Morgunblaðið - 26.11.2008, Page 52

Morgunblaðið - 26.11.2008, Page 52
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÞETTA er mikil viðurkenning og hvatning,“ seg- ir Margrét Gísladóttir, geðhjúkrunar- og fjöl- skyldufræðingur, sem ásamt Þórdísi Filippusdótt- ur, einkaþjálfara og nema í Ráðgjafarskóla Íslands, og Sólveigu Katrínu Jónsdóttur listmeð- ferðarfræðingi stendur að baki Prismu, en Prisma var eitt tíu verkefna sem fyrr í vikunni hlaut hæst- an atvinnustyrk félagsmálaráðherra til kvenna að upphæð 2 milljónir króna Prisma er þverfagleg miðstöð fyrir þá sem glíma við átröskun en henni var komið á fót fyrir fjórum árum. Átröskun er alvarlegt sálrænt vandamál, sem getur valdið heilsutjóni. Átröskun birtist í mismunandi myndum og er henni skipt í tvo meginflokka, lystarstol (anorexía) og lotu- græðgi (bulimía). Í samtali við Morgunblaðið segja Margrét og Þórdís styrkinn gera hópnum sem standi að Prismu nú kleift að þróa starfsemi og þjónustu Prismu. „Þessi styrkur hjálpar okkur að útfæra þau verkefni sem framundan eru, s.s. að koma okkur upp heimasíðu og gefa út bækling um starf- semina, auk þess sem við höfum fjármagn til þess að koma okkur upp þeim tækjum og tólum sem til þarf þegar við flytjum í stærra og hentugra hús- næði sem verður vonandi með vorinu,“ segir Mar- grét og tekur fram að einnig standi til að fjölga starfsfólki og auka þau úrræði sem Prisma býður upp á. Sem stendur starfa þrjár starfsstéttir á Prismu en þegar mest var voru stéttirnar fjórar. Innleiða 12 spora kerfið „Styrkurinn sem við sóttum um snýst ekki síst um það að innleiða nýjungar í starfi okkar hér í Prismu. Framundan er þróunarvinna við að inn- leiða 12 spora kerfið í vinnuna með átröskunar- sjúklinga en reynslan sýnir að það kerfi hefur gef- ist vel í baráttunni við átröskun,“ segir Þórdís. Bendir hún á að með því að notað 12 spora kerfið, sem fram að þessu hefur mestmegnis verið notað í fíkniefna- og áfengismeðferðum með góðum ár- angri, sé byggt á þeirri hugmyndafræði að átrösk- un sé fíkn. Bendir Þórdís á að samtökin ABA, sem stendur fyrir Anorexics and bulimics anonymous, hafi notað 12 spora kerfið hérlendis. Viðurkenning og hvatning  Prisma, þverfagleg miðstöð fyrir þá sem glíma við átröskun, fékk 2 millj. kr. styrk til atvinnusköpunar kvenna  Stefnt að opnun heimasíðu og fjölgun starfsmanna Morgunblaðið/Valdís Thor Styrkþegar Þórdís og Margrét starfa hjá Prismu. MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 331. DAGUR ÁRSINS 2008 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SKOÐANIR» Staksteinar: Birna gamla og nýja Forystugreinar: Fjármögnun skulda Aukum ekki kynbundið ofbeldi Pistill: Rof milli viðskipta og … Ljósvaki: Engin gerilsneydd … UMRÆÐAN» Hvers vegna bankaleynd? Má brenna hjá þér? 3! 3!" &3! 3!   3 "3 3& !  3  4$  +5'$ . * + 6$   $.$  3! &3 3  3& "3& 3&" !3 3"!! - 71 ' &3&" 3!! &3 3  3& "3  3&""& !3 89::;<= '>?<:=@6'AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@'77<D@; @9<'77<D@; 'E@'77<D@; '2=''@F<;@7= G;A;@'7>G?@ '8< ?2<; 6?@6='2*'=>;:; Heitast 1 °C | Kaldast -10 °C Norðlæg átt 3-8 m/s en víða 8-13 m/s síð- degis. Snjóar á Norð- urlandi og á Vest- fjörðum í kvöld. »10 Illmenni sögunnar eiga það sameig- inlegt að hafa notið aðstoðar venjulegs fólks sem varð að morðingjum. »48 BÓKMENNTIR » Bók um illmenni KVIKMYNDIR» Fátt um fína drætti í Pride and Glory. »46 Árna Matthíassyni fannst vængjaþytur sögunnar berast um Laugardalshöllina á tónleikum Sigur Rósar. »47 AF LISTUM» Vængjaþyt- ur sögunnar FÓLK» Aniston hafnaði bónorði Mayers. »49 DÓMUR» Enginn kreppubragur á viðhafnarútgáfunni. »49 Menning VEÐUR» 1. Krafa um að viðtali við Geir … 2. Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri 3. Jórunn Brynjólfsdóttir látin 4. Efast um að Davíð eigi við sig »MEST LESIÐ Á mbl.is SNORRI Steinn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik, þarf að gangast undir aðra að- gerð á hné. Hann leikur með GOG í Dan- mörku og fór í aðgerð á hné á vegum félagsins í september en svo virðist sem sú að- gerð hafi algjörlega mistekist og nú bendir allt til að hann fari í aðra að- gerð hér á landi. | Íþróttir Þarf í aðra aðgerð Snorri Steinn Guðjónsson EMILÍANA Torrini ætlar að halda tónleika í Háskólabíói laug- ardagskvöldið 13. desember næst- komandi. Um nokkur tímamót er að ræða í ljósi þess að Emilíana hefur ekki haldið tónleika hér á landi í um tvö og hálft ár, eða frá því í júlí árið 2006. Hún hefur verið á tónleikaferðalagi um allan heim að undanförnu, og er til að mynda nýkomin heim frá Ástr- alíu. | 44 Emilíana í Háskólabíói Emilíana Torrini „ÉG er þakklát fyrir veru mína hér á landi sl. átta ár, því það var hér sem ég áttaði mig á því að ég er mann- eskja. Í dag er ég sterk og sjálfstæð kona,“ sagði Eme- bet Merkuria, á morgunverðarfundi UNIFEM í gær. Á fundinum lýsti Emebet, sem er fædd og uppalin í Eþí- ópíu, reynslu sinni af því að búa í samfélagi þar sem of- beldi gegn konum er samþykkt sem hluti af samfélags- gerðinni. „Í Eþíópíu er litið á konur sem annars flokks þegna og karlmenn hafa bæði rétt og völd til þess að ráðkast með konur og beita þær ofbeldi,“ sagði Emebet og tók fram að fyrst á Íslandi hefði hún kynnst jafnrétti kynjanna af eigin raun. | 12 Kynntist jafnréttinu fyrst á Íslandi Morgunblaðið/Valdís Thor Borgarleikhúsinu Vestrið eina Skoðanir fólksins ’Peningamálastefnan er nú í hönd-um Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ogverða menn að bíða og sjá hverniggengur að koma krónunni á flot. Hinsvegar tapast störf daglega og gjald- þrotum fjölgar. Gífurleg verðmæti fara þannig núna daglega til spillis og auka á almenna reiði sem fyrir er í samfélag- inu. » 28 MATTHÍAS KJELD ’Ég vil sjá röskan helming Alþingisskipaðan nýjum fulltrúum hóf-semdar, heiðarleika og virðingar fyrirlandinu. Ég vil sjá Sjálfstæðisflokkinnkominn í framsóknarfylgi og Framsókn- arflokkinn í helftina af því sem eftir er, þótt lítið sé. Þessi öfl bera öðrum frem- ur ábyrgð á uppnáminu. » 29 SVERRIR ÓLAFSSON ’Þjóðin er öskureið, og lái henni hversem vill. Fyrir utan skuldabaggasem við erum að binda blessuðum börn-unum okkar, hefur upplýsingastreymi ogsamstarf við stjórnarandstöðuna og al- menning allan verið skorið svo við nögl að til háborinnar skammar er. Svo, allt í einu, er búið að „semja“. » 30 BALDUR ÁGÚSTSSON ’Verðtryggð krónulán eru að étaupp eignastöðu heimilanna í land-inu með ógnarhraða. Fjöldi fólks á eftirað standa uppi eignalaust þegar þess-um hremmingum lýkur. Nýkynntar ráð- stafanir ríkisstjórnarinnar til verndar heimilum í landinu breyta þar engu um. Spáð er hækkandi verðbólgu á næstu misserum og verðtryggingin mun fylgja á eftir með gapandi ginið. » 31 SIGURJÓN GUNNARSSON ’Á Íslandi höfum við þau forréttindiað standa nú frammi fyrir því aðgeta skapað okkar eigin framtíð og þaðer það jákvæða við þessa kreppu. Mikiðer rætt og margt skoðað í grunninn. Spurningin er: hvers konar framtíð vilj- um við? » 32 PÉTUR GUÐJÓNSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.