Skinfaxi - 01.02.1973, Side 10
Yfirlitsmynd af leikvelli og útbúnaði í blaki.
Blak er hægt að iðka í flestum félagslieimil-
um landsins.
— Það má segja að þau sinni henni
lítið enn sem komið er, og er aðallega
borið við húsnæðisskorti. Iþrótta-félag
stúdenta er eina félagið í höfuðborginni
sem æfir blak sem keppnisíþrótt. Old
boys-flokkar æfa hins vegar bæði hjá
Ármanni og IR.
— En kvenna- og unglingalið?
— Á þingi BLÍ í haust verður gengið
frá reglum um keppni í aldursflokkum
í samræmi við alþjóðareglur. Kvenna-
keppni er þegar hafin, þó konur hafi
enn ekki keppt á íslandsmóti. Að vísu
bjóst ég varla við neinni þátttöku, þegar
auglýst var eftir þátttöku í kvennaflokki
á skólamótinu í vetur. En það komu
hvorki meira né minna en 6 lið. Tvö
þeirra, lið Kennaraháskólans og íþrótta-
kennaraskólans sýndu mjög góð tilþrif.
Iþróttakennaraskólinn hefur sinnt blak-
inu mjög vel, og við erum auðvitað hæst-
ánægðir með það, að íþróttakennarar
skuli geta kennt þessa íþrótt.
— Hvað um erlend samskipti?
BLÍ mun gerast aðili að Norður-
landasambandinu á þessu ári. Við stefn-
um að því að taka þátt í Norðurlanda-
meistaramótinu 1975. Mvndun landsliðs
er enn erfiðleikum háð vegna þess hvað
liðin eru óstöðug, þar sem þau eru flest
skólalið eins og ég sagði áðan. Við mun-
um líka reyna að koma á keppni við er-
lend lið áður, þannig að við getum mælt
styrkleikann.
— Hvað eiga félög úti á landi að
gera, ef þau vilja byrja blakæfingar?
— Sjálfsagt er að skrifa Blaksam-
bandi Islands, íþróttamiðstöðinni, Póst-
hólf 864. Við veitum allar upplýsingar
um útbúnað, og hjá BLÍ og ÍSI fást leik-
reglur í blaki, sem gefnar voru út í
fyrra.
SKINFAXI
10