Skinfaxi - 01.04.1966, Qupperneq 10
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Tímamót í kringlukasti
Á síðasta ári gerðist sá merkisatburð-
ur í sögu frjálsíþrótta, að tékkneski
kringlukastarinn Ludvik Danek kast-
aði kringlunni yfir 65 metra fyrstur
manna. Þetta gerðist í októbermánuði,
þ. e. ári eftir að honum tókst að ná
öðru sæti á olypíuleikjunum í Tokíó á
eftir Bandaríkjamanninum A1 Oerter.
Kringlukast er ein af hinum klass-
isku íþróttagreinum, sem runnar eru
frá hinu forna gríska menningarríki,
er hafði frjálsíþróttir í hávegum á
blómaskeiði sínu. Þegar olympíuleik-
arnir voru endurreistir 1896, var að
sjálfsögðu keppt í kringlukasti, og
stóðu keppendurnir þá á þverhníptum
palli líkt og hin fræga myndastytta
frá Myron, sem gerð var á 5. öld fyrir
krist. Nokkrum árum eftir endurreisn
olympíuleikanna voru kringlukastar-
ar leystir úr þessum viðjum. Þeim var
leyft að stíga niður af pallinum, og
snúningurinn var fundinn upp. Úr því
þurfti ekki að bíða lengi eftir 40 m. og
50 m. köstum.
Saga frjálsíþrótta greinir frá sívax-
andi árangri í kringlukasti, sem að
sjálfsögðu byggist á sífellt markviss-
ari þjálfun og tekniskum framförum.
Listinn yfir heimsmetin allt frá árinu
1912 lítur þannig út:
47,58 Duncan (USA) Celtic Park 2.6.12
47,61 Lieb (USA) Chicago 14.9.24
47,89 Hartranft (USA) San Fransisco 2.5.25
48,30 Houser (USA) Palo Alto 3.4.26
49,90 Krenz (USA) Palo Alto 9.3.29
51,03 Krenz (USA) Palo Alto 17.5.30
51,73 Jessup (USA) Pittsburgh 23.8.30
52,42 Anderson (Svíþjóð) Oslo 25.8.34
53,10 Schröder (Þýzkaland) Magdeburg 28.435
53,26 Harris (USA) Palo Alto 20.6.41
53,34 Consolini (Italíu) Milano 26.10.41
54,23 Consolini (Italíu) Helsinki 14.4.46
54,93 Fitch (USA) Minneapolis 8.6.46
55,33 Consolini (Italíu) Milano 10.10.48
56,46 Gordien (USA) Lissabon 9.7.49
56,97 Gordien (USA) Hameenlinna 14.8.49
57,93 Iness (USA Lincoln 20.6.53
58,10 Gordien (USA) Pasadena 11.7.53
59,28 Gordien (USA) Pasadena 22.8.53
59,91 Piatkowskk (Pólland) Warsjó 14.6.59
59,91 Babka (USA) Walnut 12.8.60
60,56 Silvester (USA) Frankfurt/M. 11.8.61
60,72 Silvester (USA) Brussel 20.8.61
61,64 Trussenjew (Sovét) Leningrad 4.6.62
62,45 Oerter (USA) Chicago 1.7.62
62,62 Oerter (USA) Walnut 27.4.63
62,94 Oerter (USA) Walnut 25.4.64
64,55 Danek (Tékkoslov) Turnov 2.8.64
65,22 Danek (Tékkoslov) Sokolovo 12.10.65
Ludvik Danek hafði keppt 11 sinn-
um á 29 dögum og 36 sinnum alls á ár-
inu 1965, er hann hóf keppni á íþrótta-
SKINFAXI
10