Skinfaxi - 01.04.1967, Qupperneq 23
arsson verði fararstjóri og stjórnandi
glímuflokksins.
Landsliðsnefnd mun sjá um val
þeirra glímumanna, sem í flokknum
verða og taka ákvarðanir um samæf-
ingar. í nefndinni eru þorsteinn Ein-
arsson, Hafsteinn Þorvaldsson og
Rögnvaldur Gunnlaugsson.
Það eru tilmæli Glímusambandsins,
að stjórnir héraðssambandanna taki
þetta mál til athugunar og hvetji
glímumenn innan sinna vébanda til
æfinga, því einungis verða valdir til
þessarar ferðar mjög vel æfðir glímu-
menn.
Glímusamband íslands hefur látið
búa til sérstaka glímuskó, sem það
hefur löggilt sem keppnisskó. Skór
þessir eru búnir til hjá skóverksmiðj-
unni Iðunni á Akureyri.
Skórnir eru seldir í Skósölunni,
Laugavegi 1, Reykjavík. Verð þeirra
er kr. 415,00. Einnig munu skórnir fást
í afgreiðslu skóverksmiðjunnar Ið-
unnar á Akureyri. Skórnir fást í svört-
um, hvítum, rauðum og bláum lit.
Glímusambandið hvetur glímu-
menn til að eignast glímuskóna sem
allra fyrst.
Þá vill Glímusambandið benda á,
að hin löggiltu glímubelti fást á
Laugaveg 30, hjá Hannesi Halldórs-
syni. Þar fást einnig drengja- og ung-
lingaglímubelti.
SKINFAXI
23