Skinfaxi - 01.01.1932, Síða 24
24
SKINFAXI
Bækur.
Magnús Helgason: Kvöldræður í Iíennaraskólanum
1909—-1929. Rvík 1931. ÞaS mun vera mál flestra þeirra
eða allra, er nám hafa stundað í Kennaraskólanum, aS eng-
um manni hafi þeir kynnst, er þeir virSi til jafns viS séra
Magnús Helgason. Og öllum mun oss nemöndum hans koma
liann í hug jafnan, er vér heyrum góSs manns getið. Vér
minnumst hans sem kennara, stjórnanda, ráSunauts, vinar..
Þœr stundir, er hann flulti ræSur á samkomum nemenda,.
verða oss mörgum meðal minnisstæðustu hátíða.
Nú hefir Prestafélag íslands gefið ræður séra Magnúsar
út. Verður hugsandi æskumönnum trauðlega valin hollari hók.
í ræðunum koma glögglega fram einltenni eins hins ágætasta
manns, er setið hefir á íslenzkum kennarastóli: Karlmennska,
drenglund, manngæzka og næmur skilningur. Hugsunin er öll
íslenzk og hvergi skeikar um smekkvísi á mál.
RitgerS um M. H., eftir Einar H. Kvaran, fylgir ræðunum,
góð, en þó bjóst eg við meiru úr þeirri átt. — Bókin kostar
0 krónur, óbundin.
Skýrslur um Laugarvatnsskóla 1928—’3l eru nýkomnar úl
í smekklegu hefti, 100 bls. með myndum. Er þarna margvis-
lega fræðslu að fá, um þenna veglcgasta alþýðuskóla íslend-
inga. Eigi gefur rit þetta jafn-glæsilega innsýn í skólallfiS
og árangur námsins, og Ársrit Laugamanna gefur í Lauga-
skóla. Enda er hér aðeins skýrsla.
G u n n a r M. M a g n ú s s o n: Brekkur. Reykjavík. 1931. —
Þetta er mjög snotur barnabók, Ijóð, æfintýri og samtöl,
myndum skreytt. Höf. er mcSal þeirra kennara höfuðstaSar-
ins, er rnests álits njóta, enda sér það á hók hans, að hann
kann skil á börnum. Brekkur kosta kr. 1,40 i bandi.
„Ynglingaáldern“ og „Scoutrörelsen“ eftir Haerberger fást
í bókaverzlun E. P. Briem, Reykjavik.
Félagsprentsmiðjan.