Morgunblaðið - 26.11.2008, Síða 42
42 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008
DANIEL Barenboim stjórnar í
fyrsta sinn Metropolitanóperunni í
New York á föstudagskvöld, og
finnst mörgum undarlegt að hann
hafi ekki fyrr verið beðinn að stjórna
í þessu virta óperuhúsi. Barenboim
stjórnar sýningu á óperunni Tristan
og Ísold eftir Wagner en hann hefur
margoft áður stjórnað verkinu í öðr-
um óperuhúsum, meðal annars í Ísr-
ael, þar sem flutningur á verkum
Wagners er enn illa liðinn.
Barenboim þótti mikið undrabarn
á sínum tíma, og hann hefur átt
glæstan feril, bæði sem píanóleikari
og hljómsveitarstjóri, og hefur hann
verið í fremstu röð í hvoru tveggja
hlutverkanna.
Tvær hendur og fjórar
Það má segja að heimsókn Bar-
enboims til New Yorks sé meiri hátt-
ar áhlaup, því auk þess að debútera í
Met, heldur hann einleikstónleika á
sviði óperunnar 14. desember. Þar
ætlar hann einungis að spila verk
eftir Franz Liszt, en fyrsti slagurinn
í áhlaupinu voru tónleikar með list-
rænum stjórnanda Metropolitan-
óperunnar, James Levine, nú á
sunnudaginn, þar sem þeir léku fjór-
hent á píanó, verk eftir Schubert og
Brahms.
Barenboim, sem er gyðingur og
með ríkisborgararétt bæði í Ísrael
og Palestínu, hefur margsinnis kom-
ist í fréttir á síðustu árum fyrir ötula
baráttu sína á tónlistarsviðinu fyrir
friði milli Ísraels og Palestínu-
manna. Síðarnefndi ríkisborgarrétt-
urinn hlotnaðist honum fyrr á þessu
ári sem heiðursgjöf þegar hann hélt
tónleika í Ramallah, óopinberri höf-
uðborg Palestínumanna eftir að ísr-
aelsk yfirvöld höfðu bannað honum
að fara til borgarinnar.
Barenbo-
im í MET
Spilar með tveimur
höndum og fjórum
og debúterar í MET
Flinkur Daniel Barenboim.
MÁLVERKI eftir franska málarann
Matisse, sem nasistar stálu árið
1941, verður á morgun skilað til lög-
erfingja fyrrverandi eiganda þess.
Verkinu verður skilað með viðhöfn í
franska menntamálaráðuneytinu.
Það var iðnrekandinn Harry Fuld
í París, sem keypti verkið árið 1914,
og flutti með sér til Frankfurt, þar
sem hann bjó. Málverkið, sem heitir
Bleiki veggurinn – Le mur rose,
fannst árið 1948 í fórum fyrrverandi
stormsveitaforingja, sem kærður
var fyrir glæpi gegn mannkyni.
Matisse
skilað
Matisse Bleiki veggurinn.
JUST Julian er heiti tónleika
sem hefjast í Fríkirkjunni
klukkan 20 í kvöld. Á tónleik-
unum verða flutt verk eftir
Julian Michael Hewlett.
Eftir að hann útskrifaðist úr
tónsmíðanámi við háskólann í
Cantabury flutti Hewlett til Ís-
lands. Hann hefur samið fjölda
tónverka fyrir hljóðfæri og
söngvara. Til að fagna 20 ára
búsetu hér á landi stendur
hann fyrir þessum tónleikum, þar sem úrval verk-
anna hljómar, m.a. sönglagaflokkar, flautusónata,
kórverk, og kammerverk fyrir píanó, þverflautu
og básúnu. Fjöldi flytjenda kemur fram en Hew-
lett leikur á píanó og stjórnar kór.
Tónlist
Just Julian
í Fríkirkjunni
Julian Michael
Hewlett
HIN árvissa för nokkurra rit-
höfunda um Austurland verður
dagana 27. – 30. nóvember,
fimmtudag til sunnudags. Rit-
höfundarnir lesa þá úr nýút-
komnum verkum sínum.
Höfundarnir í rithöfunda-
lestinni að þessu sinni eru Æv-
ar Örn Jósepsson, Rannveig
Þórhallsdóttir, Jón Hallur
Stefánsson og Auður Jóns-
dóttir.
Á fimmtudagskvöld kl. 20 er lesið í Skriðu-
klaustri, á föstudaginn kl. 20 í Kaupvangi á
Vopnafirði og á laugardaginn kl. 20.30 í Skaftfelli,
Seyðisfirði. Að sögn aðstandenda ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi á bókavökunum.
Bókmenntir
Rithöfundar á ferð
um Austurland
Jón Hallur
Stefánsson
ÁHRIFAMÁTTUR leikbrúð-
unnar verður til umræðu á
Kúlukvöldi UNIMA, alþjóð-
legra samtaka brúðuleikhús-
fólks, sem fer fram í kvöld í
Kúlunni í Þjóðleikhúsinu.
Hallgrímur Magnússon geð-
læknir fjallar um áhrifamátt
brúðuleikhússins. Bergljót
Inga Kvaran, kennari og með-
ferðarráðgjafi hjá BUGL, mun
fjalla um hvernig nota má leik-
brúður í kennslu og uppeldi barna, sem og í for-
varnarstarfi og Hallveig Thorlacius brúðuleikari
fjallar um sýningu sem unnin er í samstarfi við
samtökin Blátt áfram. Kúlukvöldið hefst kl. 20,
ókeypis er inn og allir velkomnir.
Leiklist
Ræða áhrifamátt
leikbrúðunnar
Hallveig
Thorlacíus
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÞAÐ er alltaf frábært að koma til
Íslands. Það eru um þrjú til fjögur ár
síðan ég kom hingað seinast og það
er yndislegt að koma til baka og
leika,“ segir píanóleikarinn Philip
Jenkins sem leikur ásamt Guðnýju
Guðmundsdóttur fiðluleikara og Sig-
urgeiri Agnarssyni sellóleikara á
tónleikum í Hafnarborg á sunnudag-
inn, 30. nóvember.
Jenkins bjó á Íslandi á árunum
1967 til 1972 og kenndi við Tónlistar-
skólann á Akureyri auk þess að leika
víða. Eftir að hann flutti aftur heim
til Englands hefur hann verið fastur
gestur á tónleikum hér á landi.
„Ég hef komið hingað nokkuð
reglulega í gegnum árin. Það var
samt óvænt ánægja þegar Guðný bað
mig að koma núna. Ég hef ekki leikið
með henni í mörg ár.“
Stórt, langt og rómantískt
Tónleikarnir í Hafnarborg bera yf-
irskriftina Klassík við kertaljós. Efn-
isskráin miðast við að veita birtu og
yl inn í vitund áheyrenda en á henni
verður dúett fyrir fiðlu og selló eftir
Joseph Haydn, Sónata í a-moll fyrir
fiðlu og píanó eftir Robert Schumann
og píanótríó í B-dúr eftir Franz
Schubert, sem er jafnframt eitt vin-
sælasta kammerverk allra tíma.
„Ég hef víst leikið Schumann-
verkið einu sinni áður með Guðnýju
en það er svo langt síðan að ég mundi
ekki eftir því, treysti bara orðum
Guðnýjar fyrir því,“ segir Jenkis og
bætir við að verkið sé mjög stórt,
langt og rómantískt.
Gaman að sjá framfarirnar
Jenkins kennir nú í London við
Guildhall School of Music and
Drama. Í tveggja daga æfingarstoppi
hér á landi um miðjan nóvember var
hann fenginn til að hlusta á nokkra
píanónemendur. Hann segir það allt-
af vera mikið hrós að fólk vilji fá álit
hans.
„Það er gaman að sjá þær fram-
farir sem hafa orðið á tónlistar-
kennslu hér á landi síðustu ár, sér-
staklega með tilkomu Listaháskóla
Íslands.“
Tónleikarnir á sunnudaginn hefj-
ast kl. 20 en þeir eru liður í tónleika-
röð Tríós Reykjavíkur og Hafn-
arborgar, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar. Áskriftar-
kort gilda, en einnig verða seldir
stakir miðar við innganginn.
Klassík við kertaljós
Píanóleikarinn Philip Jenkins leikur í Hafnarborg með Guðnýju Guðmunds-
dóttur fiðluleikara á sunnudaginn Jenkins bjó á Íslandi á árum áður
Morgunblaðið/Golli
Spila saman Sigurgeir Agnarsson sellóleikari, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Philip Jenkins píanóleikari.
TRÚNÓ, og þú opinberar þinn innri mann, leið-
indi, drauma, langanir og þrár. Þannig verður það
í Iðnó í kvöld, þegar allir komast á trúnó með
Tómasi R. Einarssyni, hljómsveit hans og gest-
unum Ragnheiði Gröndal og Mugison, sem flytja
lög Tómasar af nýútkominni plötu: Trúnó.
Það sem opinberast í trúnaðinum í kvöld er að
sögn Tómasar ástin í öllum sínum myndum, ein-
semdin, timburmannaraunir og tilvist guðs.
Skáldin sem eiga ljóð á disknum eru; Halldór Lax-
ness, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristín Svava
Tómasdóttir, Steinn Steinarr, Sveinbjörn I. Bald-
vinsson og Vilborg Dagbjartsdóttir. Sjálfur á
Tómas þrjá textanna. Hljómsveit kvöldsins skipa
auk Tómasar, Ómar Guðjónsson, Davíð Þór Jóns-
son, Matthías MD Hemstock og Óskar Guð-
jónsson saxófón. Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Það má sennilega líka kalla tangóinn eins konar
trúnó – í það minnsta ef tekið er mið af ofurnánd
persónanna sem dansinn dansa. Það verður þó
fyrst um sinn aðeins spilað á tangótónleikum
Astors á Domo í kvöld, þar sem þetta tiltölulega
unga tangóband, skipað ofurreyndum tangó-
mönnum, leikur marga helstu tangóa argentínska
tónskáldsins Astors Piazzollas.
Á seinni hluta tónleikanna er hins vegar ætlast
til að fólk dragi upp dansskóna, því þá spilar Astor
dansvæna tangóa úr ýmsum áttum. Hljómsveitina
skipa Kjartan Valdimarsson píanóleikari, Hrafn-
kell Orri Egilsson sellóleikari, Kristinn H. Árna-
son gítarleikari og Gunnlaugur T. Stefánsson
bassaleikari, en sérstakur gestur Astors á tónleik-
unum verður franski bandoneonleikarinn Olivier
Manoury.
Trúnó og dýfa
Morgunblaðið/Valdís Thor
Tangómenn Hljómsveitin Astor leikur á Domo.
Tangó leikinn á Domo og trúnó með Tómasi í Iðnó
Það er sunnudags-
morgunn í íslensku
þjóðlífi, allt á rúi og stúi, lík-
in liggja eins og hráviði …47
»
Tríó Reykjavíkur var stofnað árið
1988 af Halldóri Haraldssyni píanó-
leikara, Guðnýju Guðmundsdóttur
fiðluleikara og Gunnari Kvaran
sellóleikara. Árið 1996 tók Peter
Máté píanóleikari við af Halldóri.
Tríóið hefur nú starfað í samvinnu
við Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar, síðan
haustið 1990. Í júní 1999 hlaut Tríó
Reykjavíkur viðurkenningu úr minn-
ingarsjóði stofnenda Hafnarborgar,
Ingibjargar Sigurjónsdóttur og
Sverris Magnússonar, fyrir framlag
til lista og menningar í Hafnarfirði.
Meðlimir tríósins eru allir kenn-
arar við tónlistardeild Listaháskóla
Íslands og er tríóið nú staðarkamm-
erhópur skólans.
Tríó Reykjavíkur var útnefnt tón-
listarhópur Reykjavíkurborgar fyrir
árið 2007.
Tríó Reykjavíkur