Skinfaxi - 01.09.1928, Blaðsíða 11
SKINFAXI
75
foringi Færeyinga, kóngsbóndi I Kirkjubæ — til Færeyja,
H. A. Djuurhus skáld og kona hans Petra Djuurhus frá
Færeyjum og Benidikt Sveinsson Alþingisforseti, er var
boðinn með í förina, sem heiðursgestur frá Björgvin til
Reykjavíkur.
Ferðalagi þessu var þannig háttað að heimsókt voru
eylönd þau í norðurhöfum er numin voru af Norðmönn-
um á landnámstíð eða Norðmenn bygðu, ellegar höfðu
yfir að ráða. Var því haldið hina sömu leið austan um
hafið, sem forfeður tíðkuðu: Frá Björgvin í Noregi tit
Ornkeyja, þaðan til Hjaltlands, þá til Færeyja og svo
hingað til íslands.
Var ferðamönnum hvarvetna vel fagnað eins og vera
bar. Það þykir undravert hve mikið lifir enn af norrænni
tungu í Vesturhafseyjum bæði í heitum og örnefnum
og jafnvel talmáli, (svo og einnig í háttum og fram-
göngu). — brátt fyrir yfirráð Bretanna. Sögustaðir, sern
tilvarð náð, voru séðnir. Guðsþjónusta var haldin í hinni
fornu og forkunnar merkilegu norsku dómkirkju í Kirkju-
vági (Kirkwald) á Orkneyjum, sem kend er við Magnús
helga Ornkeyjajarl. Var prédikað bæði á norsku og
engelsku. Biskupinn Pétur Hognested tataði á norsku
landsmáli. En norsk messa hefir ekki verið flutt þar í
kirkjunni í mörg hundruð ár.
í Færeyjurn bauð Jóannes kóngsbóndi Paturson öll-
unt ferðamanna flokknum heim til sín að Kirkjubæ. Þar
varð meðal annars séð hin forna „Sverrisstofa11, sem
er sögulega merkileg og jafnframt eitt hið allra elsta
bæjarhús, sent til er á Norðurlöndum. Og svo hin gamla
og hálfbygða færeyska dómkirkja.
Fyrsti viðkoinustaðurinn hér við land var Vestmanna-
eyjar. Kom Mira þangað föstudaginn 20. júlí að kvöldi
dags.
Ungmennafélag Vestmantiaeyja tók þar á móti gest-
unum, fór á móti þeim á haf út og hélt þeim samkonnt
í Þórisdal ásaint bæjarsljórn.
'íil Reykjavíkur kom Mira á laugardaginn árdegis.