Morgunblaðið - 26.11.2008, Síða 26
ES og Sjálfstæð-
isflokkurinn
MÖRGU er ósvarað
varðandi ES (og
stendur vonandi til
bóta), en margt er líka
vitað. Þess vegna eiga
menn ekki að kippa sé
upp við ákvörðun um
aðildarumsókn. Hana
má taka án mikilla
átaka og án klofnings
flokka.
Margvíslegur misskilningur er
uppi um stöðu einstakra mála. Ég tek
fáein dæmi af handahófi: Gagnstætt
því sem ráða má af umræðunni hér
eru fjárskuldbindingar í leigusamn-
ingum alltaf, þar sem ég þekki til,
bundnar vísitölu nema enn óhagstæð-
ari ákvæði fyrir leigutaka eigi við. Í
draumaríki ES, þar sem ætla mætti
að lántakendur fengju greitt fyrir að
skulda, tryggja bankar sér vörn gegn
verðbólgu með ýmsum hætti, breyti-
legum vöxtum, uppsagnarrétti, stutt-
um lánstíma o.s.frv. Ég þekki ekki
þessa miklu umhyggju fyrir skuld-
urum sem menn lýsa svo fjálglega.
Það er nú enn eins og var að þeir töl-
uðu mest um Ólaf konung helga sem
hvorki höfðu heyrt hann né séð.
Verkefni stjórnmálanna hljóta líka
að vera að draga úr þeim miklu vænt-
ingum sem gagnslausir fjölmiðlar
hafa byggt upp um hið komandi fyr-
irmyndarríki með umfjöllun sinni.
Evra verður t.d. ekki gjaldmiðill hér
næsta áratug eða svo, hvernig sem
um aðild fer. Það eina sem við getum
verið viss um er að þessar
konur sem biðu í röðum í
utanríkisráðuneytinu eft-
ir stöðu í Öryggisráðinu
munu nú stilla sér upp í
nýja ES-röð.
Sjálfur tel ég fremur
ólíklegt að Íslendingar
muni á endanum sam-
þykkja aðild að bandalagi
sem var reiðubúið, hver
einasta þjóð sem vald
hafði, til að svelta Ísland
til hlýðni (bókstaflega).
Tvær þjóðir komu okkur til aðstoðar
þegar á reyndi, hvorug í þessum vina-
hópi, en svo ein valdalaus til viðbótar
þar í ES. Íslendingar munu minnast
myrkra októberdaga 2008 þegar þjóð-
in reiddi sig á íslenskan landbúnað og
bændur sem ekki brugðust. Við mun-
um ekki þakka þeim með því að farga
þeim. ES býður okkur daglega vel-
komna. Hvort þar skyldi undir búa
velvild í garð okkar Íslendinga eða
ásælni í auðlindir verður hver að svara
fyrir sig.
Einar S. Hálfdán-
arson skrifar um
Evrópumál
»ES býður okkur dag-
lega velkomna.
Hvort þar skyldi undir
búa velvild í garð okkar
Íslendinga eða ásælni í
auðlindir verður hver að
svara fyrir sig.
Einar S. Hálfdánarson,
Höfundur er hæstaréttarlögmaður og
löggiltur endurskoðandi.
26 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008
HEIÐRAÐI Páll
Magnússon útvarps-
stjóri.
Þú átt mína samúð í
þeirri viðleitni þinni
að hafa taumhald á
fyrrverandi starfs-
manni RÚV, hafi hann
tekið gögn úr útvarp-
inu ófrjálsri hendi og
notað í pólitískum til-
gangi. Ég vona að þú teljir heldur
ekki eftir þér að koma böndum á
óheiðarlega starfsmenn sem eru
enn þá á launaskrá hjá þér og mis-
nota útvarpið sem pólitískt áróð-
urstæki. Hér á ég við útvarpsmann-
inn Hjálmar Sveinsson.
Í þættinum Krossgötur síðastlið-
inn laugardag eyddi hann drjúgum
tíma í að rakka niður bæjaryfirvöld
í Kópavogi vegna skipulagsmála án
þess að gefa þeim kost á að bera
hönd fyrir höfuð sér. Á því hafði
hann engan áhuga. Hjálmar er af
þeirri gerðinni sem vill skjóta fyrst
og spyrja svo. Það var ekki fyrr en
síðdegis í gær, þriðjudag, sem mér
barst tölvupóstur frá Hjálmari þar
sem hann biður mig um viðtal fyrir
Krossgötur á rás eitt. Ég á náð-
arsamlegast að fá að svara rang-
færslum, aðdróttunum og lygum
viku eftir að Hjálmar dembdi þeim
yfir landslýð.
Ég bið þig, Páll, að skila til hans:
Nei, takk.
Viðmælendur Hjálmars fengu í
skjóli nafnleyndar að
halda uppi ósmekk-
legum og órökstuddum
dylgjum um bæjaryf-
irvöld og svo bætti
hann við 12 mínútna
upptöku af viðtali við
talsmann minnihlutans
í bæjarstjórn, Guðríði
Arnardóttur, sem hann
mátti vita fyrirfram að
myndi tæplega halda
uppi vörnum fyrir
meirihlutann. Í inn-
gangi að þættinum
sagði Hjálmar að Guð-
ríður gagnrýndi „framgöngu bæj-
aryfirvalda harðlega“ og að hann
ætti von á því að heyra „síðan út-
skýringar yfirvaldanna í næsta
þætti“.
Með þessum hætti framfylgir
Hjálmar útvarpslögum sem segja
að stuðla beri að því að fram komi í
dagskrá rök fyrir mismunandi
skoðunum í umdeildum málum.
Þannig virðir hann siðareglur
blaðamanna um að vanda upplýs-
ingaöflun, úrvinnslu og framsetn-
ingu. Svona skilur hann lög um Rík-
isútvarpið sem gera honum skylt að
gæta „fyllstu óhlutdrægni í frásögn,
túlkun og dagskrárgerð“.
Hjálmar hefur fullkomlega gagn-
rýnislaust eftir ónafngreindum við-
mælanda sínum að viðskipti bæj-
arins og hestamannafélagsins Gusts
um lóðir hafi verið „aðför“ að hesta-
mannafélaginu. Þessari fullyrðingu
er ekki mótmælt í umfjöllun hans
þótt hún sé gersamlega fráleit.
Hins vegar býður Hjálmar mér eft-
ir á að gera athugasemd við þvætt-
inginn, sjálfsagt til þess að hann
geti sagst hafa gætt „fyllstu óhlut-
drægni“.
Nei, Páll, eftir þessar trakter-
ingar get ég ekki treyst því að mál-
flutningur minn fengi heiðarlega
meðferð í höndum Hjálmars hvort
sem er. Því skrifa ég þér þetta opna
bréf og bið Morgunblaðið um að
birta það.
Almenningi, sem slysaðist til að
hlusta á Krossgötur um síðustu
helgi, vil ég vara við að treysta
áróðrinum sem þar kom fram. Ég
vil gera fáeinar leiðréttingar í
dæmaskyni:
Bæjarsjóður keypti ekki lóðir á
Glaðheimasvæðinu af fjárvana upp-
kaupsmönnum heldur af hesta-
mannafélaginu Gusti, að frumkvæði
þess, og hestamönnum.
Ekki var gerð aðför að Gusti
heldur var félaginu tryggð glæsileg
framtíðaraðstaða á miklu betri stað,
fjarri verslanakjörnum og hrað-
braut. Hagsmunir hestamanna voru
ekki fyrir borð bornir eins og odd-
viti Samfylkingarinnar hélt fram í
þættinum. Sú fullyrðing Guðríðar er
ekki síst furðuleg í ljósi þess sem
hún sagði næst, að hún hefði viljað
beita varnöglum í lóðaleigusamn-
ingum til að segja þeim upp einhliða
þannig að Kópavogsbær gæti kom-
ist „yfir þetta svæði þegar sú
ákvörðun var tekin fyrir miklu,
miklu, miklu minni peninga heldur
en reyndin varð“.
Kostnaður við kaup bæjarins á
Glaðheimalandi er verulega ofmet-
inn, tekjur verulega vanmetnar og
byggingarmagn ofætlað. Allar þess-
ar skekkjur í þættinum halla á bæj-
aryfirvöld.
Bæjarsjóður hefur ekki tekið er-
lend lán nema til þess að endur-
fjármagna önnur eldri lán. Hins
vegar var tekið lán úr lánasjóði
sveitarfélaga vegna lóðaskila. Geng-
isþróun hefur ekki áhrif á það.
Guðríður Arnardóttir segir að öll-
um hefði mátt vera ljóst að teflt var
á tæpasta vað þegar ráðist var í
skipulag og lóðaúthlutun í Vatns-
endahlíð. Látið er hjá líða að nefna
að Samfylkingin greiddi atkvæði
með þeirri ráðstöfun. Hjálmar
Sveinsson getur lesið þessar at-
hugasemdir upphátt í þætti sínum
þótt þær séu ekki tæmandi. Hann
getur líka spilað Guðríði Arn-
ardóttur aftur þar sem hún segir að
bæjarsjóður hafi raunverulega stað-
ið þokkalega. Mér fannst það at-
hyglisverðasti punktur þáttarins að
hún væri loksins farin að við-
urkenna að rekstur bæjarins væri
góður. Hjálmar aftur á móti stendur
á Krossgötum og veit ekkert hvert
hann er að fara.
Með virðingu,
Gunnar I. Birgisson.
Opið bréf til
útvarpsstjóra
Gunnar I. Birgisson
skrifar útvarps-
stjóra opið bréf
Gunnar I. Birgisson
»Hjálmar Sveinsson
er af þeirri gerðinni
sem vill skjóta fyrst og
spyrja svo.
Höfundur er bæjarstjóri í Kópavogi.
UM ALDIR hafa
samgöngur verið afar
mikilvægur þáttur í að
skapa tækifæri af ýms-
um toga, komið fólki
saman, tengt fólk við
ættingja og nýja heima.
Þetta hefur ekkert
breyst.
Að undanförnu hefur
félagið Greenstone ver-
ið að vinna að því að kynna Ísland
sem álitlegan kost fyrir rafrænar
gagnageymslur eða svokölluð gagna-
ver en að því hafa aðrir einnig unnið
ötullega. Eigendur Greenstone eru
frá Bandaríkjunum, Hollandi og Ís-
landi. Nokkrir þeirra eiga og reka
gagnaver fyrir stærstu vefleitarvélar
heims í dag, eiga og reka tengivirki
fyrir ljósleiðara og hafa unnið í þess-
um geira í áratugi eða allt frá því að
fyrstu risatölvurnar litu dagsins ljós.
Að undanförnu hafa fjölmörg
sveitarfélög og ýmis fyrirtæki haft
samband við Greenstone, m.a. varð-
andi staðsetningu á gagnaverum.
Það er afar ánægjulegt og lýsir fram-
sýni sveitarfélaga á Íslandi. Green-
stone hefur ritað undir viljayfir-
ýsingar við 8 aðila þar
sem um er að ræða að
Greenstone fái rétt á
lóð og kynningarefni til
að koma viðkomandi
svæði á framfæri víða
um heim, afla tækni-
legra upplýsinga um
svæðin, vatnsbúskap
þeirra, kælivatn, orku-
mál, ljósleiðara og
margt fleira. Í þessu
efni hafa aðilar allt að
vinna en engu að tapa.
Allt þetta samstarf hef-
ur gengið afar vel og ár-
angur í því efni má m.a. sjá á kynn-
ingarnetsíðu fyrirtækisins,
www.greenstonenet.com. Aðalárang-
urinn er svo vissulega sá að fá al-
þjóðlegt fyrirtæki til að hýsa gögn
sín innan vébanda þessara sveitarfé-
laga og skapa atvinnu.
Áralöng reynsla eigenda Green-
stone við byggingu gagnavera, fyrir
kröfuhörðustu viðskiptavini á þessu
sviði, hefur kennt þeim þá einföldu
staðreynd að það er viðskiptavin-
urinn sem ávallt hefur rétt fyrir sér.
Þess vegna hefur Greenstone valið
nokkra staði svo væntanlegir við-
skiptavinir félagsins geti séð hag-
kvæmni við rekstur gagnavera í
hverju sveitarfélagi fyrir sig. Í því
efni hafa öll sveitarfélög mismunandi
kosti hvað varðar kælivatn, orkumál,
ljósleiðaramál, samgöngur, öryggis-
mál og síðast en ekki síst samkeppn-
ismál við aðra staði um víða veröld.
Meginviðfangsefnið er því að brjóta
ísinn varðandi Ísland og ná að heilla
viðskiptavini sem vilja staðsetja sig
hér á landi.
Mjög mikilvægt er að halda þessu
til haga. Með góðri markaðssetningu
mun Greenstone vinna ötullega að
því að vinna Íslandi allt í haginn,
finna leiðir til að ljósleiðari verði
lagður til Bandaríkjanna og brúa atl-
antsála en það er forsenda þess að Ís-
land sé kostur í boði á heimsmarkaði
gagnavera um víða veröld.
Öllum samstarfsaðilum Green-
stone er kunnugt um að ef ljósleiðari
verður ekki lagður alla leið yfir um
hafið í gegnum Ísland eru líkur minni
á því að landið verði samkeppnishæft
á þessu sviði, ekki aðeins varðandi
gagnaver heldur yfirleitt. Það er afar
mikilvægt að undirstrika að Ísland er
ekki eini kosturinn sem í boði er um
þessar mundir hvað staðsetningu
gagnavera varðar.
Fulltrúar Greenstone tóku þátt í
stórri gagnaversráðstefnu í Palm
Springs í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum nú í nóvember þar sem Ísland
og þeir staðir sem um er að ræða
komu ánægjulega á óvart. Ráð-
stefnugestir sáu þar að Ísland getur
orðið afar samkæppnishæft ef nýr
ljósleiðari verður lagður frá Íslandi
til Bandaríkjanna. Nú er verið að
leggja streng frá Íslandi til meg-
inlands Evrópu, svokallaðan Danice-
streng sem er áfangi en ekki enda-
stöð að þeirra mati.
Það að tengja land og þjóð með
þessum hætti skapar ekki aðeins
tækifæri fyrir Greenstone og aðra þá
aðila sem vilja reisa gagnaver hér á
landi, heldur skapar þetta ekki síður
tækifæri fyrir ungu kynslóðina, börn
okkar sem tengjast munu umheim-
inum betur og þetta skapar þeim
tækifæri inn í framtíðina. Með þessu
má beina nýjum viðskiptatækifærum
til landsins, nýsköpunartækifæri
ættu að aukast til mikilla muna rétt
eins og þegar við lukum við hring-
veginn og brúuðum árnar þar sem
þróaðist byggð og skapaðist atvinna.
Hér er verið að tala um mikla
flutningsgetu fyrir gögn, mun meiri
en hingað til hefur boðist og því um
að ræða þjóðleið sem getur legið frá
Evrópu til Norður-Ameríku um Ís-
land. Það var talið nægjanlegt hér á
fyrri öld að láta börn ganga óralang-
an veg í skóla eða fara ríðandi á fák-
um á milli bæja. Það urðu samt síðar
að koma vegir, betri samgöngur og
betri samgöngutæki til að bæta hag
okkar. Þessar öru breytingar þekkir
eldri kynslóð Íslendinga, foreldrar
okkar, afar og ömmur.
Við vitum að stjórnvöld hér á landi
sem og orkufyrirtæki hafa ríkan
skilning á þessu sem og þeir aðilar
sem við erum í samstarfi við. Við trú-
um því og treystum að með þessu
getum við þróað nýjar leiðir fyrir Ís-
land og að leiðarljós landsins verði
nýsköpun og frjór jarðvegur fyrir
ungt fólk til langrar framtíðar. Sókn
er því besta vörnin í þeim þreng-
ingum sem nú eru framundan en það
er undir okkur öllum komið hvort
eitthvað verður úr því sem stefnt er
að. Greenstone getur ekki lofað
kraftaverkum en það er vitað að þeg-
ar stjórnvöld sýna skilning og vilji
allra er fyrir hendi þá hafa hér orðið
til hlutir sem engan óraði fyrir.
Ljósleiðari og leiðarljós Íslands
Sveinn Óskar Sig-
urðsson segir frá
framtíðarsýn
Greenstone ehf.
»… með þessu getum
við þróað nýjar leið-
ir fyrir Ísland og að leið-
arljós landsins verði ný-
sköpun og frjór
jarðvegur fyrir ungt
fólk til langrar fram-
tíðar.
Sveinn Óskar
Sigurðsson
Höfundur er stjórnarformaður
Greenstone ehf.
MORGUNBLAÐIÐ birtir alla
útgáfudaga aðsendar umræðu-
greinar frá lesendum. Blaðið
áskilur sér rétt til að hafna
greinum, stytta texta í samráði
við höfunda og ákveða hvort
grein birtist í umræðunni, í bréf-
um til blaðsins eða á vefnum
mbl.is.
Blaðið birtir ekki greinar, sem
eru skrifaðar fyrst og fremst til
að kynna starfsemi einstakra
stofnana, fyrirtækja eða samtaka
eða til að kynna viðburði, svo
sem fundi og ráðstefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Formið er undir liðnum
Senda inn efni" ofarlega á forsíðu
mbl.is. Einnig er hægt að slá inn
slóðina www.mbl.is/sendagrein
Ekki er lengur tekið við grein-
um sem sendar eru í tölvupósti. Í
fyrsta skipti sem formið er notað
þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið, en næst þegar kerfið er
notað er nóg að slá inn netfang
og lykilorð og er þá not-
andasvæðið virkt. Ekki er hægt
að senda inn lengri grein en sem
nemur þeirri hámarkslengd sem
gefin er upp fyrir hvern efnisþátt
en boðið er upp á birtingu lengri
greina á vefnum.
Nánari upplýsingar gefur
starfs-fólk greinadeildar.
Móttaka aðsendra greina