Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1925, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.12.1925, Blaðsíða 29
SKINFAXI 141 dóm fólks en velunnin störf, þó liafa þau best áhrif á unglingana. Ekkert getur gefið þeim sanna heilbrigði nema þau, enda liafa Bandaríkjamenn séð góðan ávöxt af starfsemi vinnuflokka sinna, telja þeir að mjög liafi Iiún aukið ábuga æskulýðsins fyrir landbúnaði og valc- ið ást hans til heimilis og átthaga. ]?ví hafa vinnuflokk- arnir blotið ríflegan styrk af almannafé, og notið lika mikils stuðnings frá stóreigna mönnum þar í landi. Einn af mestu auðmönnum Yesturheims hefir gefið stórfé til þess að viðfrægja starfsemi vinnuflokkanna í öðrum löndum. Sendiboðar Bandaríkja liafa ferðast viða um Norðurálfu, lika til Norðurlanda, enda eru ungmennafélög og búnaðarfélög Norðmanna og Svia tekin að nota fyrirmyndina að vestan og þykjast góðu bætt. Eiga þau binar bestu vonir um framtíð vinnu- flckka sinna. Allmiklar umræður urðu um erindi Metúsalems Stefánssonar á búnaðarnámsskeiðinu, þótti öllum sem var, að liér væri um hið merkilegasta mál að ræða og vildu að það yrði athugað ítarlega. 5 manna nefnd var skipuð í málið, bar hún fram tillögu sína i lok nám- skeiðsins, var tillagan samþykt breytingalaust og er á þessa leið: „Fundurinn skorar á stjórn Búnaðarfélags íslands, að taka að sér forgöngu um það, að hér á landi verði stofnað til félagsskapar og starfsemi eftir fyrirmynd ungmenna-„klúbbanna“ amerísku, með því að skipa 3ja til 5 manna nefnd til þess að leggja grundvöllinn fyrir slikan félagsskap og tryggja framtíð hans. Ætl- ast nefndin til, að félagsstjórnin og nefndin leiti að- stoðar og samvinnu stjórnarvalda Samb. ungmenna- fél. íslands, Heimilisiðnaðarfélagsins og kvenfélaganna, svo og annara félaga og stofnana, er vænta mætti stuðn- ings af, lil þess að koma málinu fram og tryggja fram- tíð þess.“ Vcnandi verður hér ekki látið lenda við orðin tóm.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.