en það sem fram komi í tilkynningunni. Auk Björgvins sóttu fundinn af Íslands hálfu Sverrir Haukur Gunn- laugsson, sendiherra Íslands í Bret- landi, Baldur Guðlaugsson, ráðu- neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, ráðuneytisstjórinn í viðskiptaráðu- neytinu, Jón Sigurðsson, formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, skrif- stofustjóri í viðskiptaráðuneytinu og aðstoðarmaður viðskiptaráð- herra. Icesave meginefni fundar ráðherra Björgvin G. Sigurðsson Alistair Darling SAMKVÆMT nýrri skoðanakönn- un Fréttablaðsins vilja tæplega 70% landsmanna flýta alþingiskosn- ingnum. Stærsti hópurinn, 38,6%, vill kosningar vorið 2009. 26% svar- enda vilja kosningar fyrir áramót eða í ársbyrjun 2009. 29,3% vilja kosningar þegar kjörtímabilinu lýkur. Mikill meirihluti kjósenda stjórn- arandstöðuflokkanna vildi flýta kosningum. 71,3% kjósenda Sjálf- stæðisflokks vildu ekki flýta kosn- ingum en 23,3% vildu kosningar í síðasta lagi í vor. 27,6% kjósenda Samfylkingarinnar vildu ekki flýta kosningum en 63,7% vildu kosn- ingar í síðasta lagi í vor. Hringt var í 800 manns laug- ardaginn 22. nóvember. 90,8% að- spurðra tóku afstöðu til spurning- arinnar. Vilja flýta kosningum H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -2 3 8 7 Starfsfólk Glitnis svarar fyrirspurnum í dag milli kl.17 og 21 í síma 440 4000 Starfsfólk Eignastýringar Glitnis, Almenna lífeyrissjóðsins og Glitnis Fjármögnunar svara spurningum viðskiptavina ásamt ráðgjöfum Glitnis. Á glitnir.is getur þú einnig pantað fjármálaviðtal þar sem við bjóðum þér að setjast niður með okkur og fara ítarlega yfir stöðuna. FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is SKILANEFNDIR á vegum Fjármálaeft- irlitsins, sem nú hafa tekið yfir öll málefni gömlu bankanna Glitnis, Landsbankans og Kaupþings, hafa staðið í ströngu frá því að þær tóku yfir viðskiptabankastarfsemi bank- anna hér á landi. Á sama tíma skapaðist al- varleg staða fyrir lánveitendur bankanna sem sáu fram á að tapa þúsundum milljarða ís- lenskra króna. Samkvæmt lögum frá því í byrjun október fara skilanefndirnar með „öll málefni fjár- málafyrirtækisins, þar á meðal að hafa um- sjón með allri meðferð eigna þess, svo og að annast annan rekstur þess.“ Á undanförnum sjö vikum hefur mikið vatn runnið til sjávar. Tekist hefur að halda úti hefðbundinni bankastarfsemi í öllum útibúum hér á landi en starfsemin hefur þó ekki geng- ið hnökralaust. Gjaldeyrisviðskipti eru enn ekki í þeim farvegi sem þau ættu að vera í við eðlilegar aðstæður. Mikill tími hefur farið í að greiða úr óljósri stöðu margra við- skiptavina eftir hrun bankanna og sér ekki fyrir endann á þeirri vinnu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur þrýstingur frá lánveitendum gömlu bankanna, það er kröfuhöfunum, um að kom- ið verði til móts við kröfur þeirra verið að aukast. Viðskiptabankarnir á Íslandi verði jafnvel komnir í eigu erlendra banka að stórum hluta, það er fyrrverandi lánveitendur gömlu bankanna þriggja, innan nokkurra mánaða. Eins og greint hefur verið frá í Morgun- blaðinu hafa fulltrúar erlendra kröfuhafa, meðal annars þýsku bankanna Deutsche Bank og Commerzbank, verið hér á landi að undanförnu til þess að verja hagsmuni sína. Í raun er staðan sú að kröfuhafarnir eru að vinna með skilanefndunum að því að verja eigur sínar. Tryggja hag sinn umfram allt annað Fulltrúar kröfuhafanna sem staddir eru hér á landi, og Morgunblaðið hefur rætt við, eru komnir hingað til lands með eitt markmið umfram allt annað; að verja hagsmuni kröfu- hafa og tryggja að þeir fái sem mest í sinn hlut þegar kemur að því að skipta upp eign- um gömlu bankanna. Nokkuð hefur verið um að íslenskar lögfræðistofur aðstoði kröfuhafa við þessa vinnu enda er hún yfirgripsmikil og getur verið tímafrek. Óvissu gætir um hver þróunin verður á virði eignanna þegar fram í sækir. Erfitt er að sjá fyrir hvort virði þeirra minnki eða aukist eftir því sem tíminn líður. Kröfuhafarnir leggja þó áherslu að fá lausn í málið eins fljótt og hægt er og að það liggi fyrir ákvörðun um hvort selja eigi eignirnar innan skamms tíma, eða á lengra tímabili. Margir viðmælenda Morgunblaðsins telja líklegt að næstu vikur og mánuðir skipti sköpum um hvernig íslenska fjármálakerfið standi að loknu falli íslensku bankanna. Hugsanlegt er að aðeins sé hægt að tryggja skilvirk viðskipti við útlönd með því að tryggja kröfuhöfunum eignaraðild í end- urreisn fjármálakerfisins. Trúverðugleiki á kerfinu er ekki talinn geta byggst upp öðru- vísi. Málin hafa þó ekki verið til lykta leidd enn. Hugsa einungis um sinn hag  Líkur á því að kröfuhafar eignist stóran hlut í bönkunum aukast eftir því sem þrýstingur þeirra eykst  Viðmælendur telja mikilvægt að hafa hraðar hendur við endurreisn fjármálakerfisins Morgunblaðið/Árni Sæberg Kröfuhafar Fulltrúar erlendra kröfuhafa koma til fundar við skilanefnd Kaupþings á dögunum. Í HNOTSKURN » Skilanefndir bankanna hafa unniðbaki brotnu að því að tryggja það að rétt sé staðið að sölu eigna gömlu bank- anna þriggja. » Gömlu bankarnir Glitnir og Kaup-þing eru þegar búnir að óska eftir greiðslustöðvun. Það hefur ekki enn verið gert í tilfelli gamla Landsbankans. » Komið hefur fram í Morgunblaðinuað erlendir kröfuhafar hafa litið svo á að íslensk stjórnvöld hafi mismunað innstæðueigendum á grundvelli þjóð- ernis með því að tryggja allar innstæður í bönkum hér á landi en ekki í útlöndum. » Íslensk stjórnvöld hafa ítrekað fyrriyfirlýsingar sínar um að allar inn- stæður í íslenskum bönkum séu trygg- ar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.