Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1925, Side 19

Skinfaxi - 01.12.1925, Side 19
SIÍINFAXI 131 ins æðstu gæðum, ef hún vildi hverfa til mannheima, svo sem umburðarlyndi, samúð, ást, fórnfýsi, kærleika og margt fleira af því, sem mest er um vert. En sálin liafði kynst þvi, hvernig farið var með helgidóm mann- lífsins á jörðu, og hræddist þá meðferð. pá bauð drott- inn henni valdið, takmarkalaust, kalt og kærleikssnautt; sálin gladdist við og fló til jarðar, en drottinn angraðist yfir sálinni og sá að lnin var eins og allar hinar manns- sálirnar. — Finst nokkrum birtan vaxa í kringum sig er hann les sögu þessa og aðrar, sem eru ritaðar í lík- um anda? Finnur nokkur maður að þær göfgi persónu þeirra og veiti þeim andlega svölun? Ólíklegt er það. Slíkar sögur virðast segja, að sá sé einn tilgangur jarð- lifsins, að spilla mannssálunum. Síðan Einar samdi „Góð boð“ hefir hann ritað marg- ar sögur, og öll þjóðin veit að hann hefir ekki gleymt göllum tilverunnar, enda væri það óeðlilegl, en hann hefir hcrfið lengra og lengra frá þvi að gera þá að aðal- atriðum kenninga sinna. Skamt er síðan hann sendi þjóðinni „Sveitasögur“. Ein þeirra er um Sigríði á Bústöðum og mann hennar. Bæði voru þau góðum kostum búin, en ærið ólik. Sig- ríður var atorkusöm og búkona hin mesta. Hún unni föðurleifð sinni af alhug og það var sólardraumur henn- ar að prýða og bæla jörð sina og heimili, sem mest mátti verða. Hann var hugvitssamur uppfundningamað- ur, illa fallinn til búsýslu, en dreymdi dagdrauma um hugsjónir sínar. Ólík áhugamál urðu þeim að ágrein- ingsefni. En sjáll'stætt persónugildi leyfði hvorugu að verða annars leppur. Bæði hlutu þau að renna skeiðið á hinum mikla örlagavelli lífsins í fullkomnu samræmi við köllun sína. J?ó báru þau síblæðandi sár vegna óláns- samrar ástar sinnar, sem þrátt fyrir alt, var þeiin helg- ust i heimi. Sigriður var vansæl á Bústöðum þó jörðin greri, og maður hennar fann ekki frið i Vesturheimi þó hann yrði þar ríkur og frægur. Góðar vætlir báru

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.