Skinfaxi - 01.12.1929, Side 14
126
SKINFAXI
Ný bók.
Skinfaxa hefir verið send ný bðk: „Guð og lukkan“
eftir Guðmund skáld Gislason Hagalfn. Það eru þrjár
sögur, og er bókin sanmefnd hinni fyrstu þeirra. —
Guðmundur Hagalín er fyrir nokkru orðinn þjóðkunnur
fyrii skáldskap sinn, einkum þó sðgumar, enda eru sögur
hans ísienskari að eðli og efnistilhögun en flesira þeirra,
ef ekki allra, er skrifa skáldsögur hjer á landi.
Málið er ágætt, hugsanirnar glöggar, og lýsingarnar
á persónum, atburðum og ástæðum svo frábærlega
skýrar og skilgreindar, að líkara verður lifandi reynd,
fyrir lesandann, en ortri frásögn. — Hjer er ekki rúm
til að kryfja sögur þessar til mergjar nje ræða um þær
nánar. — En Skinfaxi vill með þessum orðum minna
alla lesendur sína á skáldskap Guðmundar Hagalins,
svo að sjálfir geti þeir um dæmt, og mun þá ekki iðra
þess að eignast hafi þeir bækur hans, og lesið. Þor-
steinn M. Jónsson á Akureyri, sem undanfarin ár hefir
gefið út margt góðra bóka, hefir gefið þessar sögur
Hagaiíns út, og er allur frágangur bókarinnar ákjósan-
legur.
Guðm. J. frá Mosdal.
Frá fjelögum og fjelagshögum.
U. M, F. Mýrarhrepps 20 ára.
Þann 28. nóv. var U. M. F. Mýrarhr. 20 ára og var
þess minst með samkomu fjelagsmanna og nokkurra
boðsgesta, laugardaginn 30. nóv. Jafnframt mintust nem-
endur Núpsskólans fullveldisdagsins.
Margar ræður voru fluttar og frumort kvæði 4. Birtist
hjer eitt þeirra. Háöldruö kona hjer í sveitinni sendi
fjeiaginu þá fögru afmælisgjöf. — Ef til vill flytur Skin*
faxi hin kvœðin seinna. —