Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1930, Page 15

Skinfaxi - 01.11.1930, Page 15
SKINFAXI 175 allir komnir á hátíðarsvæðið, og var talið, að þá væru þar 30—40 þús. manna. Var það lítil þátttaka í svo veglegri hátíð, samanborið við þáttöku í Alþingis- hátíðinni hér, einkum þegar tillit er tekið til aðstöðu- munar á þvi, að komast á hátiðarstaðina. — Skal eg nú í stórum dráttum skýra frá liátíðinni. Sjálf Ólafshátíðin stóð í vilcu. Hófst hún mánudag 28. júli með vigslu vesturálmu dómkirkjunnar í Nið- arósi, en það er önnur höfuðálma kirkju þessarar, sem er veglegasta og fegursla guðshús á Norðurlönd- um. Er liún uppliaflega reist um miðja 11. öld, með kórinn yfir gröf Olafs helga, og var hún þá nefnd Kristskirkja. Er kórinn enn á sama stað og á allar- inu er líkan af skírni Ólafs lielga, sem lík hans var geymt í og talið var lielgur dómur. Siðar var lnin stækkuð og þeirri hyggingu lokið 1230. Síðan hefir liún oft brunnið, en jafnan verið endurreist, þar til hiskupsstóll lagðist niður í Niðarósi og var hún á síðustu öld að eins hluti af upprunalegri stærð og illa með farin, eins og títt var um gamlar kirkjur og byggingar í Noregi i þann tíð. Síðustu árin hefir kappsamlega verið unnið að endurbyggingu liennar í fornri mynd, að svo miklu leyti sem vitað verður um fyrra útlit hennar, og hefir sú endurreisn kost- að um 11 milj. króna. Þó er enn allmikið ógert Ekki er unnt að lýsa kirkjunni hér. Svo mikil fjölhreytni er í stíl og skrauti hennar og margar sögulegar minn- ingar við hana tengdar, að slíkt verður ekki gjört i stuttu máli. — Aðalhátíðin var svo næsta dag, 29. júli. Hófst hún með óttusöng i dómkirkjunni kl. 7 árd. og hámessu á sama stað kl. lOj/2 og á sama tínia var messað í öllum kirkjum í hænum. Að Stikla- stað liófst liátíðin kl. 8 árd. með skrúðgöngu um 400 svartklæddra kaþólskra presta og munka, sem þang- að voru komnir pílagrímsför frá ýmsum löndum. Eiga þeir kapellu skammt frá kirkjunni. Ivl. 10Vá

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.