Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1960, Síða 14

Skinfaxi - 01.11.1960, Síða 14
110 SKINFAXI Land furðu og fegurðar. Frá Arnarstapa. ins um íþróttir, Guðmundur Guðjónsson, kennari á Saurum í Helgafellssveit og Guðmundur Gíslason Hagalín rith. Formaður flutti skýrslu um störfin á liðnu ári, og skýrði liann þar frá þvi, að Stefán Óiafur Jónsson, leiðbeinandi i starfsíþróttum og forvígismaður þeirra, liefði farið um héraðið og leiðbeint um þær, og vænti lians sér góðs af starfi hans. Þá flutti Sigurður Hclgason ráðunautur skýrslu um íþróttastarfsemina. Höfðu ver- ið haldin 11 íþróttamót í héraðinu og keppendur frá sambandinu mætt á 11 mótum utan héraðsins. Svala Lárusdóttir úr Snæfelli í Stvkkishólmi setti íslands- met í hástökki kvenna, og ýmsir hlutu gull, silfur og eirverðlaun á utanhéraðs- mótum. Þá ræddi Sigurður um væntan- legt landsmót á Laugum og um þann draum sinn að koma upp sumarbúðum drengja, eins og starfræktar hafa verið í Noregi. — Gjaldkeri flutti skýrslu um fjárhag Sambandsins, og voru niðurstöðu- tölur reikningsins.kr. 37.700.00. Loks flutti ritari skýrslu, sagði frá sölu Snæfellinga- Ijóða, sem lekizt hefur mjög vel, og ræddi um bindindismál. Siðan voru kosnar þess- ar nefndir: Allsherjarnefnd, fjárhags- nefnd og löggæzlunefnd, en starfandi höfðu verið milli þinga íþróttanefnd og sundlaugarnefnd. Þá flutti Guðmundur Hagalín erindi um nytsemi og störf almenningsbókasafna og skýrði frá, hvað miðað hefði til um- bóta í þeim málum seinustu árin og benti á, hve aðrar menningarþjóðir legðu nú mikla áhrzlu á skipan og starf slíkra bókasafna. Ilelztu samþykktir þingsins voru: Löggæzlumál: „Þing H.S.H. beinir þeim eindregnu til- mælum til fjárhagsnefndar á næsta sýslu- fundi Snæfellsness og Hnappadalssýslu, að hún sjái sýslusjóði þá þegar fyrir nægilegum tekjuslofni til þess að hægt sé að láta gildandi löggæzlusamþykkt koma til framkvæmda. Þingið telur brýna nauð- svn lil þess, að reglugerð þessi verði framkvæmd, og álítur, að það, sem fyrst þurfi að gera, sé að þjálfa menn til lög- Stykkishólnuir fyrir 60 árum.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.