Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.01.1914, Page 3

Skinfaxi - 01.01.1914, Page 3
SKINFAXI 3 Landssjóðsstyrknum á sambandsjiing að ráðstafa sérstaklega. Samband og sam- vinna milli þessara héraðasambanda yrði ekki annað, en rnilli fjórðunganna nú. II. Beinasti vegurinn til þess að gera sér Ijóst, hvort affarasælla myndi fyrir sam- band U. M. F. L, þessar nýju tillögureða skipulag það sem nú er, er sá, að gera sér grein fyrir hver er meginástæða og meginhugsun þess, að fjelögin hafa stofnað sambandið. U. M. F. I. er stofnað i þeim tilgangi, að hin einstöku fjelög innan þess geti haft lótti, gagn og stuðning hvert af öðru, til þess að þau i sameiningu geti haft veruleg not þess fjárstyrks sem þeim er veitt- ur sameiginlega, og geti einnig haft veruleg not þess fjár, sem þau hafa komið sér saman um að greiða, hvert um sig, í sam- eiginlegan sjóð. Sambandið er reist vegna þeirrar viðurkendu reynslu, að það sem eitt félag getur ekki veitt sér, áhuga- málum sínum til stuðnings og félögum sin- um til þroskaauka, það geti það veitt sér i samvinnu við önnur. En hér bætist eitt meginatriði við. Því fleiri sem félögin eru í sambandinu, því meiru verður á veg kom- ið hverju einstöku félagi til gagns, þvi að kostnaðurinn við starfsemi sambandsins vex ekki í hlutfalli við fjölgunina. Þvi fleiri sem félögin eru í sambandinu, þvi minni verdur kostnadurinn hlutfallslega. Með öðrum orðum: Því fleiri sem félög- in eru í sambandinu, þvi meira gagn get- hvert einstakt félag haft af því með sama framlagi frá sér. En því minni sem samböndin eru, því meir sem niður er bútað féð, sem er handa á milli, því meiri verður kostnaðurinn hlut- fallslega, og því erfiðara verður að koma nokkuru verulegu i framkvæmd. Nú lægi næst að segja, að ísland ætti þá alt að vera óskift samband. Rétt er það, það væri best — ef samgöngur væru svo, að ein stjórn gæti átt greið viðskifti við félögin. En vegna samgangnanna og fjarlægðar verða miðstöðvarnar — aðset- ur stjórnanna — að vera fleiri en ein, en þær eiga að vera sem fæstar. Nú ræði ég hér aðallega um Sunnlendingafjórðung sem svo kallast hjá okkur. Þar er Reykjavik slík sjálfkjörin miðstöð, fyrst og fremst vegna póstsamgangna, bæði á sjó og landi, sem eru það bestar þangað, að jafnvel ósjaldan eru þær betri við Reykjavík en milli staða innan sömu sýslu; i öðru lagi eiga erindi til Reykjavíkur margir menn úr þess- um héruðum, tíðar ferðir eru þangað og oft alllöng viðstaða þar, og í þriðja lagi er þar svo góður staður að koma á fót og sækja námsskeið, þing og annað, er félög sambandsins vildu til stofna. Nú eru það tillögur Páls Zóphónías- sonar, að húta Sunnlendingafjórðung sund- ur í ein 4 eða 5 héraðasambönd. Um það segi eg: 1. Það er gagnstcett aðal- hug-suninni með að stofna samband, því samböndin eiga að vera sem stærst. 2. Kostnaður verður hlutfallslega miklu meiri en gagn hlutfallslega minna. 3. Kostn- aður verður líkabeinlínis meiri því þá þarf að kosta 4—5 stjórnir í staðeinnar. 4. Miklu verður hættara við því, að árekstur veiði um fyrirlestrastarf, iþróttakenslu og ann- að, er 4—5 stjórnir, hver um sig, skipaðar mönnum hingað og þangað um héruðin, eiga að ráðstafa ferðum, semja áætlanir o. s. frv., því að aldrei verður svo mörg- um fyrirlesurum á að skipa. 5. Engu veru- legu fyrirtæki verður til leiðar komið, því nauðalítið fé kemur hver stjórn til að hafa handa á milli. 6. Samhandið verður miklu lausara og óverulegra en verið hefir. III. Nú hefi eg sýnt fram á, hverjar afleið- ingar yrðu af því fyrir Sunnleudingafjórð- ung i heild sinni, yrði hann bútaður nið- ur eftir hinum nýju tillögum. . En hér bætist enn við atriði sem gerir nýju tillögurpar enn óaðgengilegri.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.