Morgunblaðið - 26.11.2008, Side 51
51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008
Klúbbtilboð
fyrir áskrifendur NEW YORK
þakkargjörðarstemning í Turninum
THANKSGIVING
25% afsláttur
Aðeins 5.625 kr. á mann
Fullt verð á mann er 7.500 kr.
NEW YORK þakkargjörðarkvöld-
verður í Veisluturninum, fimmtu-
daginn 27. nóvember, undir
ljúfum tónum Páls Rósinkranz.
Forréttir:
Grafinn nautavöðvi með
valhnetudressingu
New York skinka með
engifersinnepsgljáa
Dádýraterrine með piparrótarkremi
Aðalréttur:
Heilsteiktur kalkúnn með
rjómasoðnum kastaníuhnetum,
sultuðum kalkúnalærum
og kalkúnafyllingu
Moggaklúbburinn
Allir skráðir áskrifendur eru félagar í
Moggaklúbbnum og njóta þar með
tilboða um góð kjör á ýmiss konar
afþreyingu; bíómiðum,
listviðburðum, bókum og
hljómdiskum, auk þess sem
dreginn er út glæsilegur
ferðavinningur mánaðarlega.
mbl.is/moggaklubburinn
Meðlæti:
Sætar kartöflur, Waldorfsalat,
kornbrauð og maíssalat
Eftirréttir:
Graskersbaka
Eplabaka
Pecan-hnetubaka með
mascarponekremi
Borðapantanir síma 575 7500
Gildir fyrir tvo.
Afsláttur gildir ekki af drykkjum.
Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða
í síma 569 1122
um rætt mikið um að gera fram-
hald af myndinni og stúdíóið er
mjög spennt fyrir því, og það er
virkilega hvetjandi. Handritshöf-
undarnir og leikstjórinn, Michael
Patrick King, hafa fullt af sögum
sem þarf að vinna úr. Svo núna er-
um við að púsla þessu saman.“
Ekki er búist við öðru en að
meðleikkonur Parker, Kim Catt-
rall, Cynthia Nixon og Kristin
Davis, taki þátt í myndinni með
henni. Parker segir að ólíklegt sé
að persóna hennar Carrie, sem
giftist Big í seinustu mynd, eigi
börn í þeirri næstu. „Það lítur
ekki út fyrir að það sé neitt sem
hún velji sér, en ég veit ekki. Það
yrði svolítið furðulegt að troða
börnum inn í líf hennar því hún
virðist á leiðinni í allt aðra og
öðruvísi átt.“
SARAH Jessica Parker segir að
tökur á næstu Sex and the City-
kvikmynd hefjist líklega næsta
sumar. Fyrsta Sex and the City
myndin, byggð á samnefndum
sjónvarpsþáttum, sló í gegn í bíó-
húsum fyrr á þessu ári.
Parker segir að þegar sé byrjað
að móta hugmyndir um fram-
haldið. „Ég held að næsta sumar
sé góður tími fyrir tökur, svo
myndin komi út 2010. En það þýð-
ir að við þurfum að ákveða hvern-
ig þetta á að vera á næstu mán-
uðum,“ segir Parker um stöðu
mála og bætir við að aðalhöf-
uðverkurinn nú sé að finna
raunsæislegan söguþráð. „Við höf-
Framhald af Sex and the City
Reuters
Glæsilegar Kristin Davis, Sarah Jessica Parker, Cynthia Nixon og Kim
Cattrall á frumsýningu Sex And The City: The Movie í maí á þessu ári.
ALLT frá fyrstu tónum hrynsveit-
arinnar í „Nú eru aðrir tímar“ við
ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur ríkir
ljúfsár unaður í tónlistinni. Þessar
bóleró ballöður
Tómasar eru æv-
intýralega fal-
legar, ekki síst
„Veglaust haf“
við tíunda ljóð
Steins Steinars í
„Tíminn og vatn-
ið.“ Ragga sýnir frábært næmi í
söngnum og Tómas leikur hér einn
sinn besta bassasóló – þar sem
nema má andblæ frá dönskum beyk-
iskóg. Það er dálítið annað upp á
teningnum í „Klof vega menn“ við
ljóð Kristínar, dóttur tónskáldsins.
Ekki dugir að tónsetja slíkt titt-
lingaljóð í anda tilfinningatónlistar
og er tónlist Tómasar hér kraftmikil
án þess að rjúfa sambandið við
fyrstu ballöðurnar tvær eða þær
sem á eftir fylgja: „Hjarta mitt“ við
ljóð Halldórs Laxness, þar sem Ósk-
ar blæs ótrúlega þurran tenórsóló
þar sem tilfinningin blómstrar í
einni stígandi nótu, og „Þú“ við ljóð
Vilborgar Dagbjartsdóttur, sem
endar á lágstemmdu píanósólói Dav-
íðs Þórs.
Það verða kaflaskil með laginu við
kvæði Sveinbjörns I. Baldvinssonar
„Örljóði langþreytta drykkjumanns-
ins“. Lagið er skondin sítekning við
örtexta og söngtríóið (Tómas, Davíð
og Ómar) ljær lokum þess hallær-
isblæ. Er maður kominn í réttirnar?
Mugison setur blúsaðan svip á
„Náunga mína“ við ljóð Kristínar
Svövu. Fínn performans og Davíð
trylltur við hammondið – en ein-
hvern veginn rímar þetta ekki held-
ur við upphafslögin fimm. Bassinn
byrjar „Vor“ við ljóð Sveinbjarnar
flott og rímar vel við fyrstu lögin
fimm. Þá koma „Stolin stef“ sem
fyrst mátti heyra á skífunni „Á góð-
um degi“ Þessi fallega norræna ball-
aða Tómasar fellur því miður flöt til
jarðar í dúett þeirra Röggu og Mug-
isons. Söngtríóið lýtir enn í „Alls
óvænt“.
Í „Morgni“ við ljóð tóskáldsins, er
þráðurinn tekinn frá „Vetri“. Ragga
er á mörkum þess væmna í söng sín-
um en sleppur fyrir horn sem jafnan
fyrr. Lokalagið „Sumarkvöld við
Hvalfjörð“ er við ljóð Ingibjargar
einsog upphafslagið og er algjört
yndi og sóló Ómars perla í einfald-
leika sinum. Þarna einsog alls stað-
ar á skífunni er trommusláttur
Matthíasar það bjarg sem byggt er
á. Næmur, taktviss og fjölbreyttur.
Ljúft og
sætt á
köflum
TÓNLIST
Geisadiskur
Tómas R. Einarsson:
Trúnó bbbbn
Tómas R. Einarsson, bassa, ásamt Ósk-
ari Guðjónssyni, saxófón, Davíð Þór Jóns-
syni, píanó og hammond, Ómari Guðjóns-
syni, gítar, og Matthíasi M. D.
Hemstock, trommur og slagverk.
Söngvarar: Ragnheiður Gröndal
og Mugison.
Blánótt BN 006. Reykjavík 2008.
Vernharður Linnet@
Fréttir
á SMS