Morgunblaðið - 26.11.2008, Síða 40

Morgunblaðið - 26.11.2008, Síða 40
Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 g6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 Bg7 6. Be3 Rf6 7. Bc4 O-O 8. Bb3 a5 9. O-O d6 10. h3 Rxd4 11. Bxd4 Bd7 12. a4 Bc6 13. He1 Rd7 14. Bxg7 Kxg7 15. Dd4+ Kg8 16. Bc4 Db6 17. Dd2 Db4 18. b3 Rb6 19. Bf1 d5 20. Had1 dxe4 21. De3 f5 22. Ra2 f4 23. Bc4+ Dxc4 24. Dxb6 Dxc2 25. Rc1 e3 26. f3 Df2+ 27. Kh1 Staðan kom upp á haustmóti Tafl- félags Reykjavíkur sem lauk fyrir skömmu. Torfi Leósson (2130) hafði svart gegn sigurvegara mótsins, Davíð Kjartanssyni (2312). 27… Bxf3! 28. De6+ Kh8 29. gxf3 Dxf3+ 30. Kh2 Dg3+ 31. Kh1 Hf5 32. He2 Dxh3+ og hvítur gafst upp enda fátt til varnar. Svartur á leik. 40 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 Orð dagsins: Mannssonurinn er ekki kominn til að tortíma mannslífum, heldur til að frelsa. (Lúk. 9, 56) Á tímum góðærisins svokallaðavar eins og pólitík hætti að skipta máli. Vald pólitíkusanna hafði skroppið saman og vald við- skiptajöfranna bólgnað út. Og hvar stóð almenningur í þessari jöfnu? Hann var í besta falli áhorfandi, gat alla jafna litlu ráðið um rás at- burða og kærði sig í mörgum til- fellum hvort sem er ekki um það – hæstánægður með sinn hlut. x x x Nú hefur andrúmloftið heldurbetur breyst. Reglulega eru haldnir borgarafundir og útifundir og þeir verða stöðugt fjölmennari. Fólk virðist vera að vakna til vit- undar. Pólitík er farin að skipta það máli og fólki líkar ekki það sem það sér. Víkverji ætlar sér ekki að mæla fyrir munn þjóðar, en þótt fullyrt sé að fólk vilji breytingar er lítil áhætta tekin. x x x Borgarafundurinn í Háskólabíóiá mánudagskvöld var að mörgu leyti vel heppnaður. Hinir kjörnu fulltrúar kjósenda, sem voru viðstaddir, sátu upp á sviði og litu stundum út eins og þeir væru í skammarkróknum. Þeir fengu orð í eyra og tillögu um að jafnt for- usta stjórnarflokkanna sem stjórn- arandstæðinga viki til hliðar var tekið með dynjandi lófataki. x x x Það er hafin pólitísk vakning áÍslandi. Engin leið er að segja á þessu augnabliki hvert hún mun leiða. Hún gæti getið af sér nýtt pólitískt afl og yrði fróðlegt að sjá hverjir kæmust þar til áhrifa – eða reyndu það. Það yrði líka fróðlegt að sjá hvernig stjórnmálaflokk- arnir brygðust við slíkum tíðindum – hvaða aðferðum þeir myndu beita til þess að tileinka sér þá kröfu, sem nú er uppi um opin og gagnsæ vinnubrögð. Það er frægt í sögunni að þegar nýir straumar leika um samfélög reyna hin við- teknu öfl að eigna sér þá til að af- vopna hin nýju og róttæku öfl og hleypa þeim ekki inn af jaðrinum. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 peninga- upphæð, 4 vextir, 7 íra- fár, 8 mettar, 9 söng- rödd, 11 bragð, 13 fjarski, 14 nói, 15 asi, 17 biblíunafn, 20 bókstafur, 22 púði, 23 gufa, 24 hlaupa, 25 ránfuglinn. Lóðrétt | 1 dýr, 2 hár- flóki, 3 tóma, 4 skorið, 5 afkomandi, 6 ákveð, 10 höndin, 12 þvaður, 13 leyfi, 15 hestur, 16 ávöxtur, 18 búa til, 19 húsdýrið, 20 una, 21 læra. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skynsemin, 8 tólið, 9 gamla, 10 jór, 11 grafa, 13 afrek, 15 pláss, 18 slóði, 21 tík, 22 plagi, 23 álkan, 24 slagharpa. Lóðrétt: 2 kólga, 3 niðja, 4 eigra, 5 ilmur, 6 stag, 7 rask, 12 fis, 14 fól, 15 pípa, 16 áfall, 17 sting, 18 skána, 19 ósköp, 20 inna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Óviðráðanlegir menn. Norður ♠ÁK84 ♥Á7532 ♦6 ♣ÁG8 Vestur Austur ♠106532 ♠DG9 ♥9 ♥106 ♦ÁG108743 ♦KD2 ♣-- ♣KD654 Suður ♠7 ♥KDG84 ♦95 ♣109732 Suður spilar 5♥. Fyrri gullöld Ítala stóð yfir á ára- bilinu 1957-1970, en þá unnu þeir HM tíu sinnum í röð. Tveir spilarar áttu hlutdeild í öllum sigrunum, Giorgio Belladonna og Pietro Forquet. Þeir eru hér í sviðsljósinu, hvor á sínu borði, en spilið er frá úrslitaleiknum við Bandaríkjamenn 1958. Á báðum borðum fóru N-S í 5♥ yfir 5♦ fórn A-V. Belladonna fékk ellefu slagi með ♦Á út. Hann hreinsaði upp spaðann og tígulinn, samhliða því að af- trompa vörnina. Endaspilaði svo aust- ur með litlu laufi á gosann. Hinum megin kom Forquet út með lítinn tígul undan ásnum. Makker hans, Guglielmo Siniscalco, vissi hvað klukkan sló og spilaði laufi til baka. Forquet trompaði og austur fékk svo um síðir þriðja slaginn á lauf. Hver ræður við svona menn! (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Kringumstæður fara úr bönd- unum, þú tekur stjórnina og sýnir leið- togahæfileika þína. Seinna um kvöldið glittir í möguleika á að allir þínir stærstu draumar verði að veruleika. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú þarft ekki að vera unglingur til að finnast allt frekar fáránlegt. Heimilið er þitt vígi og þú mátt ekkert spara til þess að það sé griðastaður þinn og vanda- manna þinna. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þér finnst eins og einhver sé að leggja stein í götu þína. Liðsandinn sem þú miðlar á eftir að smita frá sér. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert glaðlyndur og vinmargur en þér hættir til að vera með of mörg járn í eldinum í einu. Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Ekki vera hissa þótt ótilgreindur vinur virðist árásargjarn í dag. Byrjaðu bara á fyrsta verkefninu og leystu þau svo eitt af öðru. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Heimili og fjölskylda eru þitt eina áhugamál um þessar mundir, það er óum- deilt. Betur sjá augu en auga og margar hendur vinna létt verk. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Listrænar uppákomur hjálpa Vog- inni að kynnast áhugaverðum nýjum vin- um og viðskiptafélögum framtíðarinnar. Njóttu árangursins. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þetta er ekki rétti dagurinn til að skipta peningum eða sameig- inlegum eignum eða ábyrgð. Allir hafa gott af því að víkka út sjóndeildarhring sinn. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú mátt alltaf eiga von á ein- hverju óvæntu þegar þú leitar á ný mið. Hugsanlega á það vel við í ástum að setja úrslitakosti. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Langi þig til þess að komast áfram á framabrautinni er allt eins líklegt að tækifæri til þess gefist í dag. En ef fleiri sem eiga hlut að máli eru þér ósam- mála er úr vöndu að ráða. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Vertu viðbúinn því að þurfa að verja mál þitt fyrir háttsettum aðilum. Taktu þér tíma til þess að hugsa hlutina vandlega í gegn. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ánægjan er þinn helsti orkugjafi. Láttu af þeim leiða vana að vera sífellt að þóknast öðrum en sjálfum þér. Stjörnuspá 26. nóvember 1594 Tilskipun um að Grallarinn (Graduale) skyldi notaður sem messusöngsbók í báðum bisk- upsdæmunum tók gildi. Guð- brandur biskup Þorláksson gaf bókina út. 26. nóvember 1981 Útgáfa DV hófst. Þá samein- uðust Dagblaðið og Vísir. „Hið sameinaða dagblað hefur að meginmarkmiði að starfa óháð flokkum og flokks- brotum,“ sögðu ritstjórarnir Jónas Kristjánsson og Ellert B. Schram í forystugrein. 26. nóvember 1981 Veitinga- og skemmtistað- urinn Broadway við Álfa- bakka í Reykjavík var opn- aður en þá var innan við hálft ár frá því að framkvæmdir hófust. Síðar var húsnæðinu breytt til kvikmyndasýninga á vegum Bíóhallarinnar. 26. nóvember 1993 Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu. Fyrirsögn á gagnrýni í Morg- unblaðinu daginn eftir var: „Fullkomið listaverk.“ 26. nóvember 1998 Frjálslyndi flokkurinn var stofnaður. „Við boðum breyt- ingar,“ sagði Sverrir Her- mannsson, formaður flokks- ins, á blaðamannafundi. 26. nóvember 1998 Eftirlitsmyndavélar voru formlega teknar í notkun í miðborg Reykjavíkur, en áður höfðu verið gerðar tilraunir með þær. Í upphafi voru myndavélarnar átta og var markmiðið „að fækka af- brotum og skemmdarverkum á almannafæri“, eins og það var orðað í Morgunblaðinu. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … ÁRNI Ísaksson, forstöðumaður lax- og silungs- veiðisviðs Fiskistofu, betur kunnur sem veiði- málastjóri, fagnar 65 ára afmæli sínu í dag. „Við verðum að heiman,“ segir Árni en eftir nokkra daga gæti orðið eitthvað meira um dýrðir þegar eiginkona hans, Ásta Guðrún Sigurðardóttir, verður sextug. Er ætlun þeirra að gera sér daga- mun í tilefni 125 ára afmælisins í faðmi fjölskyldu og vina. Börn þeirra eru Sigurður Hinrik Teitsson framkvæmdastjóri, Ragnheiður Árnadóttir söng- kona og Eiríkur Árnason sjúkraþjálfari. Barna- börnin eru orðin fimm. Árni varð annar veiði- málastjóri sögunnar 1986, þegar Þór Guðjónsson hætti eftir 40 ár í því starfi. Fram til ársins 1998 hafði hann með rannsókn og stjórnsýslu að gera í veiðimálastjórn en hélt eftir það áfram stjórnsýslustörfum sem veiðimálastjóri. Embættið hefur verið á hrakhólum en starfssviðið núna innan Fiskistofu er svipað og áður, að sögn Árna, sem heldur í gamla góða starfstitilinn. Hann er eðlilega áhugamaður um veiði og útivist og sleppir að sjálfsögðu öllum fiski sem hann veiðir! Fyrr á ár- um lék Árni og söng í hljómsveit og hefur enn í dag gaman af því að „glamra“ á hljómborð og harmonikku í góðra vina hópi. bjb@mbl.is Árni Ísaksson veiðimálastjóri 65 ára Hjónin fagna 125 ára afmæli Ísafjörður Bríet Ósk fæddist 1. ágúst kl. 10.20. Hún vó 3.430 g og var 48 cm löng. Foreldrar henn- ar eru Linda Björk Ósk- arsdóttir og Halldór Ingi Magnússon. Holland Owen Þór fædd- ist 30. maí kl. 15.53. Hann vó 3.800 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Sigrún Hope Boat- wright og Halldór Ingi Haraldsson. Sudoku Frumstig 1 8 4 7 9 2 1 8 7 1 9 3 6 8 2 7 6 1 2 6 5 9 7 9 1 5 8 3 9 5 8 1 4 2 4 1 7 3 9 3 6 3 4 2 3 6 8 5 4 3 6 2 3 4 5 7 6 7 4 3 4 8 7 5 9 1 5 4 9 4 3 8 8 2 7 1 7 6 4 8 4 9 7 1 4 3 9 2 6 1 7 5 8 9 9 6 1 1 3 7 7 9 2 5 3 7 1 8 4 6 7 1 2 3 5 9 9 1 5 4 8 3 2 6 7 3 7 2 5 6 9 8 4 1 2 8 1 9 4 6 5 7 3 4 3 7 1 5 8 6 9 2 5 6 9 2 3 7 1 8 4 7 9 8 6 2 1 4 3 5 1 5 3 8 9 4 7 2 6 6 2 4 3 7 5 9 1 8 5 1 7 8 9 2 3 6 4 4 2 3 7 1 6 9 5 8 8 9 6 4 5 3 1 2 7 9 5 8 1 3 7 2 4 6 1 6 4 2 8 9 5 7 3 3 7 2 6 4 5 8 1 9 6 4 5 9 2 8 7 3 1 7 3 9 5 6 1 4 8 2 2 8 1 3 7 4 6 9 5 3 7 8 2 5 9 1 6 4 6 5 1 7 4 3 8 9 2 9 2 4 1 6 8 3 5 7 8 1 7 6 9 4 5 2 3 4 6 3 5 1 2 9 7 8 2 9 5 3 8 7 6 4 1 1 4 9 8 7 5 2 3 6 5 8 2 4 3 6 7 1 9 7 3 6 9 2 1 4 8 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoku. Í dag er miðvikudagur 26. nóvember, 331. dagur ársins 2008 Nýirborgarar Reykjavík Eva Natalía fæddist 12. ágúst kl. 14.14. Hún vó 3.715 g og var 52 cm löng. Foreldrar henn- ar eru Fanney Rut Þor- steinsdóttir og Daníel Tosti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.