Skinfaxi - 01.01.1928, Síða 6
6
SKINFAXI
Örnefnaskrár.
pegar örnefnum er safnað, skal styðjast við lands-
uppdrátt alstaðar þar sem þvi verður við komið, og er
það auðvelt þar sem uppdrættir herforingjaráðsins ná
til. Skal þá afmarka á uppdrættinum svæði það, sem
örnefnin eru á, og skifta þvi í mjóa, aflanga reiti með
jafnhliða línuin frá norðri til suðurs. Síðan er samin
skrá yfir örnefnin, og byrjar liún á því örnefni, sem
liggur norðvestast (efst til vinstri á uppdrættinum).
pað fær töluna 1, og er hún mörkuð á sinn stað á upp-
dráttinn; næsta örnefni fyrir sunnan í sama reit fær
töluna 2 o. s. fi’v., reitinn á enda. Fái t. d.syðsta (neðsta)
örnefnið í þessum reit töluna 17, fær nyrsta (efsta)
örnefnið í næsta reit töluna 18 o. s. frv. par sem ör-
nefni eru svo mörg á litlu svæði, að tölurnar komast
ekki fyrir á uppdrættinum, þarf ekki að skrifa þær
allar, heldur t. d. 5. hverja. Ilver maður veit þá, að t. d.
örnefnin, sem hafa tölurnar 11, 12, 13, 14, liggja í röð
frá norðri til suðurs milli þeirra punkta á uppdrættin-
um, sem merktir eru með 10 og 15.
Allar atbugasemdir og skýringai’, sem gera þarf við
örnefni, svo sem um mismunandi myndir þess, upp-
runa, sögur sem við það eru lengdar o. s. frv., skal
setja á eftir skránni og merkja með tölu þess örnefn-
is, sem við er átt. „Um l.“ „Um 5.“ o. s. frv.
Skrá þessi er svo ljós og auðskilin að hver, sem vill
safna örnefnum, hlýtur að geta notað hana. Verður því
ástæðulaust að bera því lengur við að menn kunni ekld
tök á verkinu. Uppdrátlur herforingjaráðsins er svo
víðtækur, að ærið verkefni mun það að safna örnefnum
þar, sem hann nær til, þó ekki yrði i meira ráðist að
svo stöddu.
Vera kann að margir geri ráð fyrir að skemtana-
lítið sé, að tína saman örnefni, afmarka afstöðu þeirra
á korti og tölusetja þau, en það mun fara um þetta