Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1925, Page 4

Skinfaxi - 01.12.1925, Page 4
116 SKINFAXI ungmennafélaga sinna. Svipað má segja um ungmenna- félög og unglingaskóla á Vestur- og Suðurlandi. Störf félaganna, þau sem hér hafa verið talin, mega aðeins heita hjáverk þeirra, aðalverkið er fólkið í því að vinna fyrir andlegt uppeldi æskulýðsins, cða búa liina vaxandi kynslóð undir þau verk, sem hún á að vinna á fullorðinsárum æfinnar. Gera þau það með mál- fundum sínum, félagsblöðum, námskeiðum, fyrirlestra- starfsemi, Skinfaxa o. fl. pað er markmið félaganna að vinna fyrir íslenskt þjóðerni, íslenska tungu og þjóðlegar framfarir í verk- legum efnum. Alkunnugt er að stefnuskrá ungmennafélaga er svo frjálsleg og rúm, að hverskonar skapgerð getur notið sín innan vébanda hennar. Vegna ungmennafélaga á æskulýður landsins kost á að beina hug sínum og starfs- orku í rétta átt. Vegna þeirra er hægt að koma í veg fyrir, að efnilegir unglingar lendi í óreglu og auðnu- leysi. Margir af atorkumestu og víðsýnustu mönnum þjóð- arinnar hafa játað, að ungmennafélögin hafi verið þeirra fyrsti og að ýmsu hinn besti skóli, þau liafi gef- ið þeim framsóknarþrána og útsýni yfir víða heima. þ>au hafa náð hér mikilli útbreiðslu og fjölmennu fylgi meðal æskumanna landsins, því hefir starfsemi þeirra að vissu leyti fallið hér í góða jörð og orðið þjóðinni ómetanlega mikils verð. En smásálarháttur og samúð- arleysi eldri nágranna þeirra hefir dregið úr framför- um. Oft ’hefir eldri| kynslóðin stagast áiþví, að ungmenna- félög létu ekkert verklegt eftir sig liggja. Henni hefir fundist líklegt að liáar hallir eða önnur stórvirki sæust í slóð þeirra, hvar sem þau væru. pá hefir verið hörmu- leg kvrsttiða og jafnvcl afturför í mörgum sveitum landsins undanfarin ár. petta hefir því miður gerst innan verkahrings fulltíða manna, sem liafa öll ráð yfir

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.