Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1925, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.12.1925, Blaðsíða 5
SKINFAXI 117 í'é sínu og tima. Ekki skal hér víta hina ráðandi kyn- slóð sveitanna þó framfarir hafi orðið þar minni en æskilegt var og mátt hefði verða, því að margt kemur til greina þegar um það mál er að ræða. En hitt er vítavert, að ráðandi kynslóðin skuli samtimis kyrstöðu sinni hafa gert kröfu til þess að fámenn, dreifð og fé- vana ungmennafélög innu verkleg stórvirki í tómstund- um sínum. J?ó væru afsakanlegar umvandanir ráðandi nágranna yfir starfsleysi félaganna, ef þeir liefðu gert mikið að því að hvetja þau til verklegra framkvæmda, sem væru við þeirra hæfi, en sjaldan mun hafa borið mikið á, að það væri gert. En oft hefir verið talað um gorkúluvöxt, fálm og heimsku í sambandi við það, sem þau hafa unnið. Aft- urhaldssamir auramenn liafa látið sér fátt um finnast þegar ungmennafélög hafa rætt um framfarir og byrj- að á nauðsynlegum verkum, þeir liafa kastað steini á framfaraveg þeirra, og nöldrað svo um að þau gerðu ekkert. En skilningslitlar málskjóður halda langar ræður um barnabrek, léttúð og margt annað verra i sambandi við skemtanir, iþróttastörf og málfundi fé- laganna. Margir feður hafa viljað eða orðið að greiða þúsundir króna fyrir dáðlaust og spillandi Reykjavík- urrölt liarna sinna, en ekki viljað hætta tiu krónum fyrir eðlilegan og þjóðlegan félagsþroska þeirra heima i átthögunum. pelta hörmulega öfugstreymi á ljótan og sorglegan þátt í því, að sveitunum er að hlæða út. pegar U. M. F. I. hefir leitað til Alþingis og' sótt um lítilfjörlegan styrk til nauðsynlegra framkvæmda, liafa viðtökurnar reynsl ótrúlega kaldar og smásálarlegar, einkum þó á síðari árum. Um allmörg ár hefir U. M. F. I. haft 1500 króna styrk af almannafé. Var það hetra en ekkert fyrstu árin, en lítið gagn verið að þvi nú um skeið, þar eð verðgildi krónunnar hefir verið aðeins litið brot af því, sem það var áður. U. M. F. I. sótti þvi um 4000 króna styrk til sið-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.