Morgunblaðið - 26.11.2008, Síða 33

Morgunblaðið - 26.11.2008, Síða 33
Minningar 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 ✝ Emil Sigurðsson,fyrrverandi verslunarstjóri, fæddist á Berunesi á Berufjarðarströnd 29. mars 1919. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 17. nóv- ember sl. Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson trésmiður, f. 14.10. 1895, d. 13.6. 1972, og Andrea Stefanía Emils- dóttir, kennari og húsfreyja, f. 22.6. 1892, d. 28.8. 1956. Systur hans voru Valborg Sigurð- ardóttir, f. 9.1. 1921, d. 29.2. 1976, og Val- dís Sigurðardóttir, f. 2.8. 1928. Emil var ókvæntur og barn- laus. Hann stundaði allan sinn starfs- aldur verslunarstörf á Akureyri. Útför hans verður gerð frá Fossvogskapellu í dag kl. 15. Nú þegar kær bróðir og mágur hefur kvatt þetta jarðlíf er margs að minnast. Emil ólst upp hjá for- eldrum sínum á Djúpavogi þar til hann hélt til Akureyrar til náms við Menntaskólann á Akureyri. Þar hitti hann fyrir einstakt fólk sem varð til þess að dvöl hans varaði hjá þessu góða fólki í hálfa öld. Starfaði hann hjá KEA og síðar hjá Amaró, þar sem hann var verslunarstjóri, þar til hann hætti vinnu vegna ald- urs. Oft kom hann til Reykjavíkur til innkaupa fyrir Amaró eða um hátíðar og þá dvaldist hann hjá okkur. Þegar hann fluttist til Reykjavík- ur árið 1987 keypti hann íbúð í sama húsi og við búum í. Þá tók hann óskiptur til við að mála. Eftir Emil liggja margar góðar myndir, bæði í olíu og vatnslitum. Óhætt er að segja að hann hafi náð langt sem frístundamálari. Á vissum tíma æv- innar hafði hann mjög gaman af að ferðast til annarra landa og gerði víðreist. Emil var seintekinn en sannur vinur í raun. Hann var ein- staklega rausnarlegur og gjafmild- ur. Hans síðasta verk var að ganga frá þeim jólagjöfum sem hann ætl- aði að gefa litlu frændsystkinum sínum en þá var hann orðinn mjög veikur. Öll sakna þau frænda sem var svo gott að heimsækja. Nú fær hann hinstu hvílu við hlið foreldra sinna. En nú er þessi góði drengur genginn á guðs vegum og allt er orðið hljótt. Og allir taka eins í sama strenginn, að allt of snemma komi þessi nótt. Því döggvast brár og hjörtun myrkvast harmi, og hart er það, að ganga þessi spor. Vér hneigjum döpur höfuð vor að barmi í heitri samúð, það er kveðja vor. (Jens Hermannsson) Hvíl þú í friði. Góða nótt. Þín systir og mágur, Valdís og Jón. Ég vil í nokkrum orðum minnast elskulegs móðurbróður míns Emils Sigurðssonar. Emil frændi var stór hluti af fjöl- skyldu okkar svo lengi sem ég man. Alltaf var beðið með eftirvæntingu þegar von var á Emil frænda frá Akureyri eða úr ferðalögum frá út- löndum. Aldrei brást að hann færði okkur systkinunum eitthvað sem gladdi. Ekki var síður spennandi að fara alla leið til Akureyrar þar sem hann hélt heimili með Sæbjörgu og Bjössa. Þar tróð maður sig út af Lindusúkkulaði og drakk framandi drykki eins og Jolly Cola og Mix í lítratali. Þegar Emil fluttist til Reykjavík- ur keypti hann íbúð í sama húsi og foreldrar mínir og bjó þar til dán- ardags. Emil var ekki mannblendinn og ekki tranaði hann sér fram. En hann fylgdist mjög vel með því sem við kom fjölskyldunni og hafði mik- inn áhuga á velferð okkar allra. Á síðari árum áttu svo yngstu fjölskyldumeðlimirnir góðan að í kjallaranum í Blönduhlíðinni. Það var fastur liður að skreppa niður til Emils, fá súkkulaðibita, og leika sér með steinasafnið hans og fleiri skemmtilega hluti sem hann átti. Einn var sá dagur sem var Emil mikilvægari en flestir en það var af- mælisdagurinn hans, 29. mars. Ekki var það til að þiggja gjafir enda kærði hann sig lítið um slíkt. Held- ur að fá alla í heimsókn og til að þiggja hjá honum veitingar. Í ár var í fyrsta sinn ekki boðið upp á heimabakaðar pönnukökur með rjóma enda krabbameinið farið að taka sinn toll og kraftarnir að þverra. Það var síðan síðasti vottur um hugulsemi hans að láta sjá um að búið væri að kaupa allar jólagjafir enda vissi hann að hans nyti ekki lengur við þegar þau gengju í garð. Ekki útdeilir Emil meira súkku- laði í litlar hendur, en það verðmæt- asta eigum við enn. Minninguna um mann sem vildi okkur alltaf vel. Að lokum vil ég þakka starfsfólki Heimahlynningar Krabbameins- félagsins og líknardeildar LSH fyr- ir að gera Emil kleift að vera heima eins lengi og auðið var og fá síðan framúrskarandi aðhlynningu allt til enda. Sigurður Rúnar Jónsson. Elsku Emil okkar. Við viljum þakka þér fyrir allar yndislegu samverustundirnar sem við áttum saman. Öll þau skipti sem við komum í heimsókn til þín varstu ávallt svo elskulegur og alltaf jafn- glaður að sjá okkur og var það gagnkvæmt. Okkar ósk var að þú fengir að hitta litlu frænku þína hana Bríeti Valdísi og þú varst svo glaður að fá að halda í litlu höndina hennar og kyssa hana þegar við komum með hana til þín. Í síðasta skiptið sem við heim- sóttum þig, en þá var mjög af þér dregið, brostir þú til okkar og baðst okkur um að kyssa litlu prinsessuna frá þér og það gerðum við. Elsku frændi, í dag kveðjum við þig með miklum söknuði. Hvíl þú í guðs örmum. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (Valdimar Briem.) Karen, Adam og Bríet Valdís. Elskulegur frændi og vinur er látinn. Árið sem senn er að líða var búið að vera honum erfitt vegna veikinda en hugurinn skýr allt fram á síðasta dag. Eftir sitja ótal góðar minningar. Afi og amma hófu bú- skap á Djúpavogi og þar eyddi hann unglinsárunum. Árið 1938 fór hann til náms við Menntaskólann á Akureyri og að því loknu stundaði hann verslunarstörf á Akureyri, fyrst hjá KEA og síðar sem versl- unarstjóri í Amaró eða tæp 30 ár. Hann hafði næmt auga fyrir fal- legum hlutum og snemma hneigðist hugur hans að málaralistinni. Var Emil einn af frumkvöðlum að stofn- un Félags frístundamálara sem hóf starfsemi 1947. Félagið rak kvöld- skóla um nokkurra ára skeið fyrir áhugamenn um myndlist. Trúlega hefði Emil lagt myndlistina fyrir sig ef fjárráðin hefðu leyft en hann málaði ætíð í frístundum sér til ánægju og skilur eftir sig mörg fal- leg verk. Tók Emil þátt í nokkrum samsýningum og eina einkasýningu hélt hann í „Gamla Lundi“ en hann hafði aðstoðað vin sinn, Jón Gísla- son, við að endurbyggja húsið. Þá tók Emil virkan þátt í starfi Nátt- úrulækningafélagsins á Akureyri. Þótt Emil væri ókvæntur og barnlaus má segja að hann hafi átt tvær fjölskyldur. Á Akureyri var það fjölskylda Sæbjargar Ísleifs- dóttur, en sín fyrstu ár þar nyrðra leigði hann herbergi á heimili henn- ar en var í fæði hjá frænda sínum Steini Steinsen, sem þá var bæj- arstjóri á Akureyri. Synir Sæbjarg- ar voru þeir Richard og Björn Þór- ólfssynir. Síðar bjó Emil hjá Richard og konu hans Ally, og dætrum þeirra, þeim Önnu Maríu og Sæbjörgu. Seinna héldu þeir Emil og Björn heimili með Sæ- björgu þar til hún lést í hárri elli. Þá ríkti alltaf mikil tilhlökkun á heimili foreldra minna er Emil kom til Reykjavíkur vegna innkaupa eða um hátíðisdaga en hjá þeim dvaldi hann ætíð en á milli móður minnar, Valdísar, og hans voru miklir kær- leikar. Emil var sannur heimsmað- ur og ferðaðist mikið erlendis, sér- staklega á sínum yngri árum. Sótti hann heim allar helstu stórborgi Evrópu og Bandaríkjanna og kom ætíð með gjafir frá framandi slóð- um til að gleðja ástvini sína. Þá eru mér minnisstæð sumrin þegar við fjölskyldan fórum norður og fengu að gista í Lyngholtinu. Þar var allt- af tekið höfðinglega á móti okkur. Ferðuðumst við vítt og breitt um Norðurlandið og slóst Emil oft í för með okkur. Emil fluttist til Reykja- víkur eftir að Björn lést og eyddi þar ævikvöldinu. Þá fékk hann tíma til að sinna áhugamáli sínu málara- listinni af heilum hug en einnig var hann duglegur að sækja myndlist- arsýningar. Hann fylgdist vel með þjóðfélagsumræðunni og var fróður og víðlesinn. Barnabörn móður minnar hændust mjög að honum og oft var farið til hans að skoða fal- lega steinasafnið, vatnslita og teikna og þá bauð hann alltaf upp á ýmiss konar góðgæti. En nú er komið að leiðarlokum eftir langan ævidag og vil ég þakka mínum hjartans vini fyrir allar ánægjulegar samverustundir og góðvild sem hann alla tíð sýndi mér og mínum. Eftir lifa hlýjar minn- ingar um sannan heiðursmann. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hvíl þú í friði. Þín frænka, Adda Björk. Emil Sigurðsson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix ✝ Elskulegur faðir okkar, bróðir og afi, LÁRUS INGI KRISTJÁNSSON, Bleikargróf 13, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 22. nóvember. Útför fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 1. desember kl. 15.00. Eyjólfur Bragi Lárusson, Kristjana Rós Lárusdóttir, Hrefna Ösp Lárusdóttir, Ottó Ingi Lárusson, Magnús Haukur Kristjánsson, Hilmar Kristjánsson, Helga Ragnhildur Kristjánsdóttir, Inga Lára Kristjánsdóttir og barnabörn. ✝ Elsku litla yndið okkar, SVERRIR RAFN EYJÓLFSSON, Hlíðarhjalla 60, Kópavogi, lést mánudaginn 17. nóvember á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 28. nóvember kl. 13.00. Eyjólfur Gjafar Sverrisson, Anna Pála Gísladóttir, Hólmar Örn Eyjólfsson, Trausti Már Eyjólfsson. ✝ BJARNI KRISTINN ANDRÉSSON frá Hamri, til heimilis að Nýbýlavegi 76, Kópavogi, andaðist á hjartadeild Landspítalans laugardaginn 22. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 5. desember kl. 13.00. Systkini hins látna. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir, tengda- móðir og amma, THEODÓRA ÞÓRÐARDÓTTIR, Kirkjusandi 1, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 27. nóvember kl. 13.00. Þorleifur Kristinn Valdimarsson, Þórður Þorgeirsson, Helga Dís Hálfdánardóttir, Daníel Ben Þorgeirsson, Agnes Linda Þorgeirsdóttir, Matthías Karl Þórisson, María Kristín Þorleifsdóttir, Sigurður Jóhann Finnsson, Hafdís Þorleifsdóttir, Haukur Ingi Jónsson, Esther Ósk Estherardóttir, Guðjón Ingi Hafliðason og barnabörn. ✝ Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN L. HJALTESTED HALL ljósmóðir, áður Lindargötu 57, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 22. nóvember. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 1. desember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna eða aðrar líknarstofnanir. Frank Pétur Hall, Guðlaug Magnúsdóttir, Sigurður Lárus Hall, Svala Ólafsdóttir, Ragnheiður Kristín Hall, Sigurður Rúnar Ragnarsson, Sigurveig Salvör Hall, Gunnar Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.