Morgunblaðið - 26.11.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.11.2008, Blaðsíða 19
Fréttir 19INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 STJÓRN Bandalags háskólamanna hvetur stjórnvöld til að standa vörð um velferðarþjónustu og menntun á erfiðum tímum. Stjórn BHM telur það ekki þjóna hagsmunum samfélagsins að draga saman seglin í opinberri þjónustu eða framkvæmdum á slíkum tímum en þeim mun mikilvægara að vernda störf og viðhalda þjónustu á vegum hins opinbera, að því er fram kemur á vefsíðu samtakanna. Stjórnvöld standi vörð um velferð Morgunblaðið/Golli Eftir Birkir Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | Mikill mannfjöldi, eða um 400 gestir, þáði heimboð jólasveinanna í Dimmuborgir síð- astliðinn laugardag í þokkalegasta veðri. Vetur konungur heilsaði gestum og sveinunum síkátu með hvítum snjó sem þakti trjágreinar og sérkennilegar bergmyndanir Dimmuborga. Jólasveinarnir voru þar allir mættir, níu að tölu og skemmtu sér og börnunum góða stund. Eftir það var öllum viðstöddum boðið að þiggja veitingar í Skjólbrekku. Halda sig í Dimmuborgum Um næstu helgi og fram til jóla verða sveinarnir með uppákomur á heimavelli sínum í Dimmuborgum og á ferð um Mývatnssveit svo sem verið hefur við vaxandi vinsældir í jólamánuðinum undanfarin ár. Þeir verða ekki einir í þessu aðventu- stússi sveinarnir, ferðaþjónustuað- ilar í sveitinni verða með ýmsar uppákomur um helgar fram til jóla. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Líf og fjör Fjöldi manns skemmti sér í Dimmuborgum með íslensku jóla- sveinunum um síðustu helgi en þar koma þeir saman reglulega til jóla. Jólasveinarnir í Dimmuborgum AÐALFUNDUR Samtaka sunn- lenskra sveitarfélaga, sem haldinn var í síðustu viku hefur sent frá sér ályktanir um hvernig styrkja skuli grunnstoðir sunnlensks sam- félags. í ályktun fundarins er m.a. vikið að styrk sunnlensks atvinnulífs og því hafnað að sunnlensk orka verði nýtt til stóriðjuuppbyggingar utan fjórðungsins. Hvað menntamál varðar er lögð rík áhersla á uppbyggingu mennt- unar á öllum skólastigum og góðr- ar aðstöðu til fjarkennslu í öllum fjórðungnum. Skorað er á stjórn- völd m.a. að koma á fót embætti minjavarðar á Suðurlandi, að koma á laggirnar svæðisútvarpi fyrir Suðurland og að tryggja fjár- magn til Háskólaseturs Suðurlands og annarra þekkingasetra á Suð- urlandi. Hvað varðar samgöngumál er þess m.a. krafist að tvöföldun Suð- urlandsvegar verði flýtt, að sem fyrst verði ráðist í brúarsmíði yfir Hvítá og jarðgöng í gegnum Reyn- isfjall. Ennfremur er skorað á stjórn- völd að ljúka nýbyggingu Heil- brigðisstofnunar eins og til stóð. Einnig er vakin athygli á því að sá niðurskurður sem stjórnvöld krefj- ast af heilbrigðisstofnunum mun leiða af sér tilflutning á þjónustu og fjármagni til höfuð- borgarsvæðisins. Í því felist engin sparnaður heldur aukin útgjöld og fyrirhöfn fyrir Sunnlendinga. Stoðir at- vinnulífsins styrktar Í KJÖLFAR orkuráðstefnunnar GEO2 í Bilbao á Spáni fyrr í mánuðinum hafa fjórtán erlend fyrirtæki og rannsóknaaðilar fundað með fulltrúum ís- lenskra orkufyrirtækja frá Enterprise Europe Network (EEN) á Íslandi þar sem rætt var um möguleika á samstarfi. Kristín Halldórsdóttir verkefnisstjóri EEN sótti ráðstefnuna fyrir hönd níu íslenskra fyrirtækja. „Það var gríðarlegur áhugi á íslensku orkufyrir- tækjunum. Ég vona að úr þessu komi samningar við erlenda aðila um að yf- irfæra okkar tækni og þekkingu í orkugeiranum til annarra landa en það felur í sér mikil viðskiptatækifæri,“ segir Kristín. „Enterprise Europe Network er einn stærsti vettvangur tækni- og við- skiptasamstarfs í Evrópu en netverkið var formlega opnað á Íslandi í sl. mánuði. Með því opnuðust nýjar gáttir fyrir íslensk fyrirtæki sem vantar aðstoð við að stunda viðskipti og rannsóknir í Evrópu,“ segir í tilkynningu. Íslenskum orkufyrirtækjum sýndur mikill áhugi TOYOTA á Íslandi stendur fyrir keppni um flottustu piparkökubíl- ana. Keppt er í tveim flokkum. jeppa- og fólksbílaflokki. Einu skil- yrðin eru þau að bílanir séu úr pip- arkökudeigi og smakkist vel. Tekið er á móti piparkökubílum í keppn- ina hjá söluaðilum Toyota í Kópa- vogi, Reykjanesbæ, Egilsstöðum, Selfossi og Akureyri til 10. desem- ber nk. Í verðlaun fyrir hvern flokk er 50.000 kr gjafabréf. Keppni um besta piparkökubílinn Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is NEYTENDASTOFA hefur hótað að beita fasteignafyrirtækið Stóreign dagsektum þar sem fyrirtækið hefur ekki farið eftir banni stofnunarinnar við að nota fullyrðinguna „Fremstir í atvinnufasteignum“ í auglýsingum sínum sem og á vefsíðu fyrirtækisins. Villandi fullyrðingar Neytendastofa hefur bannað Stór- eign að nota ofangreinda fullyrðingu þar sem hún brýtur í bága við 5. og 6. gr. laga um eftirlit með viðskiptahátt- um og markaðssetningu. Það er mat Neytendastofu að full- yrðingar í auglýsingum sem fyrirtæk- ið gæti ekki fært sönnur á séu villandi og því sé um óréttmæta viðskipta- hætti að ræða. Þá vísi auglýsingar með lýsingarorði í efsta stigi með óbeinum hætti til þeirra yfirburða sem auglýsandi hafi yfir keppinauta sína. 50 þúsund kr. dagsektir verði ekki farið að banni Þar sem Stóreign hefur ekki farið að banninu ákvað Neytendastofa 18. nóvember sl. að leggja dagsektir á Stóreign. Verði ekki farið að banni stofnunarinnar innan fjórtán daga frá dagsetningu sektarákvörðunarinnar skal Stóreign greiða 50.000 kr. í sekt á dag. Sektir vegna villandi slagorðs Morgunblaðið/Golli Opinn fundur á vegum BSRB í dag kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89 Á fundinum munu fulltrúar viðskiptabankanna kynna úrræði sem þeir bjóða viðskiptavinum sínum upp á til að mæta áföllum heimilanna vegna efnahagsástandsins Framsögu hafa Helgi Bragason Kaupþingi Una Steinsdóttir Glitni Anna Bjarney Sigurðardóttir Landsbanka Atli Örn Jónsson Byr Fundarstjóri Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal Hvað gerir bankinn fyrir þig?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.