Morgunblaðið - 26.11.2008, Side 38

Morgunblaðið - 26.11.2008, Side 38
38 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Nudd Heilnudd Vöðvanudd Slökunarnudd Kemur blóðflæðinu af stað og er slakandi fyrir líkama og sál S. 551 2042 / 694 1275 Ath. Ekki er um að ræða erótískt nudd Húsnæði í boði Til leigu við Elliðavatn 76 fm stórglæsileg glæný íbúð við Akurhvarf 1, innifalið þvottav. /þurrkari/uppþottavél, hússjóður, frábært útsýni, suðursvalir. Leiga pr. mánuð 110. Upplýsingar á tölvupósti:. thorao@mbl.is og s.896 3362. Kaupmannahöfn - Tengsl í Danmörku Valberg býður upp á tímabundið húsnæði fyrir Íslendinga sem hyggja á dvöl/starf í Danmörku og ráðgjöf til þeirra sem huga að búferlaflutningi. www.danmork.dk Glæsileg íbúð í Garðabæ Til leigu glæsileg 142 fm, 3ja- 4ra herb. ný íbúð með suðursvöoum og bílgeymslu á besta stað í Garðabæ. Laus strax. Verð 150 þús. pr. mán. Uppl. í síma 897 0979/894 4405. Atvinnuhúsnæði Skrifstofuaðstaða í Borgartúni Til leigu skrifstofuaðstaða eða vinnu- básar. Húsnæðið er nýinnréttað og glæsilegt, mikil lofthæð og norður- gluggar. Fundarherb., kaffiaðstaða og tölvulagnir. Uppl. í 698 5665 eða gunnarpall@internet.is Iðnaðarhúsnæði Til leigu 143 fm iðnaðarhúsnæði á jarðhæð við Dugguvog/Kænuvog, 104 Rvk, ásamt 150 fm afgirtu útisvæði. Uppl. í síma 896 9629. Sumarhús til leigu í Brekkuskógi Stórglæsilegt sumarhús til leigu í Brekkuskógi. Heitur pottur og allt fyrsta flokks. Kynnið ykkur málið á www.brekkuskogur.com Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Námskeið að verðmæti 50 þús. gefins í dag Kíktu á www.netvidskipti.is til að fá kennslu að verðmæti 50 þús. gefins! Þetta er okkar framlag til íslensku þjóðarinnar. Njóttu vel! Frábært, rafrænt námskeið í netviðskiptum. Notaðu áhugamál þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að skapa þér góðar og vaxandi tekjur á netinu. Við kennum þér hvernig! Skoðaðu málið á http://www.menntun.com Til sölu          RAFHLÖÐULJÓS! JÓLATILBOÐ! Gott úrval af rafhlöðukertum á jólatilboði! Inni og úti. Hentug í kransa og á leiði. Ekkert sót, engin eldhætta! Loga í allt að 100 daga! Gosbrunnar ehf.- Langholtsvegi 109, á bakvið. S:517-4232 / 694-4220. Góð dekk og felgur undir Land Cruiser og fleiri gerðir- Gott verð 4 stk BF Goodrich 265-75 R 16 All Terrain T/A jeppadekk ásamt 6 gata 16 tommu LCR álfelgum til sölu. Upplýsingar í síma 898 3037 eða tor@vortex.is Gamall snjósleði, 75 þ., Hjólhýsi 75 þ. Benz vörubíll 200 .þ. Landrover ‘62, 50 þ. 3 móvindóttir stóðhestar, 75 þ. pr.stk., 150 ára gamlar kistur, 25 og 30 þ. Nall ‘53, 35 þ., Traktorsgröfu- skólfa, 20 þ., 200 l. frystikista, 8 þ.,o m.fl. Ræði flest skipti. S. 865-6560. Evrur til sölu Nokkuð magn gjaldeyris til sölu. T.d. Evrur, Usd, Dkk, Gpb o.s.frv Afhendist hérlendis í seðlum með stuttum fyrirvara. Uppl. í síma 697-8827, evrurtilsolu@hushmail.comSumarhús ✝ Einar GrétarÞorsteinsson fæddist 8. sept- ember 1932 í Sand- gerði. Hann lést á St. Jósefsspítala 18. nóv. sl. Foreldrar hans voru Þorsteinn Pálsson, f. 8.6. 1909, d. 12.2. 1944, og Guðrún Benedikts- dóttir, f. 9.10. 1912, d. 20.11. 1972. Fóst- urfaðir hans, seinni maður Guðrúnar, var Svavar Víglundsson, f. 28.12. 1902, d. 10.3 1954. Alsystkini Einars eru: Pálmar f. 8.9. 1934, Steinunn, f. 9.2. 1936, og Sigurður Benedikt, f. 30.7. 1938, d. 13.1. 1995. Hálfsystkini hans sammæðra eru: Þorsteinn Svavarsson, f. 1.7. 1946, Halldór Svavarsson, f. 6.4. 1948, og Dagný Svavarsdóttir, f. 14.10. 1949. Eft- irlifandi eiginkona Einars er Sig- urbjörg Guðrún Karlsdóttir, f. 6.2. 1935. Börn þeirra eru: Guðrún Björg, f. 15.1. 1956, gift Gunnari Helga Haukssyni, f. 5.11. 1955. Þau eiga 3 börn. Hera Ósk, f. 13.10. 1959, gift Ágústi Ingvarssyni, f. 1.8. 1957. Þau eiga 2 syni. Þorsteinn Pálm- ar, f. 6.11. 1963, á eina dóttur og 3 barnabörn. Sonur Einars með Cecilíu Þórðardóttur, f. 25.8. 1931, d. 27.3. 1990, er Þórður, f. 19.5. 1951, hann á 3 börn. Sonur Einars með Sigríði Þorbjörgu Valgeirsdóttur, f. 21.2. 1932, d. 16.10. 1994, er Valgeir Kristján, f. 13.3. 1952, kvæntur Önnu Soffíu Sverrisdóttur, f. 27.2. 1951. Þau eiga 5 börn og 5 barnabörn. Útför Einars Grétars fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag kl. 15. Elsku pabbi. Í dag fylgjum við þér í þína hinstu för og þökkum þér í leiðinni fyrir að hafa átt þig að þessa stuttu stund. Þótt oft hafi á móti blásið á lífsleiðinni, þá er það brosið þitt og glettnin í augum þínum, létt- leikinn og lífsgleðin sem er mér efst í huga. Engin hindrun það stór að þú gætir ekki yfirstaðið hana. Góða skapið og lífsgleðin til að létta stritið í lífsins ólgusjó. Berklarnir settu spor sín á þig strax í æsku og svo bættist flogaveikin við hjá þér, bara níu ára strákling. Það var flogaveik- in sem gerði þér erfitt fyrir í at- vinnumálum en þú lagðir metnað þinn í að ala önn fyrir fjölskyldu þinni og tókst öll þau störf sem þú gast fengið og báru björg í bú. Í huga þínum var ekkert starf svo lít- ilvægt að ekki væri ástæða til að því væri vel sinnt og enginn einstakling- ur svo lítilvægur að hann ætti ekki fulla virðingu skilið. Að vera til stað- ar, traustur og jákvæður, koma fram af virðingu við aðra, finna lausnir en dvelja ekki við það sem miður fer í lífinu og horfa fram á við er það lífs- viðhorf sem þú hefur kennt mér. Áhugi þinn á myndlist smitaði snemma út frá sér. Krít, kol, olíu- og vatnslitir, allt efniviður sem þú gerð- ir tilraunir með og opnuðu mér nýja heima. Í barnabörnunum lifir þessi áhugi áfram og verður spennandi að fylgjast með þeim á listabrautinni í framtíðinni sem og í öðrum störfum sem barnabörnin taka sér fyrir hendur á lífsleiðinni. Strákunum mínum gafst þú tíma af tíma þínum, lékst þér við þá og tefldir við þá, kenndir þeim m.a. mannganginn. Þeir eiga góðar minningar af tíma sínum með þér til að verma sér á í framtíðinni og er ég þakklát fyrir það. Ég þakka fyrir að hafa átt þig að, pabbi. Þú lifir áfram í hjarta mínu og minningu. Ég veit ég á eftir að sakna þín, elsku pabbi, en vonandi fer vel um þig þar sem þú ert núna. Það kemur vor eftir vetrarmyrkur verður aftur ljós það gróa sár og úr sárum jarðar síðar vex upp rós í gleði og sorg er hún allra hluta uppspretta og ós ég get hlegið og grátið og þannig er eins og þú veist tilveran okkar (Brygman/Joff – Karl Ágúst Úlfs- son.) Þín dóttir, Hera Ósk. Kæri pabbi og tengdapabbi. Það er skrítið að þú sért farinn, þú varst eins og klettur sem stóðst allt. En þú varst orðinn þreyttur og þurftir hvíld. Að kynnast þér og Sigurbjörgu var gull! Alltaf vorum við velkomin með öll börnin, svo komu börnin með sín börn og allt- af sama glettna brosið og hlýhug- urinn sem yljaði öllum. Við kveðjum þig með orðunum „við sjáumst síð- ar“. Valgeir og Anna. Elsku afi. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Kveðja. Hildur Björg, Sverrir Pálmar, Sigurlaug Ýr, Einar Rafn og Íris Hrefna. Við vildum minnast Einars með nokkrum orðum. En það er svo erfitt að velja úr minningum um einhvern sem er farinn frá okkur. Þær eru svo margar góðar minningarnar sem tengjast Einari. Hann var alltaf til staðar, óumbreytanlegur, alltaf glað- vær og með góða nærveru. Eigum við að rifja upp jólaboðin á Hamars- brautinni, sumarferðirnar á Skódan- um, alla hjálpsemina þegar hann var boðinn og búinn að hjálpa eða bara glaðværðarinnar sem alltaf var til staðar. Hann er væntanlega kominn á betri stað núna, laus við þjáningar og streð en það á hann svo sann- arlega skilið. Blessuð veri minning þessa trausta fjölskylduvinar öll okkar ár. Gréta, Bergur, Regína, Harpa og Heiðrún. Í dag kveðjum við Einar í Hafn- arfjarðarkirkju. Það er alltaf sárt að kveðja, sárt að kveðja gamlan og góðan vin, en stundum er þó kveðju- stundin lausn frá erfiðum sjúkdómi og þá verður hún sár en um leið blandin gleði yfir því að nú sé öllum þjáningum lokið. Einar var fæddur í Sandgerði 8. september 1932 og voru foreldrar hans Guðrún Bene- diktsdóttir og Þorsteinn Pálsson og bjuggu þau í Sandgerði fyrstu árin en fóru til Norðfjarðar um 1944 en eftir að Þorsteinn drukknaði fóru þau til baka um sinn. Guðrún tók þá upp sambúð með Svavari Víglunds- syni og fluttu þau til Norðfjarðar og bjuggu þau þar til 1949 er þau fluttu til Hafnarfjarðar og byggðu sér hús að Hvaleyrarbraut 7 og bjuggu þar meðan báðum entist líf. Það var um 1950 sem ég kynntist Einari þegar hann kom til dvalar á Reykjalundi, sem þá var í örum vexti sem dvalar- og endurhæfingarheim- ili fyrir berklasjúka, Einar var þá lífsglaður ungur maður og fór stund- um offari í gleði og gáska þrátt fyrir að hafa verið berklaveikur og floga- veikur frá barnsaldri, en afleiðing berklanna var sú að hann missti fjóra fingur hægri handar og einn af vinstri og síðar annað lungað. Floga- veikin var erfið því að lyf voru fá og gagnslítil og því voru flogaköstin hörð og langvarandi og eru mér í fersku minni viðbrögð fólks við köst- unum. Flestir urðu hræddir og ráð- þrota og þorðu jafnvel ekki að um- gangast Einar vegna þessa. Á Reykjalundi var margt ungt fólk, lífsglatt og uppátækjasamt, t.d. vorum við nokkrir sem stofnuðum „englaklúbb“ þó ýmsum vistmönn- um tækist ekki að finna engla í þeim hópi. Eftir að við fórum frá Reykja- lundi skildu leiðir um sinn. Þegar ég fór að venja komur mínar í Hafnar- fjörð lágu leiðir okkar aftur saman, en þá var Einar í sambúð og síðar í hjónabandi með Sigurbjörgu Karls- dóttur frá Húsavík, öndvegiskonu, en á heimili þeirra urðum við Unnur, sem síðar varð kona mín, fastagestir. Þarna áttum við einlæga vini og hef- ur sú vinátta haldist í meira en hálfa öld. Vegna fötlunar sinnar var Einar ekki góður til allra verka, en vilji til vinnu var mikill, þó oft endaði vinnu- ferill hans þegar menn ráku hann er hann hafði fengið kast, svona var tíð- in þá. Af eðlilegum ástæðum hentaði erfiðisvinna illa en skilningur á slíku var oft ekki til staðar og er kannske ekki fallegt að segja frá því að eitt sinn er Einar var atvinnulaus og mátti aðeins vinna létta vinnu, þá fékk hann vinnu hjá bænum, sú létta vinna var fólgin í því að honum var fengin tólf punda sleggja og látinn brjóta upp steingólf með henni! Þó ber þess að geta að síðar fékk Einar vinnu á vélaverkstæði áhaldahúss bæjarins þar sem Sigurjón verk- stjóri reyndist honum vinur í raun. Síðustu árin átti Einar við mikla vanheilsu að stríða og síðustu mán- uði lífs síns lá hann á St. Jósefsspít- ala í Hafnarfirði þar sem hann naut vináttu og góðrar aðhlynningar starfsfólks. Við hjónin vottum fjöl- skyldu Einars samúð og þökkum fyrir allar góðu stundirnar á liðnum árum. Unnur og Haukur. Einar Grétar Þorsteinsson Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl fimmtud. 20.11. Spilað var á 11 borðum. Með- alskor 216 stig. Árangur N-S Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánsson 284 Jóhann Lútherss. – Oddur Jónsson 248 Bragi Björnss. – Albert Þorsteinss. 232 Árangur A-V Elías Einarss. – 0Höskuldur Jónsson 259 Hilmar Valdimarss. – Óli Gíslason 250 Einar Einarss. – Magnús Jónsson 249 Tvímenningskeppni var spiluð í Ásgarði, Stangarhyl, mánud. 24.11. Spilað var á 12 borðum. Með- alskor 216 stig. Árangur N-S Björn E. Péturss. - Gísli Hafliðason 273 Ægir Ferdinands. - Oddur Halldórs. 246 Skarphéðinn Lýðs. - Eiríkur Eiríkss. 238 Árangur A-V Hilmar Valdimarss. - Jón Lárusson 272 Ólafur Kristinsson - Birgir Sigurðss. 264 Elías Einarsson - Höskuldur Jónss. 252 Íslandsmót í parasveitakeppni Íslandsmótið í parasveitakeppni fer fram helgina 29. og 30. nóv- ember nk. Byrjað verður að spila kl. 11báða dagana. Keppnisgjald er kr. 12.000 á sveit. Núverandi Íslands- meistarar eru: Hrund Einarsdóttir, Vilhjálmur Sigurðsson, Dröfn Guð- mundsdóttir og Ásgeir Ásbjörns- son. Skráning er í fullum gangi og er hægt að skrá sig í keppnina á skrifstofu BSÍ í síma 587-9360, brid- ge.is eða í tölvupósti bridge@brid- ge.is Spilað er í spilasal Bridssam- bandsins í Síðumúla 37. Risaskor hjá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 21 nóvember var spilað á 19 borðum. Gróa og Unnar Atli náðu mjög góðu skori eða 70.4%. Úrslit urðu þessi í N/S Jón Hallgrímss. – Oddur Halldórss. 371 Oddur Jónsson – Magnús Jónsson 368 Jens Karlsson – Örn Einarsson 352 Sæmundur Björnss. – Gísli Víglundss. 350 A/V Gróa Guðnad. – Unnar Guðmundss. 439 Haukur Guðmundss. – Ólafur Ólafsson 384 Kristín Óskarsdóttir – Gróa Þorgeirsd. 369 Jón Lárusson – Halla Ólafsdóttir 362 Meðalskor var 312. Þriðjudaginn 18. nóvember var spilað á 18 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S Valdimar Elíasson – Oddur Jónsson 364 Magnús Oddss. – Oliver Kristóferss. 362 Oddur Halldórss. – Jón Hallgrímss. 360 Jens Karlsson – Örn Einarsson 345 A/V Ólafur Ingvarss. – Sigurb. Elentínuss. 411 Knútur Björnsson – Elín Björnsd. 392 Bragi Björnss. – Auðunn Guðmundss. 361 Haukur Guðmss. – Ólafur Ólafsson 353 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.