Skinfaxi - 01.12.1929, Blaðsíða 1
Des. 1929. 8. hefti.
Ætlnnarverk.
i.
Það er mikilsverð kenning, að allir hlutir sjeu tii ein-
hvers ætlaðir: Að þeir sjeu ekki aðeins til, og háðir hinu
eða þessu eðli eða ástandi, heldur miklu fremur ætlaðir
— skapaðir — til að uppfylla viss skilyrði.
Æfagamlar Ihuganir og nýjustu rannsóknir eru um
þetta alveg samdóma, og gera þessa skoðun að óhrekj-
andi sannleika.
Náttúran virðist raða niður öllum sinum efnum, svo
að hvert mætist við annað. Allt hæfir á vissum stað.
Einkis má án vera og engu er ofaukið, þó allt annað
kunni i svipinn aó sýnast. Fjarskyldustu hlutir og ólik-
ustu efni geta þjenað jafnvei og verið viðlíka nytsam-
leg hvert á sinn hátt.
Samsetning og sameining hinna smáu hluta — alira
smærstu agna — tyhinni.óskynsemigæddu néttúru er ékkl
Síður Iærdómsrík. „Margt smátt gerir (þar) eitt stórt.“