Morgunblaðið - 26.11.2008, Side 35

Morgunblaðið - 26.11.2008, Side 35
Minningar 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 ✝ Svanhildur Stef-ánsdóttir fædd- ist á Brunnhól á Mýrum í Austur- Skaftafellssýslu 15. júlí 1935. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 19. nóvember síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Lovísa Jónsdóttir, f. 1.8. 1905, d. 30.10. 2003, og Stefán Ein- arsson, f. 14.6 1905, d. 19.12. 1998. Árið 1945 flyst Svanhildur með foreldrum sínum að Höfn. Bróðir hennar er Rafn f. 11.7. 1937, sambýliskona hans er Guðlaug E. Guðbergsdóttir, f. 18.1. 1937. 1989. Sambýliskona Steins Loga er Ingibjörg Erna Sveinsdóttir f. 19.5. 1960, hún á þrjú börn. 2) Kristbjörg f. 19.1. 1963, maki Magnús Árnason f. 19.11. 1958. Börn þeirra: Rúnar Már f. 7.8. 1989, Bjarki Freyr f. 14.3. 1997, Anna Vigdís f. 2.7. 2002. 3) Sig- urjón f. 9.2. 1964, maki Kristbjörg Elídóttir f. 26.9. 1962. Synir henn- ar: Elí Rósinkar f. 7.8. 2001 og Agnar Bergur 12.12. 2002. 4) Hrönn f. 23.6. 1965, maki Ásgeir Þór Eiríksson f. 3.1. 1959. Börn þeirra: Eiríkur Rúnar f. 3.7. 1993, Þórhildur Kristín f. 20.8. 1996, Gunnar Þór f. 15.4. 2002. 5) Stefán Magnús f. 11.7 1973, maki Alda Ragna Þorvaldsdóttir f. 3.7. 1971. Börn þeirra: Þorvaldur Axel f. 8.7. 2000, Kristján Ragnar f. 21.5. 2002, Svanhildur Ylfa f. 21.5. 2002. Svanhildur stundaði nám í Hús- mæðraskóla Ísafjarðar 1955-1956. Mestan hluta starfsævinnar helg- aði Svanhildur fjölskyldunni og heimilinu. Útför Svanhildar fer fram frá Garðakirkju í dag kl. 13. Þann 20. október 1962 giftist Svanhild- ur Guðmundi Rúnari Magnússyni, f. 5.10. 1936. Foreldrar hans voru hjónin Kristín Guðmundsdóttir, f. 22.1. 1907, d. 17.1. 1996, og Magnús Ax- el Júlíusson, f. 26.6. 1909, d. 19.4. 1999. Svanhildur og Rúnar byrjuðu sinn búskap í Reykjavík en fluttu fljótlega í Aratún 22 þar sem þau bjuggu síðan. Þau eignuðust 5 börn. Þau eru: 1) Steinn Logi f. 23.5. 1961, fyrri sambýliskona Lára Leifs- dóttir f. 20.12. 1960. Synir þeirra: Leifur Birkir f. 5.12. 1985, Hjalti f. 29.1. 1987, Guðni Rúnar f. 9.8. Elsku mamma, þá ertu farin frá okkur. Það var sárt að sjá þig fara þó svo að ég vissi í hvað stefndi. Þú barðist eins og hetja alveg fram á það síðasta og þrátt fyrir veikindi þín varstu stöðugt að koma okkur á óvart. Þú varst svo sterk og dugleg í veikindunum eins og þú hefur alla tíð verið. Nú þegar þú hefur kvatt okkur hef ég yndislegar minningar um þig til að hlýja mér um hjartaræt- ur. Minningar um yndislega mömmu, duglega, sterka og já- kvæða konu. Þú hafðir unun af að hugsa um okkur systkinin og pabba, og heimilið sem þú nostraðir við. Þú hafðir gaman af að elda og baka og hafðir ekkert fyrir því að laða fram dýrindis veislur. Þú vildir hafa marga í kringum þig og naust þess þegar fjölskyldan stækkaði með tengdabörnum og ömmubörn- um, sem þú hafðir mikið dálæti á. Handavinna var eitt af því sem þú hafðir gaman af og það var al- veg sama hvað þú tókst þér fyrir hendur, hvort sem það var að sauma út, prjóna eða sauma föt, allt lék þetta í höndunum á þér. Heim- ilið ykkar pabba ber þess glöggt merki hvað þú varst handlagin og það er svo gaman að sjá öll list- verkin þín um allt hús. Þú naust þess að sitja með prjónana þína og sagðir alltaf að það væri svo af- slappandi fyrir þig að prjóna. Það var alltaf gaman að fá handprjón- aða peysu frá þér og barnabörnin nutu góðs af því að fá vettlinga og sokka frá ömmu sinni. Heimilið ykkar pabba er ekki eingöngu gætt listaverkum eftir þig, mamma mín, heldur einnig miklum gróðri en þú varst einstak- lega lagin og natin við að koma plöntum og græðlingum til. Mér er mjög minnisstætt þegar þið pabbi fóruð að skipuleggja garðinn ykkar í Aratúni. Þú varst alltaf mjög vel að þér um plöntur og vissir alveg hvernig þú vildir hafa garðinn þinn og þið pabbi skipulögðuð og teikn- uðu garðinn í sameiningu. Svo var hafist handa við að gróðursetja litlu trjáplönturnar og blómin höfðu sitt pláss, svo mátti ekki gleyma mat- jurtagarðinum. Garðurinn þinn hef- ur alltaf verið mjög glæsilegur enda varstu dugleg að nostra við hann og í dag eru trén vaxin upp fyrir húsið. Ég veit að þína síðustu daga heima hafðir þú gaman af að horfa út um svefnherbergisglugg- ann og sjá öll háu trén í garðinum. Það var alltaf gaman að setjast niður með þér og spjalla yfir kaffi- bolla. Þér fannst mjög gaman að tala um fólkið þitt og rifja upp gamlar minningar. Þú naust þess líka að ferðast um landið og ég bý að því alla tíð að hafa ferðast um landið með ykkur pabba. En þið voruð alltaf dugleg að fara í úti- legur á hverju sumri með okkur systkinin. Í júlí sl. fórstu með okk- ur á ættarmót þar sem þú hittir frændfólkið þitt að austan. Það var svo gaman að sjá hvað þú naust þess að hitta alla og vera með fjöl- skyldunni þinni, þó svo að kraft- urinn væri lítill. Mér fannst ómet- anlegt að sjá hvað þetta gaf þér mikið, elsku mamma mín. Nú kveð ég þig, mamma mín, með þakklæti fyrir allt og allar góðu minningarnar sem ég mun varðveita í hjarta mínu. Ég bið góð- an Guð að styrkja pabba, okkur systkinin og fjölskyldur og Rafn og Gullu á þessum erfiðu tímum. Þín, Hrönn. Meira: www.mbl.is/minningar Elsku tengdamamma. Það er svo sárt að þurfa að kveðja því ég hefði kosið fleiri stundir og ár með ykkur hjónunum saman. En kallið er komið eftir langa og stranga bar- áttu við illvígan sjúkdóm. Þá kom vel í ljós þrautseigjan og krafturinn sem í þér bjó. Einstök, hæfileikarík í höndunum, athafnasöm og með heilum hug gekkst þú í öll verk, ávallt með dugnaði og hraða á ykk- ar heimili sem og annars staðar. Það var alveg sama á hvaða tíma við fjölskyldan komum í Aratún, þá mættum við alltaf hlýju og góðu viðmóti, maður fann vel hvað við vorum ávallt velkomin og alltaf varstu reiðubún með mat og kræs- ingar fyrir okkar eða skelltir í graut fyrir börnin. Það virtist allt leika í höndum þér, enginn vand- ræðagangur þar á ferðinni. Þú reyndist einstakur vinur barnanna, varst svo dugleg að sinna þeim og gefa þeim tíma. Börnin fengu að vera þátttakendur í því sem þú varst að sýsla hverju sinni, elda, taka upp kartöflur og fara í göngu- túra. Þessir einföldu en nauðsyn- legu hlutir sem skipta svo miklu máli því þessar samverustundir sem þið áttuð með börnunum eru ómetanlegar og góðar minningar. Þú reyndist mér einstaklega vel og ég gat treyst á ykkur þegar á reyndi sem er mér svo dýrmætt þar sem fjölskylda mín er búsett erlendis. Elsku Rúnar og fjölskylda, ég bið Guð að gefa ykkur styrk og ljós í hjarta á þessari erfiðu stundu í lífi ykkar. Þín tengdadóttir, Alda Ragna. Elsku amma, nú fáum við ekki lengur graut hjá þér. En kannski kenndir þú bara afa að gera graut? Nú verðum við systkinin að vera dugleg að fara til afa svo hann verði ekki mikið einn. Við söknum þín mikið, amma. Þú ert besti vinur okkar og verður alltaf í hjarta okk- ar. Þegar eitthvað bjátar á allt það segja vini má, ýta sorgum öllum frá og aftur gleði sinni ná. Allir þurfa að eiga vin, allir þurfa að eiga vin Leggjum núna hönd í hönd og hnýtum okkar vinabönd. Vináttan hún færir frið. Friður bætir mannkynið. Öðrum sýnum ást og trú og eflum vináttuna nú. (Margrét Ólafsdóttir.) Með þessu ljóði kveðjum við þig, elsku besta amma okkar, Guð geymi þig. Þorvaldur Axel, Kristján Ragnar og Svanhildur Ylfa Stefánsbörn. Frænka mín Svanhildur Stefáns- dóttir (Svana) kvaddi 19. þessa mánaðar eftir erfiða baráttu við ill- vígan sjúkdóm. Það sýndi hetju- lund hennar að aðspurð hvernig hún hefði það var svarið ævinlega: „Ég hef það ágætt.“ Hún hugsaði alltaf meira um aðra en sjálfa sig. Í æsku vorum við leikfélagar þá tíma sem ég dvaldi á heimili hennar og við saman hjá ömmu okkar. Í hennar návist ríkti alltaf gleði enda var hún tápmikil og tilbúin að taka þátt í strákaleikjum þegar svo bar undir. Þegar kom að vinnu var hún ósérhlífin og forkur duglegur og tók oft frumkvæði og stjórnaði verkum. Svana fékk góðan mann, Guð- mund Rúnar, og bjuggu þau sér fyrirmyndarheimili þar sem gott var að líta inn og spjalla. Svana var húsmóðir í orðsins fyllstu merk- ingu. Hún var alltaf til staðar fyrir börn sín fimm enda fengu þau frá henni gott veganesti út í lífið. Í hennar skjóli mátti alltaf finna ör- yggi og er það sár missir fyrir að- standendur og ekki síst ömmubörn- in að njóta hennar ekki lengur. Þá vil ég minna á hversu vel eig- inmaðurinn Guðmundur studdi hana í veikindum hennar þar sem hann stóð óskiptur við hlið hennar til hinstu stundar. Um leið og ég kveð mína kæru frænku sendi ég eiginmanni, börn- um, tengdabörnum og barnabörn- um mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Guðmundur Sigurðsson. Svanhildur Stefánsdóttir Nú er eitt ár síðan kær nágranni okkar Sveinbjörn Jóhannsson lést. Okkur brá okkur mjög við en hann var fastur hluti tilveru okk- ar á þessum stað í Fífu- hvamminum. Daginn fyrir lát hans var leið- indaveður en hann kom samt bílnum af stað og Ragna Gunnarsdóttir, eig- inkona hans, og hann fóru í sund eins og venjulega. Um 40 ár eru síðan Sveinbjörn og Ragna keyptu íbúðina í Fífuhvammi 11 af tengdaforeldrum mínum þegar þau fluttu í næsta hús. Það var oft haft á orði í fjölskyldunni hversu traustur Sveinbjörn var í öllum sam- skiptum, svo dæmi sé tekið skeikaði aldrei mínútu þegar kom að afborg- unum af íbúðinni. Síðan fluttum við í Fífuhvamminn 1985 og var vel tekið af nágrönnum. Var það ómetanlegt eftir breytingar við flutning utan af landi. Við getum ekki látið hjá líða að minnast á Ástu og Óla sem bjuggu í húsinu á bak við okkar og eru bæði látin. Eins og Sveinbjörn voru þau sérlega hlý og indæl við börnin okkar fjögur þó að þeim fylgdu oft ærsl og læti. Sveinbjörn var mikill fjölskyldu- maður sem sást best af því hversu mikið börnin og afkomendur sóttu til hans og Rögnu auk fjölda annarra ættingja og vina. Það var fallegt að sjá til hans í umgengni við börnin stór og smá enda löðuðust þau að honum. Þar voru lagðir inn gildir kærleiks- sjóðir sem þau hjónin hafa uppskorið ríkulega af með mikilli ræktarsemi meðal annars af hálfu sonardætr- anna. Sveinbjörn var félagslyndur, var virkur í félagsstarfi aldraðra, Hananú hópnum, hann söng í kór aldraðra og ferðaðist mikið með þessum hópum. Ragna og hann voru ákaflega sam- rýnd og fóru meðal annars áður fyrr mikið í bústaðinn við Elliðavatn áður en byggðin sótti að. Sveinbjörn var Sveinbjörn Hallgríms- son Jóhannsson ✝ Sveinbjörn Hall-grímsson Jó- hannsson fæddist á Norðfirði 21. júní 1921. Hann lést 26. nóvember 2007. alltaf eitthvað að stússa þegar sást til hans, klippa runna, mála grindverkið, reyta arfa. Samt kom það fyrir í góðviðrinu síðasta sumarið hans að hann fleygði sér í grasið og flatmagaði stund og stund í sól- inni! Lífið fór hörðum höndum um Svein- björn framan af ævi en hann fæddist á Norð- firði og átti sína æsku fyrir austan. Reyndar varð æska hans afskaplega stutt en kornungur missti hann móður sína. Við tóku ólýsanlega erfiðir tímar, hann var sendur til vandalausra og varð að vinna fyrir sér hörðum höndum frá 9 ára aldri. Það var ekkert gefið eftir þó að barn ætti í hlut. Ég hef grun um að skapgerð hans hafi mótast mikið af þeirri lífs- reynslu. Hann beit á jaxlinn, staðráð- inn í að lifa af og skulda engum neitt. Honum tókst þetta með hörkudugn- aði, staðfestu og ósérhlífni. Hann bar harm sinn í hljóði og gekk hnarreistur til sinna verka. Þessa reisn hafði hann yfir sér allt til æviloka. Við söknum þess enn að sjá ekki til Sveinbjörns eldsnemma á morgnana, sama hvernig viðraði eða hversu dimmt var, hann kom heim í þann mund að við lögðum af stað í vinnuna. Þá var notalegt að geta heilsað hon- um úti við og látið traust og hlýlegt brosið ylja sér í hráslaganum. Hann var sannkallaður aðalsmaður íslenskrar alþýðu. Við kveðjum hann með virðingu og þökk. Guð blessi minningu Sveinbjörns Jóhannssonar. María L. Einarsdóttir og fjölskylda.                                       ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ERLENDUR STEINGRÍMSSON, Prestbakka 9, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 18. nóvember, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 28. nóvember kl. 13.00. Guðný Björg Guðmundsdóttir, Steingrímur Erlendsson, Ingibjörg Erlendsdóttir, Ómar Ingi Gylfason, Henrik Erlendsson, Ásgeir Erlendsson og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, PÁLÍNA RAGNHILDUR BENEDIKTSDÓTTIR frá Efra Núpi, fyrrum húsfreyja á Hrafnagili, sem lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 20. nóvember, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju, föstudaginn 28. nóvember. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri. Bergur Hjaltason, Guðrún Júlía Haraldsdóttir, Þóra Guðrún Hjaltadóttir, Sigurjón Hilmar Jónsson, Ingibjörg Hjaltadóttir, Þorsteinn Pétursson, Benedikt Hjaltason, Margrét Baldvina Aradóttir, Ragnhildur Hjaltadóttir, Alfreð Garðarsson og fjölskyldur. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.