Skinfaxi - 01.02.1914, Page 13
SKINFAXI
27
jíffp *TTiiiiiiiiiiiiiií^iiiiiiiiiiiiiiinl*^jnin)inii|j^~'jnnlninimn[^p]][ll^>'/j))lillljl]|]jj^,'^iiiijmiyjiliH|'^ ^niiiiiiiiiiin^^ >iiiiiiii)iiinnr^ VTnnr^l
I yí
SKINFAXI
1 — raánaðarrit U. M. F. í. — kemur út í Reykjavlk
j og kostar 1 kr. árgangurinn, erlendis 1,50 kr.
RITSTJÓRI :
Jónas Jónsson frá Hriflu.
Skólavörðustig 35.
| Afgreiðslumaður:
Bjarni Þ. Magnússon Skólavörðustlg 6 B.
Ritneind:
Agúst Jósefsson, Guðbrandur Magnússon,
Tr. Þórhallsson.
_w
þenja borgirnar meira og meira út, svo að
]iœr verði heilnæmari en nú er. Lítill vafi
er á að frumvarp þetta nær bráðlega fram
að ganga, enda er það hin þarfasta réttar-
bót, og hún miðar eins og aðrar umbæt-
ur L. G. að því að lækna djúpu sárin.
Frelsið í Kína.
Kínverjar hafa átt í ströngu að stríða
árið sem leið. Fániennur flokkur yngri
manna, sem mentast höfðu í Vesturlönd-
um, eða orðið fyrir áhrifum þaðan, höfðu
hrundið keisaraættinni frá völdum, og stofn-
að Iýðveldi, með þingstjórn að sið Vest-
manna. En breytingamennirnir voru of
fáir; fólkið vant að hlýða, en ekki að
stjórna, og kunni ekki með valdið að fara.
Lenti því alt í máttlausri sundrung og
flokkadrætti bæði út um land og í þing-
inu. Bráðabirgðarforsetinn sá að eigi
dugðu hér mildar tiltektir,og að með hörk-
unni einni fengist friður í landinu, en
stjórnin var félaus og þingið kom sér aldrei
saman um að samþykkja lántöku. Forsetinn
tók þá 400 mill. kr. að láni í Vesturlönd-
um, og bauð út hér móti óvinum sinum.
Þeir voru margir en fjárvana, enda fór
hér sem oftar að margir eru vinir þess
sem féð hefir. Beygði forsetinn nú óvini
sína, suma með valdi en aðra með mút-
um og fégjöfum og var hann nú Iöglega
kjörinn forseti. Heldur líkaði honum illa
flokkaskipunin í þinginu, og hreinsaði það-
an alla mótstöðumenn sína, en þeir voru
um 400. Var þá þingið orðið of fáment
til að geta haldið löglega fundi, og gaf
forseti vinum sínum heimfararleyfi um óá-
kveðinn tíma „þar til þing getur komið
saman næst“. En til aðstoðar stjórninni
heíir hann 71 fulltrúa með ráðgefandi valdi..
Er því svo komið að einveldi er í Kína,
svo sem fyr var, aðeins skift um nöfn á
einvaldsdrotninum. Stjórnarbyltingin hefir
til einkis orðið og allar hinar aðfluttu frelsis-
fjaðrir úr Vesturlöndum eru foknar út í
veður og vind. Hver ómentuð og and-
lega ósjálfstæð þjóð lendir áltaf undir ein-
veldi, hvernig sem hún brýst um ; og engu
skiftir, hvort harðstjórinn er nefndur keis-
ari, konungur, forseti eða flokksforingi á
þingi, það er einveldi samt, sem byggist á
þroskaleysi þegnanna.
Öræfajökull.
Asgr. Jónsson, málarinn okkar góði, fer
um landið á hverju sumri og málar marga
fegurstu staðina. Málverk hans eru reynd-
ar mjög ódýr borin saman við erlend mál-
verk jafngóð, en þau eru samt ofdýr til
að þorri manna í landinu geti glatt sig
við að hafa snildarbrag þessa listamanns
fyrir augunum. Þó hafa flestir þörf og
löngun til að prýða heimili með myndum
en þar sem á fáu er völ ber valið alt of
oft vott um lítinn smekk. En það kemur
auðvitað af því að um fátt og lélegt var
að velja.
Nú hefir Þórarinn Þorláksson málari
og kaupm. í Rvík látið litprenta, eitt af
málverkum Ásgríms, mynd af Örœfajökli.
Hún er ágætlega prentuð, og svo lík frum-
myndinni sem framast má verða. Mynd
þessi fæst hjá öllum bóksölum og kostar
2 kr. Allir listavinir, sem ekki hafa efni
á að kaupa dýr málverk, ættu að kaupa
þessa mynd. Með því eignast þeir ágæt-
an grip, og styðja að því að hr. Þ. Þ. geti
gefið út sem flestar slikar myndir, svo að*
list og snild Ásgríms komist inn á hvert
heimili í landinu.