Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1914, Blaðsíða 1

Skinfaxi - 01.02.1914, Blaðsíða 1
S&vxvjaxx 2. BLAÐ REYKJAVÍK, FEBRÚAR 1914. V. ÁR Nýi tíminn. Anderson. Flestir íslendingar munu nú þegar kannast við Anderson, smásögu eftir E. H., sem út kom í haust. Söguhetjan er heimsnúinn Vestur-íslendingur, harö- snúinn, ráðkænn, veraldarvanur og auðug- ur. Hann hittir fyrir hér heima, á æsku- stöðvunum, frænda sinn, roskinn mann, héraðshöfðingja og búfork. Hann er karl i krapinu en á forna visu, og stendur ekki frænda sínum snúning, er Anderson vill jafna gamlar væringar. Það eru nýi og gamli tíminn, sem þar eigast við ójafn- an leik. Hið gamla er dauðadæmt fyrir hinu nýja og sterka. Nýl tíminn. Mikill sannleiki er fólginn í sögu þessari; nýi tíminn er i heiminn kom- inn. Hann er voldugur og sigursæll og j)ó varla nema aldar gamall; nú spennir hann greipar um heim allan og ná klærnar inn fyrir islensku landssteinana. Hvarvetna liggur gamli „frændi“ sigraður og uppgef- inn að fótum hans. Enginn lýsirþessum risavaxna Anderson í stuttri grein; til þess er hann of mikil- fenglegur; hann er heilt tímabil, hann er alda, sem fer um heim allan, sem lifir í mörg hundruð ár, og mótar á sína vísu óteljandi mannlegar verur, sumar til góðs, sumar til ills, en flestar á báða vegu. Hér má aðeins greina eitt höfuðeinkenni hans, en það er, að hann lœtur náttúruöflin vinna fyrir sig. Gamli tíminn. Fyrir rúmum mannsaldri var ólíkt um að litast hór á landi. Þjóð- in var að heita mátti ein stétt, dreifð um dali og strendur landsins. Hvert heimili var heimur fyrir sig, næstum sjálfstæður og sjálfum sér nógur. Fólkið lifði að mestu á heimaframleiddum mat, gekk á heimaunnum fötum, bjó í heimagerðum bæjum. Lítið var til að selja, og lítið hægt að kaupa. Breytingar út um lönd náðu ekki hingað. Þjóðin var engum viðskiftataugum bundin við önnur lönd. Þetta var einfalt líf, fátækt en óháð. All- ir unnu fyrir daglegu brauði; hreifiaflið var orka mannsins, til hvers sem var. Mjög svipað þessu var ástandið i suðlæg- ari löndum, þótt auður væri þar meiri, og menn skiftir í stéttir eftir því. Mannsafl og Þannig lifði heimurinn í friði gufuafl. og ró, þangað til hugvitsmönn- unum tókst að gera verkvélar, sem unn- id gátu i staðinn fyrir manninn; þær vélar eru nú óteljandi, en móðir þeirra er gufuvélin. Hún var beislið, sem snilli spekinganna lagði á heljarmagn gufunnar. Ein slik vél hafði hundrað manna afl. Hún var fyrirtaks þjónn, þreyttist ekki, þurfti ekki að sofa, heimtaði ekki kaup, möglaði ekki og kærði sig ekki um vista- skifti. Hún var andi lampans, sem gerði hverskonar stórvirki fyrir eigandann. Hún ein kemdi, spann og óf meir en alt fólkið i heilum hrepp. Hún dró vatnið, málm- inn og Kolin upp úr námunum. Hún þaut með skipin yfir höfin og vagnana eftir járnbrautunum. Hún virtist næstum al- máttug. Dautt náttúruafl kom í stað manns-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.