Skinfaxi - 01.02.1973, Qupperneq 3
Ttmarit Ungmennafélags íslands — LXIV. árgangur — 1. hefti 1973 — Ritstjóri Eysteinn
Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju
Byggðaþróun — byggðastefna
Menn velta því stundum fyrir sér, hvaða
þættir það eru helzt sem ráða ákvörðunartöku
manna þegar þeir velja sér og sinni fjölskyldu
stað til búsetu. Þar koma til allmargir sam-
verkandi þættir í flestum tilfellum, þótt einstaka
þeirra geti að visu verið svo veigameiri en
aðrir við ákvörðun einstaklingsins.
Þá er það ekki síður ihugunarefni í öllu
þessu tali um byggðaþróun og bygðastefnur,
hversu hægt gengur að þoka málefnum lands-
byggðarinnar áfram, það er að segja fram-
kvæmd byggðarstefnunnar.
Velvilji allra stjórnmálaflokka virðist vera til
staðar, og stjórnmálamenn tala fögrum orðum
um „jafnvægi í byggð landsins", sér í lagi þeg-
ar höfða þarf til dreyfbýlisins í atkvæðaöflun.
Er þá aðstöðumunurinn eins mikill og af er
látið, er þörf á að jafna metin? Vissulega er
jafnvægisþörfin fyrir hendi í okkar landi, þar
sem heil byggðarlög, jafnvel landshlutar, eru
á stundum algjörlega afskiptir um ýmis félags-
og menningarlega þjónustu, sem í nútíma þjóð-
félagi verður að flokkast undir frumþarfir ein-
staklingsins. Hér má nefna húsnæði, menntun-
araðstöðu og heilbrigðisþjónustu, að maður
SKINFAXI
tali nú ekki um ýmsa félagslega þjónustu aðra
og aðstöðu. Á sama tíma fjölgar fólki stöðugt
á stór-Reykjavíkursvæðinu, og öll þjónusta
eykst einnig, svo og aðstaða til afkomu, fast-
eignir í tvöföldu og þreföldu verði miðað við
ýmsa aðra landshluta og annar aðstöðumun-
ur eftir þvi.
Getur fálagshreyfing eins og ungmennafél-
ögin lagt eitthvað af mörkum með starfsemi
sinni til þess að snúa þessari óheillaþróun
við?
Forustumenn bæjar- og sveitarfélaga telja
tvímælalaust að svo sé og hafa ótvírætt sýnt
það í verki, með beinum og óbeinum fjárstuðn-
ingi við félögin, samhliða þvi að fela þeim
hlutverk æskulýðsráða og styrkja þau til starfa
sem slík.
UMFÍ hefur ákveðið að framkvæma sína
byggðastefnu í ár, með stórauknu útbreiðslu-
starfi, félagsmálakynningum i skólum, heim-
sóknum á þing og fundi félaganna og héraðs-
sambandanna um land allt, og síðast en ekki
sizt aukinni fyrirgreiðslu við sambandsfélögin
fró aðal-skrifstofu samtakanna i Reykjavík.
H. Þ.
3
LAHDSBOKASAFH
3128J 3
I3LAKDS