Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1914, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.01.1914, Blaðsíða 12
12 SKINFAXI. Á skíðum. Því miður eru ]iað margir íslendingar, seni ekkert vita hvað það er, að fara á skíðum. Ég er alveg hissa á því, að þetta snjall- ræði gegn algengustu örðugleikunum sem snjónum fylgja skuli ekki vera frekar notað en það er, — eins og það er þó orðið gamalt. Að geta á skíðum ílotið á snjónum, eins og á skipi á sjónum! Þau eru alveg hliðstæð bát, skiðin, og þó kannske öllu fremur seglskipi eða jafn- vel eimskipi. Báturinn er í nausti á vetrum — skíð- in á sumrum. Bátnum verður að róa en ganga á skíðunum. En það er hægt að sigla þeim, alveg eins og skipi og ná meiri hraða á þeim en skipunum. En svo kemur brekka, — þá verða skíðin eimskips-ígildi og meir en það, þau eyða engum kolum ! Þau líða áfram með mann, fyrirhatnarlaust, að eins þarf að stýra þeim. Að svona gagnlegt, óbrotið og ódýrt samgöngufæri skuli ekki vera í hvers manns eigu eða a. m. k. i eigu hvers heimilis! Og þeim fylgir önnur náttúra en þessi, að hjálpa mönnum til að komast ferða sinna. Fátt er betri leikur — hollari iþrótt — en að fara á skiðum. Það vita þeir, sem tekið hafa skíðin sín að morgni í góðu færi og komið heim að kveldi, eftir að hafa komist langt á skömm- um tíma. Eða hinir, sem fóru að eins upp á næstu brekku. Brekkan er að vísu þung fyrir fótin — það er hún altaf — en þeim finst það samt borga sig að fara hana, og þeir gera það oft, hvað eftir annað. Ég veit mörg dæmi þess, að bagalegt hefir verið að menn kunnu ekki á skíð- um eða að skíðin voru ekki til. Sum þeirra eru jafnvel af læknum sem sitja urðu heima, þegar hjálpar þeirra þurfti. Þeir treystu sér ekki að „kafa“! Og einn þeirra hefi ég vitað sóttan á sleða yfir fjallveg í besta skíðafæri, en fjórir menn drógu hlassið. Þetta er ekki að bjarga sér eins og best gengur. En ég hefi líka vitað dreng um fermingaraldur það fræk- inn á skiðum, að hann fór og „stóð“ niður það háa, þverhnípta brekku, að eldri bróðir hans þorði ómögulega að renna sér hana niður sitjandi á tunnustafaskíðum! I fyrra vetur mun einna tilkomumest skíðaför hér á landi hafa verið farin. Það var þegar þeir L. Möller (norskur maður), Tryggvi Magnússon og Herluf Clausen fóru úr Reykjavík upp í Lunda- reykjadal um Kolviðarhól, Þingvallasveit, Botnsdal, Hálsasveit og heim aftur, á 5 dögum. — Fóru þeir oft langar dagleiðir, alt að 62 röstum, þótt dagur væri stuttur. Enda höfðu þeir segl i förinni og þegar byrjaði vel, gátu þeir siglt upp brekkur.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.