Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1914, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.02.1914, Blaðsíða 10
24 SKINFAXI hann breytinguna vera sama og að byggja háðum fornmálunum út úr skólanum og landinu, því að latínunámið væri nú svo lítið, að það væri til engra nota. Það væri breytingarsýki og nýungagirni, sem kæmi -okkur til að rífa niður alt sem gamalt væri, líka j>að sem gott mætti teljast. Skaðinn við að missa fornmálin væri ivennskonar. Fyrst væri latínan gagnleg, öllurn málfræðingum og þeim er stunda vildu sögu Islands. I öðru lagi væri forn- -tungnanámið einkarvel fallið til að venja menn á vísindlega starfsaðferð. Og á lat- ínu væri öll hin vísindalega niðurskipun máttúrufræðinnar. Engin af sönnunum Á. P. er verulega veigamikil. Að vísu þurfa málfræðingar -og sagnfræðingar á latínu að haldi við störf sín. En livað eru þeir menn marg- ir ? Þeir eru teljandi á fingrum sér hér á landi. Og ætti að ala upp alla aðra háskólamenn á latínu-vísu vegna þessara fáu manna? I öllum menningarlöndum er deilan um fornmálin nú á dagskrá, og alstaðar hall- ar á gamla tímann. Til að skilja þetta verður að líta til baka. A hverri öld verð- ur mál hinnar sterkustu þjóðarað hcims- máli, að sambandsmáli margra aðgreindra þjóða. Á því máli tala þær saman, skrif- ast á, og á því máli fræðast þær af meist- .araverkum bókmentanna. Á dögum Al- exanders mikla varð grískan heimsmál, og 'hélt þeim veg, uns Rómverjar urðu heims- drotnar og mál þeirra tók að hafa mest notagildi fyrir þjóðir þær er lutu þeim, eða skiftu við þá. Eftir nokkrar aldir féll Rómaveldi til grunna, en kirkjan hafði vaxið upp i skjóli þess og notaði latínu sem alls- herjarmál. Á miðöldunum öllum var kirkjan eina andlega stórveldið; hún ritaði og mælti á latínu. Þá voru engar þjóð- lungur til svo þroskaðar að á þeim væri ritað, nema ein; það var íslenskan. Og þá urðu til gullaldarbókmentir okkar, með- an alt andlegt líf með öðrum þjóðum var hnept i dauðafjötur latinunnar. Þegar kom fram um 1500 risu upp skólar og háskólar — viða óháðir kirkjunni. En þar sem þjóðtungurnar í Evrópu sunnan- verðri voru i algerðri órækt, og ekkert á þeim ritað sem teljandi var, þá neyddust mentastofnanir þessar til að nota grísku og latínu, þau tvö mál, sem siðast höfðu verið heimsmál og, auðugust af bókment- um. Var nú latina lærð i öllum menta- skólum; hún var kend og töluð í háskól- unum; kirkjumenn, vísindamenn, stjórn- málamenn, þjóðhöfðingjar, kaupmenn og ferðamenn notuðu nú latínuna fyrir heims- mál. Á 17. öld blómgvaðist mjög veldi Frakka bæði i landvinningum og bókmentum. Mál þeirra varð auðugt, þroskað og fágað; það var lært, lesið og talað út um alla Evrópu. Það varð mál stjórnmálamanna allra þjóða og hefir verið það síðan. Á 18. og 19. öld myndaðist heimsveldi Eng- lendinga, hið mesta sem heimurinn bafði sóð, síðan Rómverja leið. Bókmentir þeirra og vísindi urðu að sama skapi auðug, svo að sagnfræðingurinn Macaulay gat sagt um 1850, að þá væri enskar bókmentir dýrmætari og ríkari orðnar en alt það sem ritað hefði verið á grísku og latínu til samans. Engri hlutdrægni var til að dreifa í þessum dómi, því að Maeanlay var hinn mesti fornaldarvinur og alinn upp undir áhrifum fornmálanna. En enska hefir nú svo sem kunnugt er orðið sannarlegt heims- mál, mál það sem viðast er talað og skil- ið, mál verslunarmanna og ferðamanna, og hið auðugasta vísindamál. Síðast komu Þjóðverjar í byrjun 19. ald- ar og ruddu sér til rúms. Hefir mál þeirra á öldinni sem leið orðið hið þriðja heims- mál, samhliða frönsku og ensku. Koma þessi þrjú mál nú í sama stað þeirri öld er við lifum á, eins og gríska og latína í fornöld og miðöldum. Þessi þrjú máleru

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.