Morgunblaðið - 26.11.2008, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008
Þar sem ég stóð í Laugardals-höllinni á sunnudagskvöldog hlustaði á Sigur Rós
fannst mér sem vængjaþytur sög-
unnar bærist um salinn, að ég væri
að fylgjast með kaflaskilum í sögu
Sigur Rósar og um leið íslenskrar
tónlistarsögu og engin leið að spá
fyrir um það hvernig næsti kafli
myndi hefjast. Ljóst er að hljóm-
sveitin er að fara í langt frí og sú
Sigur Rós sem birtist okkur að
loknu því fríi verður ekki sama
hljómsveit og við kvöddum á sunnu-
dagskvöld.
Það er sunnudagsmorgunn í ís-lensku þjóðlífi, allt á rúi og
stúi, líkin liggja eins og hráviði,
sumir enn að sofa úr sér vímuna,
varla runnið af öðrum, en þeir sem
orðnir eru edrú að farast úr timb-
urmönnum og móral. Sigur Rós var
einhvern veginn utan við þetta allt,
fór sína leið án þess að taka mið af
sýndaruppsveiflunni. Hún seldi
ekki tónleika til stórfyrirtækja eða
auðmanna, spilaði ekki í afmælis-
veislum milljónera eða á árshátíð-
um úti í löndum, tók ekki þátt í pen-
ingaspilinu, var hún eins og utan
við dansinn þar sem sveitarmenn
létu listina hafa forgang, ráða ferð-
inni, og skeyttu lítið um það sem
mölur og ryð fá grandað.
Allt frá því ég sá síðskeggjaðansíðhærðan hippalegan strák
draga hnéfiðluboga yfir strengi á
rafgítar fyrir rúmum áratug og
hleypa þannig af stað mótaðri ólg-
andi óreiðu fram til þess að maður
sér svo þá mögnuðu tilfinninga-
maskínu sem hljómsveitin er orðin í
dag. Þeir félagar göntuðust með
það í spjalli um það leyti sem Ágæt-
is byrjun kom út að þeir væru lærð-
ir fegurðarsmiðir og hlógu ógur-
lega að svo upphafinni nafngift, en
svo kom að þeir standa undir því og
vel það; ekki bara ein frumlegasta
og merkasta hljómsveit landsins
undanfarin ár heldur einnig ein sú
vinsælasta.
Nú má ekki lesa þetta semminningargrein um Sigur
Rós; það er líklegt að hljómsveitin
snúi aftur eftir fríið, kannski eftir
tvö eða þrjú ár, en við vitum ekki
hvernig ný Sigur Rós á eftir að
hljóma, vitum ekki annað en að
hún verður frábær, en þá á nýjan
hátt.
Það má lýsa á lífinu einhvernveginn á þá vegu að fyrri hluta
ævinnar ætlar maður sér að verða
eitthvað og seinni hlutann reynir
maður að átta sig á því hvað maður
varð. Svo er það með líf hljóm-
sveita: menn hamast af stað með
dauðans greddu, til í allt, upp fullir
af alvarlegum hugsjónum, en eftir
því sem þær sveitir sem eitthvað er
spunnið í ná betri tökum á því sem
þær vilja segja og gera róast menn,
vanda sig meira og átta sig á því að
þeir eru ekki að fara að bjarga
heiminum með hamagangi.
Þrátt fyrir það að sú Sigur Róssem við þekkjum í dag sé horf-
in og komi ekki aftur finnur maður
ekki fyrir eftirsjá heldur frekar eft-
irvæntingu eftir því nýja; hver end-
ir er upphaf.
Lærðir fegurðarsmiðir
AF LISTUM
Árni Matthíasson
» Þó að sú Sigur Róssem við þekkjum í
dag sé horfin finnur
maður ekki fyrir eftirsjá
heldur frekar eftirvænt-
ingu eftir því nýja.
Morgunblaðið/hag
Kaflaskil Síðastliðinn sunnudag kvaddi Sigur Rós íslenska áheyrendur í bili – framundan er langt frí.
Sími 564 0000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
Reykjavík Rotterdam kl. 5:50 - 8 B.i. 14 ára
Igor kl. 4 - 6 LEYFÐ
Skjaldbakan og Hérinn kl. 3:45 LEYFÐ
Lukku Láki kl. 3:45 LEYFÐ
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS! NÆST STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
53.000 MANNS Á 18 DÖGUM!
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI!
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
- V.J.V., -TOPP5.IS/FBL - D.Ö.J., KVIKMYNDIR.COM
-S.V., MBL
- Þ.Þ., DV
- Ó.H.T., Rás 2
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA!
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Aðeins
500 kr.
SÝND Í SMÁRABÍÓI
“HROTTALEG MYND EN
SPENNANDI, ÓGNVEKJANDI
OG ÓVÆNT”
- S.V., MBL
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI!
53.000 MANNS Á 18 DÖGUM!
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS!
NÆST STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
HÖRKUSPENNANDI MYND UM
SPILLTA LÖGREGLUMENN
Sýnd kl. 5, 7:45 og 10:15 Sýnd kl. 5, 7:45 og 10:15
Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 6 m/ íslensku tali
- Ó.H.T., Rás 2
Nick and Norah´s kl. 3:40-5:50-8-10:10 LEYFÐ
Quantum of Solace kl. 5:30- 8-10:30 B.i. 12 ára
Quantum of Solace kl. 5:30- 8-10:30 LÚXUS
Quarantine kl. 10:10 B.i. 16 ára
My Best Friend´s Girl kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára
500 kr.
500 kr.
500 kr.
-bara lúxus
Sími 553 2075
FRUMSÝND Á
FÖSTUDAGINN
www.laugarasbio.is
500 kr.
500 kr.
500 kr.500 kr.
MIÐVIKUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR!
500 KR. Á ALLAR MYNDIR Í HÚSINU, ALLAN DAGINN!
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum