Skinfaxi - 01.04.1966, Blaðsíða 6
íþróttamálum, sem fer fram á þeirra
vegum víðs vegar um land. Þingið
skorar á ungmennafélögin að vera vel
á verði um hlutverk sitt.
Æskulýðsmálanefnd
Þingið fagnar því, að menntamálaráð-
herra hefur skipað æskulýðsmála-
nefnd. Væntir þingið þess, að nefndin
ljúki störfum hið fyrsta.
Félagslegt uppeldi í skólum
Þingið telur, að leggja beri meiri
áherzlu á félagslegt uppeldi æskufólks
í skólum landsins en gert er.
I því sambandi vill þingið benda á:
1) Að í menntun kennara verði
lögð áherzli á að kennararnir geti orð-
ið góðir leiðbeinendur nemenda sinna
á sviði félagsmála.
2) Að skólunum verði sköpuð þau
ytri skilyrði, er auðveldi félagsstörf,
t. d. hvað húsakost snertir og aukna
starfskrafta.
3) Að námsskrá skólanna verði ætl-
aður tími til þessa þáttar skólastarf-
sins.
Þingið skorar á Alþingi og ríkis-
stjórn og aðra aðila, er þar um f jalla, að
efla skóla- og uppeldisstarf í landinu á
sem víðtækustum vettvangi. Sé haft í
huga að skapa íslenzkum æskulýð sem
jöfnust mennta- og þroskaskilyrði í
bæjum og sveitum landsins.
Félagsheimilasjóður
Þingið beinir þeirri áskorun til ríkis-
stjórnar íslands að láta nú þegar end-
urskoða löggjöf um Félagsheimilasjóð
með það fyrir augum að skipuleggja
betur aðstoð við slíkar byggingar og
bæta úr því ófremdarástandi, er ríkir,
að Félagsheimilasjóður skuldar félags
heimilum víða um land stórfé. Skapar
það fátækum félögum, sem ráðizt hafa
í byggingu félagsheimila, mjög erfiðar
fjárhagsástæður til heilbrigðs félags-
starfs. I sambandi við þá endurskoðun
óskar þingið að leitað verði til UMFÍ.
Þingið treystir því, að ríkisstjórnin
6
SKINFAXI