Morgunblaðið - 26.11.2008, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 26.11.2008, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Mikil áskor-un felst íþví fyrir ráðamenn ríkis og sveitarfélaga að fjármagna rekstur hins opin- bera næsta árið. Það er ljóst að bankakreppan setur fjár- málum hins opinbera veru- legar skorður. Bæði verður erfiðara og dýrara að fjár- magna halla á ríkissjóði og rekstur sveitarfélaga. Um leið dragast tekjur saman vegna samdráttar í efnahagslífinu. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að alþjóðlega matsfyrir- tækið Standard & Poor’s spá- ir því að skuldir ríkissjóðs verði 130% af vergri lands- framleiðslu. Það er mun hærra hlutfall en gert er ráð fyrir í áætlun ríkisstjórn- arinnar um efnahagsstöðug- leika sem send var Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum. Þar er spáð að hlutfall skulda verði nær 109%. Hvað sem öllum prósentum líður er ljóst að skuldir hins opinbera munu aukast stór- kostlega frá því sem nú er. Útlit er fyrir að til að fjár- magna íslensku bankana, Seðlabankann og fyrirsjáan- legan halla á ríkissjóði þurfi ríkið að afla að minnsta kosti 700 milljarða króna. Þá eru lánin frá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum og öðrum ríkjum til að styrkja gjaldeyrisvara- forðann undanskilin. Orðstír íslensks efnahagslífs hefur beðið hnekki á al- þjóðlegum fjár- magnsmarkaði. Matsfyrirtæki hafa lækkað lánshæfismat íslenska rík- isins frá því að bankarnir voru yfirteknir. Síðast Standard & Poor’s í fyrradag. Það verður nánast ómögulegt að fjár- magna hallarekstur hins op- inbera með erlendu fé. Þá munu opinberar aðilar keppa um þær krónur sem þarf að ávaxta á innlendum markaði. Þar eru lífeyrissjóð- irnir stærstir. Ríkið mun þar af leiðandi fara í samkeppni við banka um sparnað al- mennings með útgáfu ríkis- skuldabréfa. Á það hefur verið bent að ríkið getur prentað peninga til að standa við innlendar skuldbindingar. Í þeim efnum eru hendur ríkisstjórnarinnar einnig bundnar. Helst óttast sérfræðingar að aukin pen- ingaprentun leki út á gjald- eyrismarkaðinn og veiki krón- una. Eitt meginmarkmið samningsins við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn var einmitt að styrkja krónuna gagnvart er- lendum gjaldmiðlum. Vegna þessara aðstæðna er nauðsynlegt að skera niður ríkisútgjöld og forgangsraða verkefnum. Gæluverkefnin og góðærið er búið hjá stjórn- málamönnum eins og öðrum. Góðærið er búið hjá stjórnmálamönnum}Fjármögnun skulda Það þokast írétta átt, svaraði Gro Lindstad spurð hvort margt hafi breyst þau rúmu 30 ár sem UNI- FEM, þróunarsjóður Samein- uðu þjóðanna í þágu kvenna, hefur starfað. Samtökin fund- uðu á Hótel Holti í gær undir formerkjunum: Líf án ofbeld- is er réttur allra. Sextán daga átak gegn kynbundu ofbeldi hófst á sunnudag í 17. sinn. Lindstad, sem er hátt sett hjá UNIFEM, segir afar mikil- vægt að virkja karlmenn bet- ur í baráttunni gegn kyn- bundnu ofbeldi. Það hefur einmitt gefist vel hér á landi, en síðustu ár hefur til dæmis karlahópur Femínistafélags- ins barist gegn kynbundnu of- beldi. Baráttan hefur vakið athygli. Það er með þessi mál sem önnur sem þjóðin tekst á við núna að mikilvægt er að bæði kynin komi að lausn þeirra. Þannig næst besti árang- urinn. Bæði kynin geta leiðst út í vændi, orðið fyrir kynferðis- legu ofbeldi og heimilisofbeldi. Hins vegar vitum við að konur eru í meirihluta þeirra sem verða fyrir slíku. Nú á haustmánuðum breyttist Ísland. Margir eiga í fjárhagserfiðleikum, missa vinnuna. Afleiðingarnar koma smátt og smátt í ljós. Efna- hagskreppa rífur í. Fjárhags- áhyggjurnar og atvinnuleysið auka álagið á heimilin. Á svona tímum ríður á að bar- áttunni gegn kynbundnu of- beldi fari ekki aftur heldur verði hún efld. Ár er síðan UNIFEM hleypti af stokkunum átakinu „Segjum NEI við ofbeldi.“ Milljónir hafa skrifað undir listann á heimasíðum samtak- anna. Yfir 10 þúsund hér. Af síðustu 20 skráningunum eru tveir þriðju konur. Stöndum vörð gegn kynbundnu ofbeldi. Segjum nei við auknu ofbeldi almennt og komum í veg fyrir það. Öll. Segjum nei við auknu ofbeldi og komum í veg fyrir það} Kynin saman gegn ofbeldi É g hrökk hálfpartinn í kút í fyrra- dag þegar hátt settur banka- maður sagði við mig að rof hefði verið á milli stjórnmála og við- skipta undanfarin ár. Það væri hluti skýringarinnar að svo fór sem fór í ís- lensku efnahagslífi. Bankahrun og stórfelldar skuldir hins opinbera. Hann sagði að það þyrfti að vera meiri tenging þarna á milli. Ástæðan fyrir því að ég hrökk í kút er þessi: Þegar ég var 23 ára stóð ég frammi fyrir þeirri ákvörðun að skrá mig í stjórnmálaflokk. Ég leit á mig sem frjálshyggjumann og barð- ist gegn yfirgangi ríkisins á öllum sviðum. Hvers vegna átti ég þá að taka þátt í starfi stjórnmálaflokks sem hefði það markmið að komast til valda og stjórna ríkinu sem ég í raun fyrirleit? Þegar ég íhugaði þetta betur sá ég að einu stjórnmála- samtökin sem ég gat tekið þátt í voru Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Í raun má segja að tilgangur félagsins hafi verið að gera sjálft sig óþarft. Það var draumsýnin sem við unnum að. Nokkru síðar komst ég að því að þetta var ekkert ólíkt heimspeki sem Ayn Rand setti fram um miðja síðustu öld. Hún sagðist vera áhugasöm um stjórnmál af einni ástæðu. Til að upplifa þann dag að hún þyrfti ekki að hugsa um stjórnmál og gæti unnið að hugðarefnum sín- um og markmiðum í þeirri vissu að afskipti ríkisins myndu ekki eyðileggja þau áform. Líf hennar, vinna og framtíð myndi ekki stjórnast af vilja ríkisins eða þeirra sem stjórnuðu því. Ég hélt satt að segja að við værum að kom- ast nær því markmiði. Bankamaðurinn hafði getað unnið að markmiðum sínum án þess að þurfa að íhuga pólitík mikið. Hann var ekki hluti af klíkuveldinu sem Jón Baldvin Hanni- balsson sagði í Morgunblaðinu í gær að hefði lengst af viðgengist í venslum stjórnmála og viðskipta á lýðveldistímanum. Jón Baldvin vill hreinsa kerfið og betrumbæta. Ég tel heillavænlegra að draga úr umsvifum þess og takmarka. Greinilegt er að hugsjón mín um fullan að- skilnað stjórnmála og viðskipta hefur orðið undir um sinn. Ríkið hefur aftur tögl og hagldir í viðskiptalífinu og mörg fyrirtæki eiga líf sitt undir ákvörðun pólitískra umboðsmanna. Um leið er almenningur skuldsettur í gegnum hið opinbera. Ástæðan er ekki sú að frjálshyggjan hafi tapað. Ástæðan er pilsfaldakapítalisminn, sem á uppruna sinn í sósíaldemókratískum flokkum, í ætt við þá sem Jón Baldvin stýrði. Þetta eru flokkar sem vildu sameina „það besta“ úr kapítalisma og sósíalisma. Gefa kapítalistunum lausan tauminn en setja þeim skorður með flóknu reglu- verki. Fyrir vikið er meðal annars búið að skuldbinda al- menning til að ábyrgjast skuldir annarra. Með þessum rökum einum er hægt að segja að nauð- synlegt sé að rof verði á milli viðskipta og stjórnmála. Bankamaðurinn hafði því rangt fyrir sér. Björgvin Guðmundsson Pistill Rof milli viðskipta og stjórnmála Verða bílar brátt að útflutningsvöru? FRÉTTASKÝRING Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is M eð afgreiðslu laga um endurgreiðslu virð- isaukaskatts og vörugjalda á bifreið- um opnast fólki leið til að selja bíla sína úr landi á hag- kvæmari hátt en áður. Í þeim til- fellum sem lán hvílir á bílnum þurfa skuldarar þó að semja við lánar- drottin um framkvæmd útflutnings- ins. Viðmælendur Morgunblaðsins eru sammála um að markaður er- lendis sé farinn að þrengjast og frum- varpið megi þess vegna ekki seinna vera. Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður Árna M. Mathiesen fjármálaráð- herra, sem leggur fram frumvarpið, segir að í kostnaðarmati fjármála- ráðuneytisins sé gert ráð fyrir að um 5.000 bílar verði seldir úr landi í kjöl- far þess að frumvarpið hefur verið samþykkt. Mælt var fyrir frumvarp- inu á Alþingi í gær. „Með því er fólki gert kleift að flytja út bifreiðar, hugs- anlega með einhverri hagnaðarvon,“ segir Böðvar. Þröstur Ríkharðsson, yfirmaður lögfræðisviðs hjá Avant, segir að Av- ant reyni af fremsta megni að koma á móts við skuldunauta sína, ekki síst í því augnamiði að sitja ekki uppi með fjölda bíla. Hann segir þó ekki hafa reynt á þá möguleika sem frumvarpið veitir, þar sem það hefur enn ekki verið samþykkt. „Við munum skoða hvert mál með viðkomandi aðila eins og við höfum gert hingað til,“ segir Magnús. Í frumvarpinu segir m.a.: „Fjár- hæð endurgreiðslu skal miða við það vörugjald sem greitt var við innflutn- ing ökutækisins. Sú fjárhæð skal lækka um 2% fyrir hvern byrjaðan mánuð eftir það þar til 100% fyrningu er náð.“ Kjartan Georg Gunnarson, fram- kvæmdastjóri SP fjármögnunar, bendir sérstaklega á að fyrirtækið hafi boðið fólki að frysta lán sín löngu áður en ríkisstjórnin fór fram á það og undanfarna mánuði hafi SP fjár- mögnum samið við þúsundir skuld- ara. „Við erum að semja við fólk á hverjum einasta degi um að aðstoða það og koma til móts við það,“ segir Kjartan Georg. Hann segir frum- varpið að einhverju leyti gagnast skuldunautum SP fjármögnunar, en telur virði bílsins þó vera afskrifað fullhratt eða um 24% á ársgömlum bíl. Frumvarpið segir hann þó vera jákvætt, það stækki markað fyrir ís- lenska bíla úr 300 þúsund manns í 300 milljónir. Ingólfur Þorsteinsson, inn- heimtustjóri hjá Lýsingu, segir að þegar frumvarpið verður gengið í gegn verði skoðað hvaða leiðir eru færar fólki sem skuldar bílalán og vill losna við það. „Við erum í þeirri vinnu akkúrat þessa dagana. Þetta felur þó alltaf í sér að samningur við Lýsingu sé gerður upp,“ segir hann. Öll mál verði þó skoðuð í samvinnu við skuld- ara. Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig- enda, bendir á að frumvarpið sé þannig úr garði gert að það eigi ein- ungis við um yngri bíla. Með frum- varpinu sé tryggt að hægt sé að koma eignum landsmanna í verð að ein- hverju leyti og fá tekjur til baka í gjaldeyri. „Í stað þess að láta eign- irnar glata verðgildi sínu með því að grotna hér niður. Þetta getur hjálpað fólki og fyrirtækjum sem eru með bíla, af því að það er mjög treg bíla- sala á markaði hér núna,“ segir Run- ólfur. Hann bendir þó á að ákveðin atriði þurfi að skýra betur, eins og í þeim tilfellum sem lán hvílir á bíln- um. Runólfur hefur heyrt það á skot- spónum að fagaðilar hyggi á þjónustu við almenning í formi umboðssölu. Morgunblaðið/RAX Óseldir bílar Mjög margir bílar eru á hvern Íslending, eða um 600 á hverja þúsund íbúa. Brátt verður hagkvæmara að selja þá úr landi. VIÐMÆLENDUR Morgunblaðsins bentu á að frumvarpið mætti ekki seinna vera þar sem markaður erlendis er farinn að þrengjast. Tíminn vinnur ekki með Íslend- ingum. Gríðarlegur áhugi virðist þó vera á bílum frá Íslandi ef marka má reynslu markaðsfyrirtækisins Nordic eMarketing sem fékk það verkefni frá bílasölunni Heklu í byrjun október að markaðssetja þá hugmynd að selja alla upp- ítökubíla úr landi. „Ljóst var á þeim tíma að íslenski markaður- inn var algjörlega frosinn,“ segir Haraldur Friðgeirsson, verk- efnastjóri hjá Nordic eMarketing. Vefsíðan www.nordiccarsale.is var opnuð og fréttatilkynningum var dreift á netinu. Viðbrögðin voru mjög sterk, heimsóknir á vefsíðuna skiptu þúsundum, fyr- irspurnir í gegnum síma skiptu hundruðum. Mestur var áhuginn á Norðurlöndunum og Finnar voru þar fremstir í flokki. MIKILL ÁHUGI ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.