Skinfaxi - 01.04.1966, Síða 15
Hann þakkaði öllum samstarfsmönn-
um sínum í stjórn Skarphéðins fyrr
og síðar, og einnig færði hann þakkir
öllum þeim, sem sýnt hefðu Skarp-
héðni velvild í orði og verki.
Sigurður færði Skarphéðni að gjöf
veglegan fundarhamar í axarlíki, gerð-
an af eplatré og vínviði, sem hvor-
tveggja var ræktað heima hjá honum.
Hinrik Þórðarson frá Útverkum á
Skeiðum smíðaði hamar þennan og
skreytti hann með útskurði.
Hinrik hafði einnig skorið merki
landsmótsins á Laugarvatni í skjöld,
sem Þorsteini Einarssyni íþróttafull-
trúa var færður fyrir ómetanlega að-
stoð við Skarphéðinn bæði fyrr og
síðar, og þó sérstaklega í sambandi við
landsmótið.
Hermann Sigurjónsson í Raftholti
flutti Sigurði Greipssyni þakkir fyrir
hönd þingsins og Héraðssambandsins
Skarphéðins. Sagði Hermann m. a., að
þeir, sem starfað hefðu með Sigurði,
myndu aldrei geta annað en tengt sam-
an nöfn þeirra Sigurðar og Skarphéð-
ins, og þannig myndi það einnig verða
um ókomin ár.
Eiríkur J. Eiríksson, formaður
UMFl, þakkaði Sigurði fyrir langa og
dygga þjónustu við málstað ung-
mennafélaganna og fyrir samvinnu og
samveru undanfarna ártugi.
Gestir þingsins voru: sr. Eiríkur J.
Eiríksson, sambandsstjóri UMFÍ.,
Ármann Petursson, gjaldkeri UMFÍ.,
Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi og
Björn Fr. Björnsson, sýslumaður
Rangæinga.
Mörg mál voru rædd á þinginu og
margar ályktanir samþykktar í
íþrótta- og menningarmálum.
Að kvöldi fyrri dagsins var kvöld-
vaka, sem Umf. Njáll sá um, þar flutti
sr. Sigurður Haukdal á Bergþórshvoli
ávarp, Haraldur Júlíusson í Akurey
las ágrip af sögu Umf. Njáls, karlakór
söng nokkur lög og Vigfús Sigurgeirs-
son sýndi kvikmynd, sem hann tók á
landsmótinu á Laugarvatni s. 1. sumar.
Um nóttina gistu þingfulltrúar á
bæjum í Vestur-Landeyjum.
Síðari dag þingsins hófust nefndar-
störf kl. 10 árdegis, en þingfundi var
fram haldið eftir hádegi.
Núverandi
stjórn Skarphéðins:
Fró vinstri:
Hafsteinn Þorvaldsson,
Jóhannes Sigmundsson
(formaður) og Eggert
Haukdal.
SKINFAXI
15