Skinfaxi - 01.09.1929, Side 10
74
SKINFAXI
um ef stjórn sjóðsins telur þess þörf, þó skulu 1. og 2.
gr. jafnan standa óbreyttar.
9. gr.
Falli Hjeraðssamband U. M. F. V. niður, skal stjórn
sjóðsins skipuð á þann hátt, að skólastjóri hjeraðsskóla
Vestfjarða — eða við þann elsta, ef fleiri eru, — verður
sjálfkjörinn form. stjórnarinnar, en mentamálaráð og
fræðslumálastjóri hvort um sig skipar 2 meðstjórnendur
búsetta á Vestfjörðum. Sömu aðilar skipa og fyrir um
reikningsskil og endurskoðun sjóðsins.
10. gr.
Leita skai konunglegrar staðfestingar á skipulags-
skrá þessari.
Nitpi í Dýrafirði 27. april 1929.
Bj. Guðmundsson
(form.) Kristján Davíðsson
(fjehirðir.)
Bjarni ívarsson
(ritari.)
[Skipulagsskrá þessi hlaut staðfestingu á s. 1. sumri].
Lýðskólarnir oy Ungmennafjelögin.
Deila tná utn, Itver spor ungmennafjelögin hafi mark-
að hjá fslensku þjóðinni. Fjelögin eru einn þáttur í þeirri
fjölþættu framsóknarviðleitni, er mest hefir verið hjá
íslendingum, og magnaðist um svipað leyti og ung-
mennafjelögin hófu starfsemi sína, enda horfir starf
þeirra meir inn á við til áhrifa á hvern einstakan fjelaga,
en til beinna framkvæmda út á við. Þó er það eitt spor,
er eigi verður um deilt að ungmennafjelögin hafa mark-
að með þjóðinni, og það eru lýðskólarnir. Þar hafa þau
gert meira en að brjóta jarðveginn. Þau hafa Iíka haf/