Skinfaxi - 01.12.1929, Blaðsíða 6
118
SKINFAXI
Þvl heill þjer kæri ættlands æskulýður
sem öflug knýttir fjelagsskapar bönd.
Á varðstöð hverri stendur flokkur frlður
frá fremsta dal að úthafs kaldri strönd;
og hann skal verja fræga feðra tungu,
og forða skemmdum þjóðarstofnsins rót;
þess gæta ljóss, er gegnum myrkrin þungu
oss glaðast skein við hinstu vegamót.
Og nú í kvöld við heilsum hópnum fríða,
sem hingað góði fjelagsandinn bar
og yfir tuttugu árin hugir líða
sem eru frá því starf hans byrjað var.
Vegur er bættur, bóndinn hyggjuspakur,
sinn bætir hag með stórum efldri dáð.
Með trúrri alúð plægður andans akur
og i hann margskyns góðu fræi sáð.
Vjer eldra fólk, sem augun vonar festum
á yðar hugsjón, kæri fjelagsher!
þess biðjum Guð, hann gefi að sem flestum
til gagns og heilla starfa megið þjer.
og dragið undan aldarstraumsins fargi
þann einstakling er báran skellur á,
og hvetjið hann sitt hús að reisa’ á bjargi
sem hvorki regn nje stormar bifað fá.
S. Kristin Jónsdóttir.
(Gemlufelli).
Skinfaxi tuttugu ára.
Skinfaxi er rit þetta kallað, og hefir því verið valið
nafn eftir hesti þeim, er Dagur sjálfur beitti fyrir kerru
6lna, að þvl er forfeður vorir Norðmenn og aðrir ása-
trúarsinnar höfðu að skoðun.
Svo segir Snorri frá: „Þá tók alföðr Nótt ok Dag