Skinfaxi - 01.04.1928, Page 4
52
SKINFAXI
verið aðaltilgangur Alþingis með liinuin nýju lögum
um Hólaskóla, að lilynna sem best að verklegri kenslu.
pó að Hólatún gefi nú af sér um tólf hundruð liesta
eða meira, gæti sá töðufengur tvöfaldast á fáum árum.
Yrði þá hægra en verið hefir að reka þar fyrirmyndar
búskap. pegar Sigurður búnaðarmálastjóri stýrði skóla
og búi á Hólum, vann hann að skrautjurta- og trjá-
rækt af mikilli alúð; er sú starfsemi nú allvel á veg
komin. Gefst því nemendum ágætt tækifæri til þess að
læra garðrækt á Hólu'in, þar má bæði auka við og um-
bæta.
Ærin er þörf að kennarar geti reist nýbýli við sveita-
skóia, ekki síst búnaðarskólana. Eftir því sem nýyrkja
vex á Hólum, verður hægra að l'ullnægja þeirri þörf
þar. Sannarlega ætti hentug og liaglega gerð smábýla-
bygging í grend við búnaðarskólana, samfara vel gerðri
jarðrækt og öðrum góðum búnaðarliáttum að verða
nemenduni og bændum í hágrenni skólans raunveru-
leg' fyrirmynd. Af góðum smábýlabúskap geta allir
lært, enda er liann við flestra hæfi.
Réttmætar vonir um Hólaskóla eru bjartari nú en
þær hafa nokkru sinni áður verið. Er gild ástæða til
þess að ætla, að sá skóli verði það mentasetur, sem full-
nægii hest mentaþrá og menningarkröfum þeim, sem
gera verður til sveitafólks á næstu árum.
pó margt og mikið liafi verið gert á Hólum, bæði
fyr og síðar, eru þó verkefni þar enn bæði mikil og
margþætl, en flest eru þau fremur auðunnin. Með góð-
um forsögnum má því læra margt af því að leysa þau
af hendi. Námshættir cða reglugerð skólans hlýtur að
verða frjálsleg, laus við úreltar kreddur; lögin, sem
nefnd voru hér að framan, eru sönnun þess.
Skólahús úr steini er verið að byggja á Hólum; verð-
ur því lokið í sumar, og verður að sögn ágæt bygging.
Skólahúsinu, sem þar liefir staðið nokkur ár, liefir
vérið breytt og bætt. Leikfimishús, trésmiðaverkstæði
og smiðja er þar í besta lagi. Óliætt er að fullyrða, að