Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.01.1928, Page 12

Skinfaxi - 01.01.1928, Page 12
12 SKINFAXl meðmæli me'ð liverjum manni, ef hann er ungmennafé- lagi, þvi að þá sé talið vist, að hann sé drengur góður. Jóhannes Ólafsson. 19x8 — 1930 — 1943. 1. Unga kynslóðin á íslandi er gæfusöm kynslóð. prjú ártöl marka fremur öllu öðru skeið hennar. Árin 1918, 1930 og 1943, er keðja örlagarikra ára. Aldrei hafa aldirnar fært jafnörlagaþrungin ár upp i hendurnar á neinni íslenskri kynslóð. ]7ess vegna er unga kynslóðin gæfusöm, að undir lienni er komið, hvort ár þessi munu standa gullnu letri í sögu þjóðarinnar eða eigi. pað er beinlínis köllun hinnar ungu kynslóðar, að gera ár þessi söguleg af heillaríkum viðburðum. En hregðist unga kynslóðin köllun sinni, marki hún ekki gifturíkt. l'ramfaraspor i íslensku þjóðlifi, láti hun staðar numið eins og nú er komið málum íslands, væri betur að hún væri óborin, því þá munu ókomnar kynslóðir hrópa: vei yfir kynslóðina sem seldi tæki- færin úr hendi sér og svaf er liún átti að vaka. Augu óhorinna kynslóða, sem byggja munu land þetla á ókomnum öldum, horfa því á yður, ungmenni ís- lands, því undir vður er komið hvort árin 1918, 1930, 1943 þýða samfelda keðju gifturíkra stjórnmálavið- burða, sem stig frá stigi leiða land vort i fult frelsi svo sem það var fyrir árið 1262. II. Árið 1918, 1930 og 1943 þýða lortið, nútíð og lram- tið.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.