Skinfaxi - 01.04.1966, Page 12
Jay Silvester
fyrrv. heimsmethafi og núver-
andi USA-methafi.
Fortune Gordien
fyrrv. heimsmethafi.
Al Oerter
sigurvergari á þrem Olympiu-
leikjum í röð.
móti í Sokolov 12. október s. 1.. Þrátt
fyrir þessa undangengnu áreynzlu,
kastaði Danek 63,71 m. í þriðju tilraun.
I fimmtu tilraun náði þessi stóri og
sterki maður sérstaklega hröðum og
góðum snúningi. Kringlan flaug hátt
og ótrúlega langt og hafnaði á grasflet-
inum nærri heilum metra fyrir aftan
flaggið, sem táknaði hans eigin heims-
met. Kastið mældist 65,22 m., og áhorf-
endur höfðu þar með orðið vitni að
fyrsta 65 m-kastinu í sögu þessarrar
íþróttagreinar.
Keppniferill Daneks á árinu 1965
var mjög glæsilegur, og tók af öll tví-
mæli um að hann væri orðinn mesti
kringlukastari heims.
Snemma á keppnitímabilinu fór
hann til Bandaríkjanna, og sigraði í
fimm skipti af sex, sem hann keppti.
Að vísu gat olympíumeistarinn Oerter
ekki tekið þátt í þessum mótum, en
samt verður þetta að teljast mjög góð-
ur árangur hjá útlendingi á heimavöll-
um Bandaríkjamanna, sem jafnan
hafa átt flesta af beztu kringluköstur-
um heims. Danek sigraði m. a. á AAU-
f rj álsíþróttameistaramótinu. Flestir
beztu kringlukastarar Bandaríkjanna
kepptu við Danek í þessari ferð. Á einu
mótinu, í Long Bach í Kaliforníu, setti
Jay Silvestar nýtt bandarískt met —
64,16 m., en það nægði ekki til að sigra
Danek. í keppni slíkra afburðamanna
reynir ekki síður á taugastyrkleika og
hugarjafnvægi en á líkamlega hæfi-
leika og kunnáttu. Danek var úttaug-
aður en ánægður, þegar hann kom
heim. „Þessi ferð var prófsteinninn á
þjálfun mína og hæfni,“ sagði hann.
„Ég vissi, að allt þar til síðasta kasti
var lokið í hverri keppni, varð ég að
vera búinn undir hvað sem var“.
Sú stæling og uppörvun, sem Danek
fékk í Ameríkuferðinni, ásamt áfram-
haldandi þjálfun, gerði honum kleyft
að ná frábærum keppniárangri út allt
árið, enda þótt enginn Evrópumaður
gæti veitt honum neina verulega
keppni. Danek keppti 42svar á árinu,
og meðalkastlengd hans var 60,96 m.,
og er slíkur árangur einsdæmi. Hann
hefur 10 sinnum kastað yfir 63,00 m.,
og aðeins einum manni öðrum (Sil-
vester) hefur tekist að varpa einu sinni
12
SKINFAXI