Skinfaxi - 01.11.1960, Síða 6
102
SKINFAXl
dýrmætur, því veröur hans heimanbún-
aður að vera góður.
Skólarnir og starfsfræðslan.
Síðasta Alþingi samþykkti þingsálykt-
unartillögu til ríkisstjórnarinnar að beita
sér fyrir því, að starfsfræðsla verði tekin
upp í skólum. Sams konar ályktanir hafa
komið frá mörgum félögum, svo að nú
virðist sýnt, að skólarnir verði lafarlaust
að liefjast lianda til úrhóta i þessu efni.
En málið er ekki auðleyst. Hér er um
stórmál að ræða, sem engin reynsla er
til um,á hvern hátt verður hagkvæmast að
leysa. Aðrar þjóðir liafa að vísu reynslu í
þessu efni, en við megum ekki flytja hing-
að til lands aðferðir annarra þjóða, án
þess að liafa reynt, hvort þær henta okk-
ur. Við eigum að hefja tilraunir í smáum
stíl og reyna að skapa okkur á sem
skemmstum tíma þann grundvöll, sem
við byggjum svo þetta starf okkar á síð-
ar.
En í þessu sambandi er rétt að leiða
liugann að því, á hvaða stigum skóla-
fræðslunnar eigi að vera starfsfræðsla.
Ég álít, að undirbúningur mætti byrja í
efstu bekkjum barnaskólans sem almenn-
ar upplýsingar um atvinnuvegi landsins,
útflutning, innflutning, samgöngur, vöru-
dreifingu og verkaskiptingu í þjóðfélag-
inu. í unglingaskólum og héraðsskólum
ætti svo að hafa starfsfræðslu sem eina
námsgreinina. Kennslunni má að sjálf-
sögðu liaga á marga vegu, og hér verður
ekki gerð grein fyrir henni að nokkru
ráði. Þó mætti hugsa sér, að þar væru ann-
ars vegar beinlínis kennd nokkur störf í
samhandi við landbúnað, sjóvinnu og þar
með vinnslu og meðferð fisks, meðferð og
hirðingu bú- og lieimilisvéla, heimilis-
stjórn, afgreiðslustörf o. fl. Kenna mætti
þetta með notkun ljósmynda, skugga-
mynda, kvikmynda, hóka, ýmiss konar
muna og áhalda og sýnikennslu á verkinu
sjálfu. Nauðsynlegt er líka að gefa nem-
endum kost á að vinna sjálfir verkið.
Hins vegar þurfa svo að koma stöðuvals-
leiðbeiningar, þar sem hægt er að veita
nemendum ýtarlegar upplýsingar um all-
ar þær atvinnugreinar, sem stundaðar
eru hér á landi. Upplýsingar þarf að vera
hægt að gefa um hvaða hæfileika maður
þarf að hafa til þess að geta tekið starfið
að sér, hvaða menntunarkröfur eru gerð-
ar og hvaða atvinnuskilyrði eru fyrir
hendi — og eins hversu mikilvægt starfið
er fyrir þjóðfélagið i heild.
Sjálfsagt er að liafa náið samstarf um
þessa kennslu við aðila atvinnugreinanna
og gefa unglingum kost á að kynnast
störfum á vinnustað og jafnvel gefa þeim
færi á að starfa einhvern tíma að verkinu
sjálfu, ef hægt reyndist að koma því við.
Til þess að skipuleggja þetta starf er
nauðsynlegt að fræðsluyfirvöld í landinu
ráði nú þegar einn mann til þess að
hefja undirbúning á þessum vettvangi.
Maður þessi má engum öðrum störfum
þurfa að sinna. Hann þarf að helga sig
þessu starfi algjörlega. Enda er hér svo
mikið starf fram undan, að brátt verður
það ofvaxið einum manni að Ieysa.
Næsta stig er svo að þjálfa nægilega
marga menn til að starfa að þessari
kennslu.
Atvinnuvegir og félagssamtök.
Þegar grundvöllur hefur verið lagður
að starfsfræðslu í skólum, kemur til kasta