Skinfaxi - 01.09.1928, Blaðsíða 15
SKINFAXI 79
„Ingen nordmann kann nærtna sig Island utan aa
kjenna sig paa heilag grunn." — — „Det var reint
vedkjömelegt aa skiljast med disse gilde folkt,'1.
Guðmundur Jónsson frá Mosdal.
Frá félögum og félagsvegum.
Kristján Karlsson sambandsstjóri Ungmennafélaga
íslands fluttist til Reykjavíkur í s. 1. júnímánuði. Er hann
orðinn bankastjóri í íslatidsbanka í Reykjavík. Skinfaxi
óskar sambandsstjóranum til heilla með stöðuna, — og
minnir jafnfarmt á að nú gefst ungmennafélögum kostur
á að geta fundið sambandsstjórann er þeir eiga ferð
til Reykjavíkur. Hann á heitna á Holtsgötu 7 B.
Sigurður Greipsson sambandsgjaldkeri heldur íþrótta-
skóla sinn I Haukadal i vetur eins og s. 1. Satnkv. aug-
lýsingu á öðrum stað hér í blaðinu eru ýrnsar náms-
greinar aðrar, sem nytsamlegt er fyrir unglinga að
nema, einnig kendar í skólunum. Staðurinn er forn-
kunnur. — Ekki er heldur litill kostur að geta laugað
sig og svamlað í heitu vatni, og ornað sér við hvera-
hita ailan veturinn. Er það fýsilegt fyrir tápdrengi að
komast í skólann til Sigurðar.
Helgi Valtýsson heldur námsskeið i Vikivökum (ís-
lenskum þjóðdönsutn) í Reykjavík á vegutn sambands
ungm.fél. íslands. Stendur það yfir næstkomandi nóv-
embermánuð. Var öllurn ungmennfélögum i sambandinu
send bréf um þessa ákvörðun í september. Vonandi er
að aðsókn verði ærin að þessu námsskeiði.
Gunnlaugur Björnsson hefir (eins og getið er í inn-
gangi blaðsins) gerst kennari við Hólaskóla. Skinfaxa er
skylt að óska honum góðs gengis við þann starfa. Hefir
hann lofað að láta Skinfaxa til sin heyra.