Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1925, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.12.1925, Blaðsíða 9
SKINFAXI 121 ann í nábýli eða sambýli við annan skóla, t. d. einhvern héraðsskólann, sem væri þannig i sveit komið að skil- yrði væru heppileg til margbreyttra iþróttaiðkana. ]?ó mætti nofta sama leikfimishús og að einhverju leyti sömu kenslustofur fyrir báða skólaria. Forstöðumað- ur íþróttaskólans gæti kent leikfimi við héraðsskólanri, og kenriarar við héraðsskólann gætu kent bókleg fræði við íþróttaskólann eftir því sem tími og atvik leyfðu. Slíkt sambýli væri báðum skólunum ávinningur á marg- an hátt, og ekki sýnilegt tap að neinu leyti. Skólatíminn þarf að vera eitt ár, ef vel ætti að vera. Með því einu móti væri liægt að iðka allar þær iþrótt- ir, sem stunda má á íslandi. Ef skólinn stæði að eins að vetrinum til, félli að mestu eða öllu leyti niður kensla í róðri, siglingum, knattspyrnu og sundæfingar í köldu vatni. Ef að eins væri kent á sumrum vantaði vetraríþróttirnar, skíða- og skautaferðir og allar teg- undir af ísleikjum. Mjög ósennilegt er að i framtiðinni reyndist erfitt að fá 12 lærisveina á ári. M. a. þyrftu helst allir íþrótta- kennarar við aðra íslenska skóla að nema á þessum stað. fþróttaskólinn væri báborg íslenskrar líkams- menningar. En auk þeirra, sem kæmu í skólann til að nema þar í því skyni að gera sér íþróttanámið að at- vinnu, myndu svo koma áhugasamir menn, bæði karl- ar og konur, sem vildu unna sjálfum sér þeirrar ham- ingju að eyða einu áx*i æfinnar við allskonar íþrótta- iðkanir, sem hægt er að stunda í landinu. Og færi svo að sóknin yrði of lítil að þessum skóla, þá væri það eingöngu að kenna því, að æskan i landinu væri sofandi um nokkurra ára bil. Andi ungmennafélagsskaparins lægi þá blundandi. En slikt svefnmók varir aldrei lengi. Æskunni er áskapað að vaka og óska eftir viðfangsefn- um. Og engin viðfangsefni liæfa betur dugandi æsku- mönnum en vinna og iþróttir. Eg ber engan kvíðboga fyrir þvi að skólinn liefði ekki

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.