Skinfaxi - 01.02.1973, Blaðsíða 8
BLAK er vaxandi
almenningsíþrótt
Rætt við Albert H.N. Valdimarsson,
formann BLÍ
Blak er íþrótt sem mjög hefur
eflzt að vinsældum hér á landi á síðustu
arum eins og raunar víða um heim. í
novembermánuði s. 1. var stofnað Blak-
samband íslands (BLÍ) og voru stofn-
aðilar 11 héraðssambönd og íþrótta-
bandalög. Formaður BLÍ er Albert
Valdimarsson, og Skinfaxi leitaði frétta
hjá honum um þessa vinsælu íþrótt.
— Er blak iðkað víða hér á landi?
— Já, blak er iðkað í öllum héruðum
landsins. íþróttin hefur alla tíð verið
mjög bundin við skólana hér á landi og
mikið stunduð bæði af nemendum og
kennurum. Þetta þýðir að liðin hafa
tvístrast á vorin og lítið hefur ennþá
myndast af staðföstum félagsliðum.
Skólaíþróttafélög eru hins vegar færst
innan vébanda ÍSÍ, og þess vegna hef
Lið Umf. Hvatar í
Grímsnesi, sem varð
Islandsmeistari í
blaki 1973. Aftari röð
frá vinstri: Páll Ólafs-
son, Finnur M. Finns-
son, Gestur Bárðar-
son, Bjarni Þorkels-
son, Ólafur Þ. Jó-
hannsson. Fremri röð:
Már Tulinius, Torfi
Rúnar Itristjánsson,
fyrirliði, og Baldvin
Kristjánsson. Á mynd-
ina vantar Rúnar
Karlsson. Piltarnir eru
allir í Menntaskól-
anum á Laugarvatni.
Torfi heldur á styttu,
sem keppt er um á
mótinu.
8
SKINFAXI