Skinfaxi - 01.04.1966, Qupperneq 5
Alyktanir 24.
sambandsþings UMFÍ
í síðasta hefti Skinfaxa var greint frá störfum þingsins,
sem haldið var að Laugarvatni 1.—2. júlí 1966.
Einnig voru þá birtar samþykktir þingsins um íþróttamál.
Hér á eftir fara ályktanir þingsins, sem ekki var rúm fyrir í
síðasta hefti
Sjálfstæðismál
Þingið hvetur félaga sína og æskulýð
íslands í heild til þess að hefja öfluga
sókn til verndar þjóðerni voru og
tungu og leitast við af fremsta megni
að efla með sér sjálfsstjórn, ábyrgðar-
tilfinningu, óeigingirni, félagslund og
þegnskap svo að menningarlegu, efna-
legu og stjórnarfarslegu sjálfstæði
voru megi vera sem bezt borgið.
Þingið telur núverandi ástand í
sjónvarpsmálum óviðunnandi og ís-
lenzkri þjóðmenningu til mikils vanza.
Þingið skorar á stjórnarvöld að ráða
bót á þessu vandamáli og koma hið
fyrsta á menntandi íslenzku sjónvarpi.
Félagsmál œskunnar
Þingið lítur svo á, að hin frjálsa félags-
starfsemi hafi miklu hlutverki að
mót frá því sem hann var á dögum
Fjölnismanna. í sögulegum skilningi
var ekki nema spönnin milli þeirra og
okkar. Þeir voru skáld og menntamenn
sem hvöttu íslendinga á prenti yfir At-
lantshaf til þess að rísa upp og vera
menn. Það var á dögum landauranna
og fylling tímans ekki komin. Ung-
EaINFAXI
gegna í þágu uppeldis og þegnskapar
og telur að brýn nauðsyn beri til þess,
að efla hana til fjölbreyttara og mark-
vissara starfs.
Þingið þakkar aukna fjárhagsaðstoð
ríkisins og væntir þess, að framhald
verði á henni, og að UMFÍ verði veitt-
ur fastur tekjustofn eins og ÍSÍ, svo að
hægt verði að tryggja að samtökin geti
veitt þá þjónustu, sem nauðsynlegt er
á hverjum tíma í þágu öflugs og mann-
bætandi félagsstarfs — undir hand-
leiðslu menntaðra og reyndra æsku-
lýðsleiðtoga. Nauðsynlegt er að ráða
fastan erindreka til þess að byggja upp
aukna æskulýðsstarfsemi.
Þingið telur nauðsynlegt að stefna
að því að gera héraðssamböndunum
fjárhagslega kleyft að ráða æskulýðs-
leiðtoga sem fastan starfsmann til
eflingar hinu mikla starfi í félags- og
mennafélögin tóku upp þráðinn á
réttu augnabliki, og þótt ekki væru
forvígismennirnir jafnir gömlu for-
vígismönnunum að snilld og andagift,
þá fór nú alda frelsis og þjóðlegrar
sjálfsvirðingar um landið og olli and-
legri byltingu“.
5