Skinfaxi - 01.11.1960, Page 15
SKINFAXI
111
Jón Pétursson,
fremsti íþróttamaður Snæfellinga.
gæzlustarfa. Um Ieið og þingið leggur
áherzlu á ofanritað, vill það þakka nú-
verandi sýslumanni fyrir röggsamlega af-
greiðslu þeirra mála, sem til hans hefur
verið vísað i þessu sambandi.“
Áfengisvarnamál.
„l»3'ng H.S.H. skorar á alla ungmenna-
og iþróttafélaga um að vernda æskulýð
landsins gegn neyzlu áfengra drykkja og
halda vöku sinni í bindindismálum þjóð-
arinnar.“
Merldng leiða:
„Þing H.S.Ii. skorar á alla ungmenna-
og íþróttafélaga að hafa forgöngu um að
komið verði upp á árinu 1961 bæja-
merkjum við leiðirnar heim að þeim
bæjum, sem nálægt liggja þjóð- eða sýslu-
vegi. Hver jarðarábúandi greiði sitt bæj-
armerki.“
Almenningsbókasöfn.
„Þing H.S.H. skorar á ríkisstjórnina -—
og þá sérstaklega menntamálaráðherra
— að fá á þessu þingi samþykkta breyt-
ingu á lögum um almenningsbókasöfn,
sem feli í.sér ekki minni fjárframlög til
bókasafna en gert er ráð fyrir i frumvarpi,
sem lagt var fram á seinasta þingi.“
Landhelgismál.
„Þing Ii.S.H. ítrekar fyrri samþykklir
sínar í landhelgismálinu og treystir að það
mál leysist á farsælan hátt fyrir þjóðina.“
Skógrækt.
„Þing H.S.II. beinir þeim iilmælum til
allra ungmenna- og íþróttafélaga, að þeir
vinni að eflingu slcógræktar í héraðinu,
komi upp trjágörðum heima við bæi hver
hjá sér og vinni að þessu i samráði við
skógræktarfélög héraðsins.“
Ungir Hólmarar á skíðum.