Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1960, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.11.1960, Blaðsíða 10
106 SKINFAXI urinn hafði valdið tjóni í þorpinu. Þakið hafði fokið af húsinu hennar Stínu klénsa, svo að ofan frá sá óhindrað ofan í, morandi barnabælið ... „Þetta hefst af að vanrækja bænahald- ið, — það er það, sem þær gera, svona manneskjur,“ sagði Beta snikkarans við bónda sinn, „það er sosum ekki við góðu að húast, Jósef og María miskunni mér! Og i stað þess að hiðja jólabænina sina stekkur hann bara af stað! Hjá hverjum mundi verndar að vænta, ef ekki hjá blessuðum himnaföðurnum okkar?“ Stína klénsa var ekkja járnsmiðs, sem látizt hafði fyrir fáum árum. Hún átti fimm börn, sitt á hverju árinu, og það elzta lá nú i skarlatssótt. Hún naut ekki verulegra vinsælda í þorpinu, og sagt var, að liún færi stundum á haustin og tæki upp kartöflur, þar sem hún hefði engar sett niður. Nú hafði þakið folcið ofan af höfðinu á henni og krökkunum, og flís- arnar lágu á víð og dreif um götuna og húsasundin. Stína barðist áfram í myrkrinu með börnin í eftirdragi, og loksins tókst henni eftir langa mæðu — að koma þeim fyrir lijá nábúunum — öll- um nema því, sem veikt var. Enginn vildi skjóta skjólshúsi yfir vesalinginn veika, unz kennarann bar þarna að. Hann bauðst til að taka barnungann, en þá ætlaði fólk- ið að ærast, — taldi ekkert vísara en hann bæri veikina í skólann. Þá sneri hann sér til Betu snikkarans, sem ekki átli neitt barnið, en hún hélt sig nú ekki kæra sig um að taka veikan aumingja og eyðileggja þannig fyrir sér aðfangadags- kvöldið. Loksins minntist svo presturinn þess, að Hann, sem minnzt var þetta kvöld, hafði sagt, að sá, sem gerði góðverk á hans minnsta bróður, gerði það á hon- um sjálfum, og þeim kom svo saman um það, klerki og ráðskonu hans, að skjóta skjólshúsi yfir veika barnið, að minnsta kosti þangað til tekizt hefði að gera hreysi móðurinnar fokhelt á ný. Jónas snikkari hafði þotið út á götu. Hann var svo raddsterkur, að rödd lians skar sig í gegnum veðurdyninn, og í snatri safnaði liann að sér nágrönnum sinum og allmörgum iðnaðarmönnum. Þeir komu dröslandi stigum, verkfærum og borðviði. Siðan dundi í hömrum og hvein og ískr- aði í sögum, og alla nóttina var unnið af kappi við bjarmann frá kyndlum, sem húnir höfðu verið til í skyndi. Gauragang- urinn og ónæðið, sem fylgdi athöfnum Jónasar snikkara og aðstoðarmanna hans, olli Elísabetu mikilli skelfingu, því eklcert var fordæmanlegra í liennar augum en spjöll á helgi hvíldardagsins — og það sjálfs aðfangadagskvöldsins. „Hvernig ætti það að geta átt sér stað, að hlómknapparnir á kirsiberjagreininni springi út í þessum óskapa hávaða? Og hvernig ætti maður að geta látið sér til hugar koma, að Jesúbarnið geti notið svefns og hvíldar?“ sagði hún við sjálfa sig. Þegar tekið var að hringja klukkunum til miðnættismessu, kváðu enn við ham- arshöggin frá þakinu á húsi Stínu klénsa. Og hávaðinn frá hömrum og sög- um skar sig þannig gegnum vindgnýinn, meðan söfnuðurinn söng jólasálmana i kirkjunni, að konurnar urðu skelfingu lostnar og fengu ekki notið hátíðleikans, sem hafði gripið þær við að ganga í guðs- hús á þessari helgu nóttu. En þegar klukk- urnar kváðu við og boðuðu, ásamt gjall-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.