Morgunblaðið - 26.11.2008, Síða 23

Morgunblaðið - 26.11.2008, Síða 23
TÍSKAN tekur á sig ýmsar myndir og oft sækja hönnuðir innblástur síns nánasta umhverfis og þá jafn- vel náttúrunnar. Það má leiða að því líkur að indverski hönnuðurinn Rohit Bal hafi notað páfuglinn og hans magnaða stél sem fyrirmynd að kjól sem hann sýndi á tískusýn- ingunni „Chivas in Fashion Tour 08“ í Nýju-Delí nýverið. Kjólinn breiðir sýningarstúlkan út líkt og páfuglinn stél sitt. Sýningin var annars fjölbreytt og meðal hönnuða sem þar sýndu voru Vikram Phadnis, Varun Bahl, Malini Ramani, Rohit Gandhi og Rahul Khanna. Flíkurnar voru jafn ólíkar og þær voru margar. REUTERS Í anda páfuglsins Daglegt líf 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 Only 16 lots left to build your new dream Orlando Vacation Home! Choose a 4 ,5 or 6 bedroom home, low down payment and financing available! Hurry and call your Orlando home experts today... LAST CHANCE Windsor Hills Resort Thorhallur Gudjonsson at Gardatorg - 896 8232 Meredith Mahn in Orlando at (321) 438 5566 www.LIVINFL.com Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is ÓNÆMIS er farið að gætahjá höfuðlús gegn þeimlúsadrepandi efnum semnotuð hafa verið um langt skeið. Þetta hefur til dæmis verið staðfest í Danmörku með rann- sóknum. Á fundi sem haldinn var í Svíþjóð fyrir skömmu var stofnaður sam- starfshópur höfuðlúsarsérfræðinga, einn frá hverju landi. Markmið sam- starfshópsins er að samræma með- ferðarleiðbeiningar, standa saman að rannsóknum til að auka þekkingu og skilning á höfuðlúsinni, samræma átaksverkefni og þjálfun þeirra sem koma að slíkum málum og halda uppi umræðu um málefnið. Fulltrúi Íslands í hópnum er Ása St. Atla- dóttir sýkingavarnahjúkrunarfræð- ingur hjá landlæknisembættinu. Að sögn Ásu hefur það verið þekkt í nokkurn tíma, að ónæmi gegn lúsalyfjum hefur verið að aukast. Þessi þróun hefur verið staðfest með rannsóknum erlendis en engar slíkar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi. Að sögn Ástu var sú stefnubreyting gerð árið 2004 að fólki var ráðið frá því að nota al- gengt sjampó en að færa sig þess í stað í sterkari lausnir. Brögð voru að því að fólk taldi sig fara eftir öllum leiðbeiningum varðandi notkun á sjampóinu, en engu að síður sat lúsin sem fastast í hárinu. Mikilvægt að kemba hárið Nýlega er komið á markaðinn nýtt efni sem lúsin hefur ekki myndað ónæmi gegn. Að sögn Ásu er þetta sílíkonefni sem nefnist dímetíkon og hefur sérleyfisheitið hedrin. Efnið fæst í apótekum eins og önnur lyf gegn höfuðlús. Meðferð gegn lús með dímetíkon er alveg eins og með öðrum efnum. Fyrst þarf að kemba hárið með góðum og þéttum lúsa- kambi til að sannreyna að í því leynist lifandi lús. Síðan er efninu dreift í þurrt hár og hársvörð og lát- ið vera í hárinu a.m.k. 8 klukku- stundir. Meðferðin er svo endur- tekin eftir 7 daga. Sem fyrr segir er búið að stofna samnorrænan hóp til að berjast gegn höfuðlúsinni. Eitt af hlut- verkum hópsins er að standa fyrir víðtækum rannsóknum á lúsinni og mun hún væntanlega ná til Íslands. Að sögn Ásu hefur því verið haldið fram að lúsin flytji ekki með sér neina sjúkdóma, en þetta atriði hef- ur aldrei verið sannað með rann- sóknum. Þá er ekki vitað hvort lúsin gengur í árstíðarbundnum sveiflum eins og rjúpan. Þessi atriði og fleiri þarf að rannsaka, að sögn Ásu. Höfuðlúsin er hvimleitt fyrirbæri sem blossar gjarnan upp á haustin, fljótlega eftir að skólar hafa verið settir. Eins koma gjarnan gusur þegar börn koma úr skólafríum, t.d. á haustin og um jól og áramót. Að sögn Ásu er lúsafaraldur skráningarskyldur sjúkdómur og berast yfirleitt um 300 tilkynningar á ári hverju. Sölutölur um lúsaeyð- andi efni benda hins vegar til þess að mörg þúsund manns kaupi efnin. Lúsin er ekki aðeins hvimleitt fyr- irbæri heldur einnig kostnaðarsamt. Ása segir að embætti landlæknis vinni í nánu samstarfi við skóla- hjúkrunarfræðinga. Hins vegar hafi starfshlutfall skólahjúkrunarfræð- inga farið minnkandi á höfuðborgar- svæðinu og þeir haft minni tíma til að sinna þessum málaflokki. Því sé vilji til þess að reyna að fá foreldra til að vera virkari í baráttunni gegn lúsinni. Nánar: www.landlaeknir.is. Lúsin er að verða ónæm fyrir lyfjum Kambur Þéttur og góður hárkambur er mikilvægur í baráttunni gegn lús. Þúsundir skammta seljast á ári hverju hér á landi Hvað er lús? Höfuðlúsin er lítið skorkvikindi sem hefur lagað sig að manninum og lifir sníkjulífi í mannshári á höfði og nærist á því að sjúga blóð úr hársverðinum. Hún er ekki talin bera neina sjúkdóma og er því skaðlaus hýslinum. Hverjir geta smitast? Allir geta smitast en staðfest smit er algengast hjá 3-12 ára börnum. Höfuðlúsasmit er ekki talið bera vitni um sóðaskap. Mikilvægt er að þeir sem greinast með höfuð- lús eða forráðamenn þeirra bregð- ist strax við smitinu til að komið sé í veg fyrir dreifingu til annarra. Mælt er með því að foreldrar kembi börn sín vikulega til að leita að lús. Hvernig smitast lúsin? Nú er talið líklegast að lúsin smit- ist nær eingöngu frá höfði til höf- uðs. Því er mikilvægt að foreldrar fylgist vel með höfði barna sinn í stað þess að standa í stór- hreingerningum þegar lús kemur upp á heimilinu. S&S  Konur þola áfengi verr en karlar.  Áfengisneysla hefur sér- staklega skaðleg áhrif þegar líkaminn er enn að þroskast.  Stöku sinnum og í hófi; minni líkur á neikvæðum afleiðingum.  Áfengisneysla er ekki einka- mál þess sem neytir. Áherslupunktar Hófleg og óhófleg neysla áfengis Rafn Jónsson, verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna á Lýðheilsustöð. hollráð um heilsuna Neysla áfengis hefur veriðvið lýði á Íslandi frá upp-hafi byggðar, með ölluþví sem henni fylgir. Því er eðlilegt að fólk spyrji hvort ekki sé óhætt að neyta áfengis í hófi – en við þeirri spurningu er ekkert ein- falt svar. Vegna þess hve líkaminn bregst misjafnlega við áfengi er erf- itt að segja ákveðið til um hættulaus mörk áfengisneyslu. Þeir sem neyta áfengis þurfa að vera meðvitaðir um þá líkamlegu- og félagslegu áhættu sem fylgt getur áfengisneyslu; því meira magn áfengis sem drukkið er, því meiri hætta. Að auki er kynja- munur á því hvernig líkaminn bregst við áfengi, meðal annars út frá líf- fræðilegum orsökum þola konur áfengi verr en karlar. Konur eru yf- irleitt minni og léttari en karlar. Þær hafa minna vatn í líkamanum en vatn þynnir út áfengið. Þá hafa þær minna af ensími sem brýtur niður áfengi svo það hverfi úr líkamanum. Skaði Víða erlendis hafa verið gefin út viðmið fyrir bæði kynin um hvað teljast megi hófdrykkja en hérlendis hafa slík viðmið ekki verið sett með formlegum hætti. Markmið með slíkum viðmiðum er ekki að segja til um hvað sé æskilegt magn að drekka heldur gefa hugmynd um hvar mörkin gætu legið og þá hættu á heilsuskaða sem getur fylgt því að fara yfir viðmiðin. Neyslumynstur fólks er mismunandi; annars vegar getur verið um að ræða að mikið magn af áfengi sé drukkið í hvert skipti sem áfengis er neytt og hins vegar drykkju yfir langt tímabil en minna áfengismagns neytt í hvert skipti. Vegna þessa er talað um skammtíma- eða langtímaskaða vegna áfengisneyslu. Þegar mikils áfengis er neytt á skömmum tíma geta skaðleg áhrif m.a. verið slys eða áverkar vegna falls eða ofbeldis, óvarið kynlíf eða áfengiseitrun. Skaðleg áhrif reglulegrar áfeng- isneyslu yfir langt tímabil geta hins vegar verið ýmsir sjúkdómar s.s. krabbamein, sykursýki, skemmdir á heila, lifur og brisi. Engin áfengisneysla Fólk í ákveðnum hópum ætti ekki að neyta áfengis, þar er m.a. átt við barnshafandi konur, þá sem eru á lyfjum s.s. verkjastillandi, svefnlyfj- um, krampalyfjum, hjarta- og blóð- þrýstingslyfjum og öllum lyfjum með rauðum þríhyrning og þá sem áður hafa neytt áfengis óhóflega. Fólk með sjúkdóma ætti að fara að ráðleggingum læknis varðandi áfengisneyslu. Og síðan er vert að ítreka að samkvæmt 18. gr. áfengis- laga er óheimilt að selja, veita eða afhenda áfengi þeim sem eru yngri en 20 ára. Lögunum er m.a. ætlað að vernda heilsu ungs fólks því áfengis- neysla hefur sérstaklega skaðleg áhrif þegar líkaminn er enn að þroskast og þessi hópur á því alls ekki að neyta áfengis. Áfengisneysla hefur áhrif á fleiri en neytandann Neysla áfengis hefur áhrif á heilsu neytandans, dómgreind og hæfileika til að framkvæma af skynsemi. Það er því ærin ástæða til að vera með- vitaður um eigin áfengisneyslu og sýna þar skynsemi – einnig vegna annarra. Áfengisneysla er nefnilega ekki einkamál þess sem neytir áfengis; hún hefur oftar en ekki líka áhrif á vini og vandamenn, sem og samfélagið allt. Áfengi er engin venjuleg neyslu- vara og það þarf að umgangast hana sem slíka. Sé áfengis einungis neytt stöku sinnum og í hófi má finna þau menningartengdu áhrif sem oftast er sóst eftir og minnka líkur á skað- legum afleiðingum áfengisneyslu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.