Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1930, Blaðsíða 1

Skinfaxi - 01.11.1930, Blaðsíða 1
Skinfaxi VIII. 1930. Mynnið á Surtshelli. Eftir Guðm. Magnússon skáld. Um íslenzka sögustaði. (Eg mœlist til þess, að ungmennafélögin taki efni greinar þessarar til umrœðu á fundum fyrir næstu áramót, og iáti mig vita bréflega um þær framkvæmdir, sem af því kunna að spretta. Sambandsstjóri U.M.F.I.). ísland er kallað Sögueyjan og íbúarnir söguþjóð- in, ekki af því, að liér á landi liafi gjörst fleiri sögur en annarsstaðar, lieldur af því, að þjóðin hefir verið minnug á sögur og fært þær í letur. Þegar vinir Islands erlendis eru að kynna landið og þjóðina fyrir þeim, sem aldrei liafa tieyrt það nefnl áður, er sú kynning venjulega eittlivað á þessa leið: ísland er minninganna land. Islendingar eru eina þjóðin í veröldinni, sem veit um upphaf sitt. Endur- minningin um hina fornu germönsku menningu er þar eins vakandi og ef landið hefði verið numið í gær. í Þýzkalandi, móðurlandi germanska kynstofnsins, liefir nú á síðustu árum vaknað alveg sérstakur áhugi á fslandi og íslenzkri menningu, sem knúinn er fram af þeirri trú, að ísland og fslendingar séu spegilmynd l'ins forngermanska lieims. Erlendir ferðamenn, sem liingað koma, koma liing-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.