Skinfaxi - 01.04.1966, Qupperneq 16
V erðlaunaafhending
Á þinginu afhenti sr. Eiríkur J. Eiríks-
son afreksbikar UMFl., en hann hlaut
Þuríður Jónsdóttir frá Selfossi fyrir
mjög glæsilega árangra í íþróttum á
landsmótinu á Laugarvatni.
Guðmundur Jónsson, bróðir Þuríð-
ar, var kjörinn afreksmaður ársins
1965 innan HSK og hlaut hann fagran
grip til minningar um þetta.
Stjórnarkjör
Við stjórnarkjör var Jóhanns Sig-
mundsson í Syðra-Langholti kjörinn
formaður, en þeir Eggert Haukdal og
Hafsteinn Þorvaldsson voru endur-
kjörnir í sæti gjaldkera og ritara
Skarphéðins.
Sigurður Greipsson var kjörinn
heiðursformaður sambandsins.
ÍSÍ heiörar Sigurð
Sunnudaginn 6. þ. m. átti stjórn ÍSÍ
fundi í Tryggvaskála með stjórn HSK.,
varastjórn og ýmsum forustumönnum
Skarphéðins.
Fundurinn hófst með því, að Jó-
hannes Sigmundsson, form. HSK.,
bauð gesti velkomna. Sérstaklega
bauð hann stjórn ÍSl velkomna og lýsti
ánægju yfir því að fá svo góða gesti í
heimsókn. Síðan afhenti hann Sigurði
Greipssyni, hinum nýkjörna heiðurs-
formanni HSK, skrautritað ávarp er
stjórn sambandsins lét gera í tilefni af
kjöri Sigurðar í þessa virðingarstöðu.
Næst tók til máls forseti ÍSÍ, Gísli
Halldórsson. Flutti hann HSK þakkir
vegna farsældar í störfum á sviði
íþróttamála. Lagði hann áherzlu á hve
landsmótið á Laugarvatni, er Skarp-
héðinn sá um s. 1. sumar, hefði vel
tekizt.
Afhenti hann HSK ávísun á kr.
10.000,00, sem viðurkenningu fyrir vel
unnin störf á s. 1. ári.
Síðan ávarpaði Gísli Halldórsson
hinn nýkjörna heiðursformann HSK.
Þakkaði hann Sigurði farsæla forystu
í íþrótta- og uppeldismálum í 40—50 ár
og afhenti honum viðhafnarútgáfu af
Ijóðum Einars Benediktssonar, áletr-
aða af stjórn ISÍ.
Aður heiur Sigurður verið sæmdur
gullmerk] ISÍ vegna forystustarfa í
íþróttamaium.
Sigurður Greipssor; þakkaði þann
heiður er sér væri syndur og árnaði
íþróttasambandi Islands allra heilla.
Nokkrir fleiri tóku til máls, m. a. Bene-
dikt G. Waage, heiðursforseti ÍSl.
Eggert Haukdal gjaldkeri HSK, Stefán
Jasonarson varaform. HSK og Haf-
steinn Þorvaldsson ritari HSK.
Að lokum þakkaði Jóhannes Sig-
mundsson gestum fyrir komuna og
óskaði þeim góðrar heimferðar.
Skýrsla um 12. landsmót UMFÍ er nýlega
komin út, og hefur Þorsteinn Einarsson, leik-
stjóri landsmótsins, séð um útgáfuna. Hér er
um að ræða einstaklega vandaða heimild um
landsmótið, og er það mjög mikils virði fyrir
ungmennafélagssamtökin að eiga aðgang að
jafnágætri skýrslu um þetta stóra mót í
skýrslunni eru taldir upp allir keppendur og
starfsmenn á mótinu. Þá er einnig greint frá
úrslitum í öllum keppnisgreinum, bæði und-
ankeppni og úrslitum.
16
SKINFAXI